Berlínarbúar vilja banna sína Gamma

Íbúar höf­uð­borgar Þýska­lands ræða nú um það í fullri alvöru hvort rétt sé að banna stóru leigu­fé­lögin í borg­inni, taka hús þeirra eign­ar­námi, og leigja íbúð­irnar aftur út á sam­fé­lags­legum for­sendum. Meiri­hluti Berlín­ar­búa eru hlynntir hug­mynd­inni sem gæti farið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu áður en langt um líður.

Mótmæla leigurisunum
Mótmæla leiguris­unum Íbúar í hverf­inu Friedrichschain hafa und­an­farin miss­eri staðið í ýmsum aðgerðum gegn stórum leigu­fé­lögum og leigu­hækk­unum þeirra, en hverfið er vin­sælt á meðal fjár­festa. Mynd: unknown

Töluverð umræða hefur farið fram um það í höf­uð­borg Þýska­lands að und­an­förnu hvort tími sé kom­inn til þess að banna stórum hagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum að starfa áfram í borg­inni. Óhætt er að segja að ákveðið neyð­ar­á­stand ríki á leigu­mark­aði í Berlín, en leigu­verð í borg­inni hefur meira en tvö­fald­ast síð­ast­lið­inn ára­tug og hækk­aði um heil 20,5 pró­sent árið 2017, sem var mesta hækkun í heim­inum það árið. Leigurisarnir á mark­aði eru sak­aðir um að hafa ýtt undir og stuðlað að þessu með upp­kaupum íbúða í þús­unda­vís og meiri sam­þjöppun á mark­aði en áður hefur þekkst.

Svo virð­ist sem Berlín­ar­búar séu nú til­búnir til þess að grípa til rót­tækra aðgerða, en nýleg skoð­ana­könnun leiddi í ljós að meiri­hluti þeirra er hlynntur því að banna stóru leigu­fé­lög­unum að starfa áfram í borg­inni. Þetta fæli meðal ann­ars í sér þjóð­nýt­ingu hús­næðis leigurisanna; alls 200 þús­und íbúða sem yrðu síðan leigðar aftur út á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár