Barnabókin „Ævintýri í Bulllandi“

Mæðgin dund­uðu sér við að skrifa barna­bók á meðan að COVID-far­ald­ur­inn hélt sam­fé­lag­inu í sam­komu­banni. Þau safna nú fyrir útgáfu hennar á Karolina fund.

Erna Marín Kvist, multik­un­stner, er höf­undur og mynd­skreytir bók­ar­innar Ævintýri í Bull­landi. Þegar COVID-far­ald­ur­inn geis­aði og sam­komu­bann var inn­leitt dund­uðu mæðginin Erna Marín og yngri sonur hennar, Sindri Nóel, sér við skrif barna­bókar. Þau búa í nágrenni við Laug­ar­dal­inn og not­uðu umhverfi sitt sem inn­blástur við skrif bók­ar­innar.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Öll þurfum við okkar griða­stað á skrýtnum og stundum erf­iðum tímum. Eins og margir fundu örugg­lega fyrir þá vorum við mikið saman og mikið heima fyrir í sam­komu­bann­inu. Það var eig­in­lega nauð­syn­legt að hafa eitt­hvað skemmti­legt og öðru­vísi fyrir stafni og úr því þró­að­ist barna­bókin Ævintýri í Bull­landi.“

Bókin fjallar um ævin­týri Sindra og Sunnu sem eru að leika sér á leik­velli í Laug­ar­dalnum og gleyma sér í gleði og leik. Þau enda í Hús­dýra­garð­inum þar sem þau bulla með alls konar kunn­ug­leg ævin­týri og búa jafn­framt til sín eigin.

„Sjálf hef ég ótrú­lega gaman af ævin­týrum og töfra­heimi barna. Börn eru gædd gáfum, næmni og sköp­un­ar­gleði sem við full­orðna fólkið gleymum stundum í amstri dags­ins. Börn og for­eldrar hafa eflaust kynnst hvor öðru betur síð­ast­liðnar vikur og full­orðnir jafn­vel tengst betur sínu innra barni. Það finnst mér gjöful upp­skera í kjöl­far COVID. Markmið þess­arar bókar er börn og full­orðnir geta átt góðar stundir saman með upp­byggj­andi og jákvæðum skila­boðum.

[adspot]Þessi bók er mér hjart­ans mál, ég hef lagt mig alla fram við mynd­skreyt­ingar, hand­ritið er til­búið og mig langar mikið til að geta gefið hana út. Ef okkur tekst að safna fyrir útgáfu bók­ar­innar þá vil ég koma henni til sem flestra barna í erf­iðum aðstæðum. Til dæmis á Barna­spít­ala Hrings­ins, Barnahús, Kvenn­athvarfið og fleiri staði þar sem börn í við­kvæmri stöðu eru að finna. Ég hef sjálf reynslu af því að vera barn í erf­iðum aðstæðum og þá voru ævin­týri og sköpun minn flótti og björgun. Við mæðginin viljum þakka kær­lega fyrir allan stuðn­ing og minnum líka alla á að leika og bulla meira saman. Það er hollt og gott fyrir sál­ina.“

Hér er hægt að styrkja og taka þátt í söfnun Ernu.

Verk­efnið er einnig með Facebook síðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár