Rússar koma líklega í veg fyrir hækkun olíuverðsins

Sam­komu­lag um fram­leiðslu­þak á olíu er í upp­námi. Fundur OPEC-ríkj­anna er áætl­aður á mið­viku­dag. Mark­miðið er að hækka olíu­verð með því að draga úr fram­boði.

Sádi-arabar eru áhrifamesta ríkið í OPEC. Þar eru ráðamenn farnir efast um að samkomulagið verði að veruleika. Hér má sjá orkumálaráðherra landsins Khaled al-Faleh í símanum á óformlegum fundi OPEC-ríkjanna 28. september.
Sádi-arabar eru áhrifa­mesta ríkið í OPEC. Þar eru ráða­menn farnir efast um að sam­komu­lagið verði að veru­leika. Hér má sjá orku­mála­ráð­herra lands­ins Khaled al-Faleh í sím­anum á óform­legum fundi OPEC-ríkj­anna 28. sept­em­ber. Mynd: EPA

Rússar munu að öllum lík­indum koma í veg fyrir að OPEC-ríkin sam­þykki minni olíu­fram­leiðslu á mið­viku­dag. Samtök olíu­út­flutn­ings­landa reyna nú að bjarga sam­komu­lag­inu sem gert var í sept­em­ber um að tak­marka fram­leiðslu olíu í heim­inum til þess að hækka olíu­verð á ný.

Olíuverð er helm­ingi lægra í dag en það var um mitt ár 2014 og þess vegna telja OPEC-ríkin mik­il­vægt að setja þak á olíu­fram­leiðslu í heim­inum. Nú verða til að jafn­aði 33.64 millj­ónir tunna af olíu á dag í OPEC-ríkj­unum en olíu­ríkin vilja tak­marka fram­boðið við 32,5 til 33,0 millj­ónir tunna á dag. Ljóst er að Rússland og önnur olíu­fram­leiðslu­ríki þurfa að taka þátt í aðgerð­unum svo þær skili til­ætl­uðum árangri, sam­kvæmt frétt Reuters.

Fundur ráð­herra aðild­ar­ríkja OPEC 30. nóv­em­ber átti að ganga frá sam­komu­lag­inu um fram­leiðslu­skerð­ingu en und­an­farna daga hefur komið í ljós að ágrein­ingur um sam­komu­lagið kann að vera of mik­ill, ekki aðeins utan OPEC heldur einnig innan sam­tak­anna.

Áhrifa­­mesta ríkið innan OPEC er Sá­di-­­ar­a­b­ía, en til sam­tak­anna til­­heyra fjórtán olíu­­fram­­leiðslu­­rík­i. Auk Sádi-ar­a­bíu eru það Alsír, Angóla, Ekvador, Gabon, Indónesía, Íran, Írak, Kúveit, Líbía, Katar, Níger­ía, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­­dæm­in, og Venes­ú­ela. ­Saman standa ríkin undir meira en 33 pró­­sent af heims­fram­­leiðsl­unni. Olíu­­fram­­leiðslu­­rík­i eins og Brasil­ía, Banda­­rík­­in, Rús­s­land og Nor­egur standa utan OPEC.

Óvissan um hvort sam­komu­lagið muni verða að veru­leika varð til þess að verð á hrá­olíu (Brent) lækk­aði um tvö pró­sent í morgun. og stendur í um 47 doll­urum á tunn­una. Reuters hefur eftir grein­endum bank­anna Morgan Stanley og Macquarie að lík­lega muni olíu­mark­að­ur­inn leið­rétta sig snar­lega ef OPEC-ríkj­unum mis­tekst að kom­ast að sam­komu­lagi og tunnu­verðið fari jafn­vel niður fyrir 35 doll­ara.

Und­an­farin ár hefur olíu­fram­leiðsla í heim­inum auk­ist mikið. Eft­ir­spurnin árið 2016 er að jafn­aði 94,40 milljón tunnur á dag, sam­kvæmt mán­að­ar­legri skýrslu OPEC sem kom síð­ast út í októ­ber. Talið er að eft­ir­spurnin muni vaxa um 1,22% á milli ára og verða 95,56 milljón tunnur á dag að jafn­aði árið 2017.

Fram­boðið meðal þeirra ríkja sem ekki eru í OPEC hefur minnkað á árinu 2016 um 1,19%. Stærsta ein­staka olíu­fram­leiðslu­ríki í heimi utan OPEC er Banda­ríkin sem sendir nú að jafn­aði 13,62 milljón tunnur af olíu á markað á dag. Á und­an­förnum fimm árum hafa Banda­ríkin tvö­faldað fram­leiðslu sína og fram­leiða nú álíka mikið og árið 1985. Rússar koma þar á eftir en þar eru fram­leiddar að jafn­aði 11,04 milljón tunnur á dag.

Óvenjulegur fundur

Fundur OPEC, ef af honum verður, er um marg­t ó­venju­leg­ur, þar sem ríkin hafa í reynd með sér sam­ráð á risa­vöxnum mark­aði með­ ol­íu, sem síðan hefur mikil og djúp afleidd áhrif á gang efna­hags­mála í heim­in­um.

Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur sveifl­ast á bil­inu 47 til 50 Banda­ríkja­dal­ir á tunnu síð­ast­liðna sex mán­uði eftir að það hækk­aði um ríf­lega helm­ing frá því að það náði lág­marki í jan­úar síð­ast­liðn­um. Þá var það komið í 26 ­Banda­ríkja­dali, eftir að hafa verið rúm­lega ári fyrr í 110 Banda­ríkja­döl­u­m. Und­an­farin tvö ár á olíu­mark­aði hafa því verið mikil rús­sí­ban­areið fyr­ir­ ol­íu­fram­leiðslu­ríki. Mörg þeirra, einkum þau sem voru með veika inn­viði fyr­ir, hafa farið illa út úr verð­fall­inu, og má sér­stak­lega benda á Bras­ilíu og Venes­ú­ela í þeim efn­um.

Þetta mikla verð­fall á olíu hefur hins vegar komið sér vel fyr­ir­ ­mörg önnur ríki eins og Ísland. Dregið hefur úr verð­bólgu­þrýst­ingi erlend­is frá, sökkum þessa, og þá hafa útgerð­arfyr­ir­tæki og flug­fé­lög notið góðs af því að stór kostnað­ar­liður í rekstr­in­um, olíu­kaup, hefur orðið hag­stæð­ari.

Í nýj­ustu Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands er fund­ur­inn gerður að um­tals­efni. „OPEC-­ríkin funda á ný í þessum mán­uði en mikil óvissa er um ­nið­ur­stöðu þess fundar og áhrif hennar á heims­mark­aðs­verð á olíu. Horfur eru á hærra verði en í ágúst og því búist við minni lækkun á þessu ári en þá var ­á­ætlað og meiri hækk­unum á næstu árum,“ segir í Pen­inga­mál­um.

Tunnan af hrá­olíu á Banda­ríkja­mark­aði kostar nú 45 Banda­ríkja­dali og hefur lækkað lít­il­lega í verði und­an­farna daga.

Fylgj­ast má með þróun bens­ín­verðs á Íslandi á bens­ín­vakt Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár