Hótanir og tilraunir til múta hluti af veruleika skattrannsóknarstjóra

Skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins hef­ur oftar en einu sinni verið hótað og til­raunir gerðar til að múta henni í starfi. Stofn­un­inni sem slíkri hefur einnig verið hótað póli­tísk­um af­skipt­um í ein­stök­um mál­um.

Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri ríkisins.
Bryndís Krist­jáns­dóttir, skatt­rann­sókn­ar­stjóri rík­is­ins. Mynd: RÚV/Skjáskot

Bryndísi Krist­jáns­dóttur, skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins, segir að sér hafi marg­sinnis verið hótað og þá hafi reynt að múta henni í starfi. Starfs­mönnum emb­ætt­is­ins hefur einnig oftar en einu sinni verið hótað sem og stofn­un­inni sem slíkri hefur meðal ann­ars verið hótað póli­tískum afskiptum í ein­staka málum. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir þetta hluta af starf­inu og að þetta hafi engin áhrif á það hvernig tekið sé á málum innan stofn­un­ar­innar. Þetta kemur fram í við­tali við Bryndísi í Við­skipta­Mogg­anum í dag.

Stofnuninni hótað pólitískum afskiptum í einstaka málum

Í við­tal­inu segir Bryndís starf skatt­rann­sókna­stjóra vera áhuga­vert en snúið en hún tók við emb­ætt­inu árið 2007. Henni hefur verið hótað oftar en einu sinni og til­raunir hafa verið gerðar til að múta henni sem og öðrum starfs­mönnum stofn­un­ar­innar. „Ég hef fengið hót­anir og það hefur líka verið reynt að múta mér. Það eru dæmi um það. Þeir sem sæta rann­sókn koma ekki sjálf­vilj­ugir hingað. Það er allt undir. Allir þínir pen­ingar, fjár­munir og þetta reynir auð­vitað á alla. Fjöl­skyldu og maka og tekur oft langan tíma. Við reynum að vera með­vituð um þetta.“

Þá hefur öðrum starfs­mönnum emb­ætt­is­ins einnig verið hótað og í einu til­felli var til að mynda ætt­ingjum starfs­manns hótað atvinnu­missi. Bryndís segir að sér hafi þótt það svo­lítið langt gengið en oft sé erfitt með sönnun í svona málum þar sem fólki er hótað þar sem hót­an­irnar séu sjaldn­ast settar fram í við­ur­vist vitna.

„En stofn­un­inni sem slíkri hefur verið hótað, og okkur hefur verið hótað póli­tískum afskiptum í ein­stökum málum. Ég er ekki að segja að það hafi átt sér stað. En því hefur verið hótað,“ segir Bryndís.[adspot]

Bryndís segir einnig frá í einu atviki í við­tal­inu þar sem reynt var að múta henni með því bjóða henni að drekka frítt á bar niðri í bæ í heilt ár gegn því að til­tekið mál yrði fellt niður. „Þetta er nátt­úr­lega bara hluti af þessu starfi. Það er auð­vitað mitt starf og okkar hérna að láta þetta ekk­ert á okkur fá. Þetta hefur engin áhrif á það hvernig við tökum á málum og hvort við tökum á málum eða ekki. ,“ segir Bryndís en hún hefur staðið í þeirri stóru hring­iðu mála sem fylgdu hrun­inu.

Keyptu gögn sem tengdu Íslendinga við skattaskjól

Bryndís Krist­jáns­dóttir segir einnig frá því í við­tal­inu hvernig þær gríð­ar­legar breyt­ingar sem urðu í alþjóð­legri skatta­sam­vinnu eftir fjár­mála­hrunið 2008 hafi gjör­breytt umhverfi til skatt­rann­sókna. Bryndís segir að aldrei hafi mætt meira á emb­ætt­inu en á árunum eftir hrun. Sér­stak­lega í tengslum við leka á borð við Panama-skjölin en Bryndís stóð í for­svari þegar íslenska ríkið ákvað að veita skatt­rann­sókn­ar­stjóra fjár­magn til kaupa á gögnum sem tengdu Íslend­inga við skatta­skjól.

Það vakti mikla athygli þegar emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra festi kaup á gögnum sem tengdu Íslend­inga við skatta­skjól en um 500 félög var að ræða sem 400 Íslend­ingar áttu. „Það sem kannski var sér­stakt við þessi gögn var hvað þetta var mikið. Hvað Ísland var stórt í þessum grunni í öllum skiln­ingi. Hins vegar var þetta ekki í fyrsta skiptið og ekki í síð­asta skiptið sem skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafa verið boðin til kaups ýmiss konar gögn. Það hefur gerst áður og síðar, en það var þetta mikla magn sem vakti spurn­ingar um það hvort það væri ástæða til það kaupa þessi gögn, “ segir Bryndís í við­tal­inu.

Bryndís segir að spurn­ingar sem vökn­uðu hafi ekki síst verið sið­ferð­is­legar. „Vilja menn taka þetta skref eða vilja menn það ekki? Það hefði verið gott ef það hefði farið fram ein­hver heild­stæð umræða um það. Vegna þess að þetta er stór spurn­ing. Mitt sið­ferði, af eða á, á ekki að vera það sem sker úr. Þó að ég hafi á end­anum mælt með þessum kaupum þá er þetta stór spurn­ing og ég myndi aldrei gera lítið úr henni.“ 

Aðspurð segir Bryndís að emb­ættið myndi eflaust kaupa svona göng aftur. „En það væri æski­legt að hafa eitt­hvert ferli um þetta. Af því að þetta eru stórar spurn­ingar. Eins og með sið­ferðið. Það hafa allir sína skoðun á því. Síðan er það þessi umræða um upp­ljóstr­ara sem hefur heyrst und­an­farin miss­eri. Það er þörf fyrir reglur um þá. Það hafa flest vest­ræn ríki sett sér ákveðnar reglur um það. Ef við viljum taka þetta skref, sem við erum kannski búin að taka þurfum við líka að tryggja ákveðna umgjörð í kringum það mál.“

Meiri áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir innan skattkerfisins

Í við­tal­inu kemur fram að und­an­farna þrjá ára­tugi hafi umfang skattsvika verið metið á bil­inu 3 til 7 pró­sent af lands­fram­leiðslu. það eru um 10 pró­sent af heild­ar­tekjum hins opin­bera. Bryndís segir þó allar slíkar tölur velta á þeim for­sendum sem gefnar eru. Hún segir að um hríð hafi emb­ættið haft áhyggjur af inn­skattsvikum, meðal annar í bygg­ing­ar­starf­semi. Þá sé um svokölluð keðju­mál að ræða þar sem rekin eru umfangs­mikil skatt­svik til und­an­skota und­ir­verk­taka þar sem fyr­ir­tæki nýti sé glufur í virð­is­auka­skatt­kerf­inu. Hún segir að rík­is­sjóður verði af veru­legum fjár­munum vegna þessa og bætir við fólk sé í auknum mæli að setja upp til­hæfu­lausa starf­semi til þess að fá fjár­muni greidda úr rík­is­sjóð.

Að sögn Bryn­dísar þarf emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra að vísa fjölda mála út af borð­inu en aðeins þrjá­tíu manns starfa hjá stofn­un­inni. Hún segir að það muni aldrei verða nægur mann­skapur til að rann­saka hvert ein­asta mál. Bryndís bendir að lokum á að huga þurfi meira að fyr­ir­byggj­andi aðgerðum innan skatt­kerf­is­ins, æski­legt væri að meiri áherslu sé lögð á grein­ing­ar­vinnu og fyr­ir­byggj­andi þætti innan skatt­kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár