Ætla að knýja olíuborpalla í Norðursjó með vindorku

Á sama tíma og ásókn fram­kvæmda­að­ila í að reisa vind­orku­ver á landi á Íslandi hefur stór­auk­ist á örfáum miss­erum eru Norðmenn að und­ir­búa bygg­ingu fljót­andi vind­orku­vers í Norð­ur­sjó.

Tölvuteiknuð mynd sýnir hvernig Hywind Tampen kemur með að líta út. Olíuborpallur til vinstri á myndinni.
Tölvu­teiknuð mynd sýnir hvernig Hywind Tampen kemur með að líta út. Olíu­bor­p­allur til vinstri á mynd­inni. Mynd: Equinor

Olav-Bernt Haga, fram­kvæmda­stjóri Hywind Tampen, sem er í eigu orku­fyr­ir­tæk­is­ins Equinor, er reynslu­bolti þegar kemur að því að þróa nýja tækni til að nýta end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa. Hann segir sína nýj­ustu ástríðu, fljót­andi vind­orku­garða á hafi úti, eiga eftir að hafa mikla þýð­ingu þegar kemur að því að ná mark­miðum í lofts­lags­málum sem ríki heims hafi sam­mælst um.

Fram­kvæmda­leyfi fékkst hjá stjórn­völdum fyrir ári síðan. Vind­myll­urnar, sem verða ell­efu tals­ins, verða í 190 metra hæð frá yfir­borði sjávar og snún­ings­flötur spað­anna um 160 metrar í þver­mál. Þær eru því engin smá­smíði. Þær munu sann­ar­lega fljóta í sjónum á steyptum stöplum en þeir verða svo festir við hafs­botn­inn.

Áætlað er að bygg­ing vers­ins kosti um 4,8 millj­arða norskra króna, um 72 millj­arða íslenskra króna. For­svars­menn Equinor segja verk­efnið ekki arð­væn­legt þar sem um frum­kvöðla­verk­efni sé að ræða. Fjár­mögn­unin kemur því að stærstum hluta úr opin­berum sjóðum.

[adspot]

Vind­orku­ver á hafi úti eru ekki nýtt fyr­ir­bæri. Utan við Holland, Danmörku og Bretland hefur vind­myllum þegar verið komið fyrir á hafflet­inum en þær eru hins vegar háðar því að vera botn­fastar. Eins og gefur að skilja úti­lokar slík leið virkjun vinds­ins þar sem mikið dýpi er að finna.

Sá orku­gjafi sem helst er not­aður á olíu­borpöll­unum í Norð­ur­sjó í dag er jarð­gas. Þegar Hywind Tampen verður komið í gagnið mun koltví­oxíð­losun Norð­manna, að sögn for­svars­manna vers­ins, minnka um 200 þús­und tonn árlega. Það jafn­ast að þeirra sögn á við losun 100 þús­und bíla sem knúnir eru jarð­efna­elds­neyti.

Orku­ver­inu er einnig ætlað það hlut­verk að vera til­rauna­verk­efni til fram­tíðar við þróun vind­orku­nýt­ingar á hafi úti. „Þetta verður stór iðn­aður í fram­tíð­inni,“ heldur Haga fram, „og Norðmenn eru þegar orðnir lang­fremstir“.

Haga lýsir upp­setn­ingu vind­orku­vers­ins þannig að í kjöl­far hönn­unar- og þró­un­ar­ferlis síð­ustu ára og ára­tuga hefj­ist bygg­ing þess í ár og í byrjun þess næsta verði allir „legó-kub­b­arnir“, eins og hann orðar það í grein sem birt er á Aften­posten, settir saman og vind­myll­urnar, ein og ein í einu, fluttar frá Gulen, bæ á vest­ur­strönd Noregs, og út á Tampen-svæðið í Norð­ur­sjó. Þar er að finna fjölda bor­p­alla sem vinna bæði olíu og gas úr hafs­botn­inum. Áætlanir gera ráð fyrir að á síð­asta árs­fjórð­ungi næsta árs verði tveir pall­anna farnir að ganga fyrir raf­magni frá Hywind Tampen-orku­ver­inu að hluta. „Heims­byggðin mun þurfa á olíu- og gasi að halda í marga ára­tugi í við­bót,“ segir Haga. Ólíkt því sem margir haldi sé olía ekki aðeins notuð sem orku­gjafi á far­ar­tæki heldur til allra handa fram­leiðslu, t.d. á stáli, sem­enti og í lyfja­iðn­aði.

Fjár­mögnun verk­efn­is­ins með opin­beru fé er meðal þess sem helst hefur verið gagn­rýnt í kringum hið fljót­andi orku­ver. Flokkur Græn­ingja í Noregi (MDG) segir hið fljót­andi vind­orku­ver í sjálfu sér fram­fara­skref tækni­lega séð en að Hywind Tampen eigi hins vegar að nota til að „græn­þvo“ olíu- og gas­iðn­að­inn í Noregi og gera það á kostnað skatt­greið­enda. Tals­maður Græn­ingja sagði í fyrra að ef raun­veru­legur vilji væri til þess að þróa tækn­ina ætti að gera það með því mark­miði að orkan komi í stað jarð­elds­neyta. Í stað­inn hafi sú leið verið farin að bein­tengja orku­verið við olíu­iðn­að­inn til fram­tíðar.

Á Íslandi standa tvær vind­myllur, orku­verið Hafið á vegum Lands­virkj­unar. Mikil ásókn er hins vegar í vind­orku­verk­efni þessi miss­erin og tugir hug­mynda um allt land hafa litið dags­ins ljós þótt að þær séu vissu­lega á mis­mun­andi stigi. Verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar fékk á starfs­tíma sínum, sem lauk 1. apríl, á fjórða tug til­lagna að vind­orku­verum inn á sitt borð. Til sam­an­burðar voru slíkar hug­myndir aðeins tvær í síð­asta áfanga hennar.

Ramma­á­ætlun er stjórn­tæki sem hefur það að mark­miði að meta, með vís­inda­legum, sam­fé­lags­legum og hag­rænum rökum, hvaða svæði sem óskað er eftir að reisa orku­ver á, skuli nýta til slíks og hver skuli vernda. Ágrein­ingur hefur verið uppi, m.a. milli umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins og Orku­stofn­unar, hvort að vind­orku­ver skuli fara í ferli ramma­á­ætl­unar, ferli sem á að taka fá ár en hefur síð­asta tæpa ára­tug­inn, teppst í þing­legri með­ferð. Verk­efn­is­stjórnir hvers áfanga eiga að koma með sitt mat í loka­skýrslu til ráð­herra. Slík skýrsla var síð­ast afhent í ágúst 2016 er verk­efn­is­stjórn 3. áfanga lauk störfum. Á grunni hennar bygg­ist þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem lögð var fyrst fram haustið 2016 á Alþingi en hefur enn ekki verið afgreidd, rúm­lega fjóru og hálfu ári síðar. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra lagði til­lög­una fram á þingi í des­em­ber og er hann þriðji ráð­herr­ann til að leggja sömu til­lög­una fram.

[adspot]

Í umsögn Skipu­lags­stofn­unar um hana í byrjun árs kom fram að í ljósi þess að hún er byggð á gögnum sem aflað var á árunum 2015-2016 sé til­efni til að yfir­fara þá flokkun virkj­un­ar­kosta sem þar er sett fram.

Vegna ágrein­ings um hvort vind­orku­ver eigi að meta innan ramma­á­ætl­unar eða ekki er nú komin upp sú staða að skipu­lags­ferli þeirra hjá sveit­ar­fé­lögum er í ein­hverjum til­vikum hafið. Í drögum að breyt­ingu á lögum um ramma­á­ætlun, sem kynntar voru í upp­hafi árs, er hins vegar lagt til að að til að taka af allan vafa um vind­orku­kosti verði sér­stak­lega kveðið á um þann orku­gjafa í lög­unum og að hug­myndir að vind­orku­verum sem yrðu 10 MW eða meira að afli heyri undir ramma­á­ætlun.

[links]„Íslend­ingar standa á tíma­mótum varð­andi nýt­ingu orku­auð­linda því virkjun vind­orku er að hefj­ast af fullum krafti,“ skrifar for­maður verk­efn­is­stjórnar 4. áfanga ramma­á­ætl­unar, Guðrún Pét­urs­dóttir, í skýrslu hennar sem kom út í lok mars. „Þótt vind­ur­inn sé óþrjót­andi er land undir vind­orku­ver það ekki. Landið er hin tak­mark­aða auð­lind í þessu til­felli.“ Hún bendir á að vind­myllur séu nú um 150 metra háar og fari hækk­andi. Þær séu því „afar áber­andi“ í lands­lagi og sjást víða að. „Vind­orku­ver munu valda miklum breyt­ingum á ásýnd lands­ins ef ekki verður var­lega farið.“

Áhrif vind­orku­vera á fugla eru þekkt. Og á Íslandi er fugla­líf fjöl­skrúð­ugt. Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands vildi hafa vaðið fyrir neðan sig þegar áhug­inn á vind­orkunni var far­inn að aukast í Noregi og víðar og und­ir­búa sig fyrir sömu þróun hér á landi. Í því skyni voru m.a. keyptir sendar til að setja haferni til að kort­leggja helstu far­leiðir þeirra Jón Gunnar Ottósson, fyrr­ver­andi for­stjóri Nátt­úru­fræði­stofn­unar, sagði í ítar­legu við­tali við Kjarnann nýverið að merki­legar nið­ur­stöður væru þegar komnar úr þessum rann­sóknum. Í ljós hafi komið að aðal­far­leið arna milli Húnaflóa og Breiða­fjarðar sé Lax­ár­dals­heiðin. Þar sé nú verið að skipu­leggja tvö vind­orku­ver, „akkúrat í far­leið­inni,” sagði Jón Gunnar. Ernir eru einna við­kvæm­astir af öllum fuglum Íslands fyrir vind­myllum. „Þannig að miðað við þessar upp­lýs­ingar sem við erum að fá núna þá eru þetta ekki góðir staðir fyrir vind­orku­ver“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fuglalíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár