Norskir laxar munu éta jólatré

Norskir vís­inda­menn áætla að um þriðj­ungur alls laxa­fóð­urs geti átt upp­runa sinn í barr­skógum Noregs þegar fram líða stundir. Þannig getur afgangs­af­urð úr timbur­iðn­að­inum komið í stað inn­fluttra soja­af­urða.

Norðmenn eru iðnir við að ota laxi að jarð­ar­búum. Árið 2015 slátr­uðu íslensk fisk­eld­is­fyr­ir­tæki rúmum 3000 tonnum af laxi. Það er jafn­mikið og Noregur pakkar niður og flytur úr landi á einum degi. Norskur lax er uppi­staðan í 14 milljón mál­tíðum á degi hverjum víða um heim. Á hverjum degi!

Norðmenn eru samt rétt i start­hol­unum. Þeir stefna að því að fimm­falda fisk­eld­is­iðn­að­inn á næstu 30 árum. Þó eru þeir enn að klóra sér í hausnum yfir því hvernig þeir eigi eig­in­lega að fóðra allan þennan fisk.

Í dag eru plöntu­af­urðir uppi­staðan í laxa­fóðr­inu, aðal­lega inn­flutt soja­mjöl frá Brasilíu. Það er erfitt að sjá fyrir sér að soja­fram­leiðslan geti auk­ist mikið án þess að enn meira sé gengið á regn­skóga Brasilíu. Þar að auki er erfitt að rétt­læta það að soja­af­urðir sem hægt væri að vinna til mann­eldis, fari frekar í fram­leiðslu á fiski sem ekki er á færi hinna fátæk­ustu og mest mat­ar­þurfi. Ekki er heldur enda­laust hægt að veiða fisk til að fóðra annan fisk.

Hvað á laxinn þá að éta?

Laxinn þarf rétta blöndu af próteinum, fitu, kol­vetnum, vítamínum og stein­efnum, rétt eins og við mann­fólkið. Fram á tíunda ára­tug síð­ustu aldar át norskur eld­is­lax um 90% fiski­mjöl og lýsi. Enda lax í eðli sínu rán­fiskur sem étur að megn­inu til seiði og fiska og því eðli­legt að ala hann á fiskaf­urðum.

Í dag er laxa­fóðrið að tveimur þriðju hlutum plöntu­af­urðir, eins og kom fram að ofan. Soja er prótein­ríkt og kemur því að nokkru leyti í stað fiski­mjöls­ins. Stóra spurn­ingin er: hvaða prótein geta komið í stað­inn fyrir soja­mjölið? Eitthvað sem er auð­velt að nálg­ast, sjálf­bært í fram­leiðslu, og allra helst eitt­hvað sem Norðmenn geta fram­leitt sjálfir, til þess að vera ekki upp á aðrar þjóðir komnir.

Svarið er í bökunarhillunni

Svarið, eins fjar­stætt og það kann að hljóma, er ger. Já, þú last rétt, eins og til dæmis þurr­ger­s­pakk­inn í bök­un­ar­hill­unni í eld­hús­inu. Fullt af prótínum. Sjálfbær fram­leiðsla ef maður hefur aðgang að sykri. Og með sykri á ég ekki endi­lega við hvíta syk­ur­inn í bök­un­ar­hill­unni. Sykrurnar geta alveg eins komið úr... trjátrefjum! Þarna kemur greni­skóg­ur­inn inn í mynd­ina. Hann sprettur eins og ill­gresi í Noregi, svo sann­ar­lega end­ur­nýj­an­leg og van­nýtt auð­lind.

Upp­skriftin að greni­fóðr­inu er nokkurn veg­inn svona. Finndu greni­flísar, gjarnan afskurð úr timb­ur­fram­leiðslu. Sjóddu upp á þeim. Með réttum hita og efna­kok­teil brýt­urðu trjátrefj­arnar niður í lígnín, sellu­lósa og hem­is­ellu­lósa. (Notaðu lígnínið í eitt­hvað annað, hér þurfum við bara sykrurnar.) Bættu við leyni­legri ens­ímblöndu til að “melta” sellu­lósa­súp­una og breyta í auð­vinn­an­legri sykrur. Settu ger­svepp­ina á beit í sykrurnar. Þegar gerið er full­vaxið er bara að safna því saman, þurrka, mala og nota í laxa­fóður. Ger­mjölið getur verið u.þ.b. þriðj­ungur fóð­urs­ins.

Meltingarvandkvæði laxfiska

Fyrstu próf­anir lofa mjög góðu. Við hringdum í Marg­ar­eth Øverland, sem stýrir verk­efn­inu Foods of Norway við háskól­ann í Ås, í nágrenni Oslóar. Háskól­inn er íslenskum búfræð­ingum og skóg­fræð­ingum að góðu kunnur, enda fremsti rann­sókn­ar­há­skóli Noregs á því sviði, auk ann­arra.

Marg­ar­eth segir okkur að þau hafi gert til­raunir með þrjár mis­mun­andi ger­sveppa­teg­undir og þær lofi mjög góðu. “Nær­ing­ar­upp­takan er mjög góð. Laxinn tekur upp um það bil jafn­mikið af ger­sveppa­prótein­inu og af fiski­p­róteini. Það þýðir að lax­inn vex jafn vel af þessu fóðri og af fiski­mjöls­af­urðum.” Eitt af vanda­mál­unum við soja­fóðrið er að það hefur ekki verið nógu nær­ing­ar­ríkt.

Greni­fóðrið leysir líka ýmis vanda­mál sem fylgt hafa soja­fóðr­inu. Laxinn hefur nefni­lega ekki náð að melta soja­fóðrið vand­kvæða­laust, hefur vaxið hægar og fengið þarma­bólgur af því. “Þetta hlýst af svoköll­uðum andnær­ing­ar­efnum,” útskýrir Marg­ar­eth. “Þau eru nátt­úru­leg varn­ar­efni plantn­anna, eig­in­lega til að fæla dýr frá því að borða þær. Þessi efni valda til dæmis bitru bragði eða melt­ingarörð­ug­leikum og langvar­andi bólgum í melt­ing­ar­færum. Þetta eru efni eins og t.d. sarpónín, lektín og jurta­estrógen.” Laxinn sem hefur fengið greni­fóður, þ.e.a.s. fiski­fóður sem er að þriðj­ungi ger­mjöl, á ekki við þessi mein að stríða.

Marg­ar­eth og sam­starfs­að­ilar eru einnig að vinna að þróun þara­fóð­urs. Með líkri aðferð er hægt að vinna úr þar­anum íblönd­un­ar­efni sem er ríkt af stein­efnum og vítamínum. Þó nokkrir aðilar í Noregi hafa sótt um og fengið leyfi til skipu­lagðrar þara­rækt­unar, segir Marg­ar­eth. Það er óleyfi­legt í Noregi að upp­skera villtan þara í því magni sem þarf til iðn­að­ar­fram­leiðslu.

Norskt fiskeldi í harðri sókn

Upp úr 1990 varð norskur lax ein helsta útflutn­ings­vara Norð­manna, ef ekki í krónum talið, þá í sýni­leika í mat­vöru­versl­unum í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Fólk úti í heimi fór að fatta að lax var ekki lengur lúx­usvara á rán­dýru verði, eins og villtur lax hafði alltaf verið. Norskur lax varð vöru­merki og hluti af ímynd Noregs út á við. Nú er verið að færa út kví­arnar, sér­stak­lega til vax­andi mið­stéttar í Asíu.

Kon­ungs­fjöl­skyldan tekur virkan þátt í að mark­aðs­setja norska lax­inn. Í opin­berri heim­sókn í Indónesíu setti krón­prin­sparið Håkon og Mette-Marit upp svuntu og latex­hanska og fram­reiddi norskan lax fyrir áhuga­sama gesti á blaða­manna­fundi. Haraldur Nor­egs­kon­ungur er einnig lunk­inn og áhuga­samur flugu­veiði­maður. (Í fyrra fékk hann einmitt eld­is­lax á öng­ul­inn í veiði­ferð í Norður-Noregi, sem gest­gjöfum hans fannst ákaf­lega vand­ræða­legt.)

Munn­mæla­sögur herma þó að kon­ungs­fjöl­skyldan sé orðin svo leið á að fá lax í hvert skipti sem þau heim­sækja afkima Noregs, að þau séu farin að hvísla því að gest­gjöfum að það megi alveg vera eitt­hvað annað í hátíða­mat­inn. En það er önnur saga.

Sitkalax í búðir um 2025

Marg­ar­eth og félagar standa nú í ströngu við að full­þróa ger­fóðrið og fram­leiðslu­að­ferðir sem anna þeirri eft­ir­spurn sem þau gera ráð fyrir að verði eftir fóðr­inu. Ef allt gengur að óskum má gera ráð fyrir fyrsta sitka­lax­inum í búðir um 2025. Árið 2050 gera þau ráð fyrir að Noregur geti fram­leitt 500.000 tonn af ger­mjöli í fiski­fóður.

Næsta verk­efni er að þróa dýra­fóður úr greni­geri, sem hægt er að nota fyrir svín, hænur og annan búfénað. “Það að vera sjálfum sér nógur um fóð­ur­fram­leiðslu er ekki síst mik­il­vægt fyrir fæðu­ör­yggi Noregs”, segir Marg­ar­eth. “En það er ekki síður mik­il­vægt að þegar við jarð­ar­búar verðum orðin níu millj­ónir, árið 2050, þá séu ekki dýr og fiskar að éta mat sem hefði getað brauð­fætt fólk.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár