Nýtt frumvarp um lækkun bankaskatts afgreitt í ríkisstjórn

Rík­is­stjórn afgreiddi í gær frum­varp um að lækka banka­skatt úr 0,376 pró­sentum í 0,145 pró­sent á árunum 2021 til 2024. Áður hafði staðið til að hefja þá lækkun á næsta ári en sam­dráttur í efna­hags­líf­inu frestaði því.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti í gær í rík­is­stjórn nýtt frum­varp um lækkun á banka­skatti. Samkvæmt því verður hinn sér­staki banka­skattur lækk­aður úr 0,376 pró­sent af heild­ar­skuldum þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem greiða hann í 0,145 pró­sent.

Frum­varpið hafði áður verið lagt fram í apríl síð­ast­liðnum og þegar gengið til efna­hags- og við­skipta­nefndar. Þá átti fyrsta skref lækk­un­ar­innar að taka gildi á næsta ári, 2020.

Þegar fjár­mála­á­ætlun var breytt í júní var hins vegar ákveðið að fresta lækkun banka­skatts­ins um eitt ár. Hann mun því ekki byrja að lækka á næsta ári, heldur árið 2021, og vera komin til fram­kvæmda að öllu leyti árið 2024. Þær breyt­ingar voru gerðar vegna breyttra aðstæðna í íslensku efna­hags­lífi, aðal­lega vegna gjald­þrots WOW air og loðnu­brests.

[adspot]Verði frum­varpið að lögum má ætla að tekjur hins opin­bera lækki um 18 millj­arða króna á árunum 2020 til 2023. Í grein­ar­gerð sem fylgdi upp­runa­lega frum­varp­inu, sem var lagt fram í apríl, sagði að horft væri til þess að lækk­unin á banka­skatti myndi skila sér til almenn­ings í gegnum betri kjör hjá fjár­mála­stofn­unum.

Telja skattinn rýra samkeppnishæfni

Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja, og æðstu stjórn­endur við­skipta­bank­anna, hafa kvartað mikið undan því á und­an­förnum árum að banka­skatt­ur­inn rýrir sam­keppn­is­hæfni þeirra, bæði á inn­an­lands­mark­aði þar sem þeir keppa við líf­eyr­is­sjóði um að veita lands­mönnum hús­næð­is­lán, en ekki síður í alþjóð­legri sam­keppni við erlenda banka sem hafa tryggt sér við­skipta margra stórra íslenskra fyr­ir­tækja sem stunda alþjóð­lega starf­semi á und­an­förnum árum. Þessir aðilar, líf­eyr­is­sjóð­irnir íslensku og bankar frá hinum Norð­ur­lönd­unum, þurfa ekki að greiða banka­skatt og geta því, að sögn íslensku bank­anna, boðið mun skap­legri lána­kjör.

[adspot]Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja fóru meira að segja fram á að það í umsögn sem þau skil­uðu inn til efna­hags- og við­skipta­nefnd að Alþingi ætti að banna líf­eyr­is­sjóðum að lána ein­stak­linga og fyr­ir­tækja og köll­uðu beinar lán­veit­ingar sjóð­anna „skugga­banka­starf­sem­i“. Þessi beiðni var grund­völluð á því að sam­keppn­isum­hverfi bank­anna gagn­vart sjóð­unum væri ekki sann­gjarnt. Alþingi varð ekki við þeirri beiðni.

Í Hvít­bók um fjár­mála­kerfið, sem birt var í des­em­ber í fyrra, var sér­stak­lega fjallað um að það gæti verið æski­legt að breyta skatt­stofni banka­skatts.

Tímaramma breytt vegna samdráttar

Í apríl var svo lagt fram frum­varp þess efnis. Í grein­ar­gerð með því frum­varpi var vitnað til þess að í stjórn­ar­sátt­mála væri vikið að því að unnið verði að frek­ari skil­virkni í fjár­mála­kerf­inu með það að leið­ar­ljósi að lækka kostnað neyt­enda. Nú hefur það frum­varp verið upp­fært í sam­ræmi við nýja fjár­mála­á­ætlun og lækkun á banka­skatti, sem á að lækka tekjur rík­is­sjóðs um 18 millj­arða króna á fjórum árum, mun nú hefj­ast 2021 en ekki á næsta ári. Það þýðir að lækk­unin kemur fyrst til fram­kvæmda á því ári sem þing­kosn­ingar eru næst fyr­ir­hug­aðar.

Íslenska ríkið er stærsti eig­andi fjár­mála­fyr­ir­tækja á Íslandi, og ræður yfir á bil­inu 70 til 80 pró­sent af þeirri þjón­ustu sem í boði er. Ríkið á Íslands­banka að öllu leyti, og ríf­lega 98 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um, sem jafn­framt er stærsti bank­inn á mark­aðn­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár