Allra augu á OPEC-ríkjunum

Olíu­fram­leiðslu­ríkin í OPEC halda árs­fund sinn 30. nóv­em­ber í Vín. Fjár­festar á mark­aði horfa til fund­ar­ins með mik­illi spennu. Fari svo að sam­komu­lag náist um minni fram­leiðslu, gæti olíu­verð rokið upp.

Búist er við því að árs­fundur OPEC ríkj­anna í Vín í lok mán­að­ars­ins verði sögu­legur, þar sem svo gæti farið að sam­komu­lag náist milli ríkj­anna um að draga úr olíu­fram­leiðslu. Ekkert er þó öruggt í þeim efnum, en ein­hver leið­sögn um hvernig fram­leiðslu verður háttað næstu mán­uði og ár, gæti komið fram.

Áhrifa­mesta ríkið innan OPEC er Sádí-­Ar­ab­ía, en til sam­tak­anna til­heyra fjórtán olíu­fram­leiðslu­ríki. Auk Sádí-­Ar­abíu eru það Alsír, Angóla, Ekvador, Gabon, Indónesía, Íran, Írak, Kúveit, Líbía, Katar, Níger­ía, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­in, og Venes­ú­ela. Saman standa ríkin undir meira en 33 pró­sent af heims­fram­leiðsl­unni. Olíu­fram­leiðslu­ríki eins og Brasil­ía, Banda­rík­in, Rúss­land og Nor­egur standa utan OPEC.

Eitt af því sem hefur vakið umtal og for­vitni grein­enda að und­an­förnu, er hvort OPEC-ríkin sendi frá sér ein­hvers konar skila­boð í ljósi þess að Donal Trump var kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna. Einkum og sér í lagi eru það áherslur hans í lofslags­málum sem gætu komið til

Samráð um olíuframleiðslu

Fundur OPEC eru um margt óvenju­legir, þar sem ríkin hafa í reynd með sér sam­ráð á risa­vöxnum mark­aði með olíu, sem síðan hefur mikil og djúp afleidd áhrif á gang efna­hags­mála í heim­inum.

Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur sveifl­ast á bil­inu 47 til 50 Banda­ríkja­dalir á tunnu síð­ast­liðna sex mán­uði eftir að það hækk­aði um ríf­lega helm­ing frá því að það náði lág­marki í jan­úar síð­ast­liðnum. Þá var það komið í 26 Banda­ríkja­dali, eftir að hafa verið rúm­lega ári fyrr í 110 Banda­ríkja­dölum. Und­an­farin tvö ár á olíu­mark­aði hafa því verið mikil rús­sí­ban­areið fyrir olíu­fram­leiðslu­ríki. Mörg þeirra, einkum þau sem voru með veika inn­viði fyrir, hafa farið illa út úr verð­fall­inu, og má sér­stak­lega benda á Brasilíu og Venes­ú­ela í þeim efnum.

Hefur komið sér vel fyrir Íslandi

Þetta mikla verð­fall á olíu hefur hins vegar komið sér vel fyrir mörg önnur ríki eins og Ísland. Dregið hefur úr verð­bólgu­þrýst­ingi erlendis frá, sökkum þessa, og þá hafa útgerð­ar­fyr­ir­tæki og flug­fé­lög notið góðs af því að stór kostn­að­ar­liður í rekstr­inum, olíu­kaup, hefur orðið hag­stæð­ari.

Í nýj­ustu Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands er fund­ur­inn gerður að umtals­efni. „OPEC-ríkin funda á ný í þessum mán­uði en mikil óvissa er um nið­ur­stöðu þess fundar og áhrif hennar á heims­mark­aðs­verð á olíu. Horfur eru á hærra verði en í ágúst og því búist við minni lækkun á þessu ári en þá var áætlað og meiri hækk­unum á næstu árum,“ segir í Pen­inga­málum.

Tunnan af hrá­olíu á Banda­ríkja­mark­aði kostar nú 45 Banda­ríkja­dali og hefur lækkað lít­il­lega í verði und­an­farna daga.

Fylgjast má með þróun bens­ín­verðs á Íslandi á bens­ín­vakt Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár