WSJ: Ferðaþjónustan bjargaði Íslandi en er nú „höfuðverkur“

Stærsta dag­blað Banda­ríkj­anna, Wall Street Journal, fjallar um upp­gang ferða­þjón­ust­unnar og íslenska hag­kerf­is­ins.

Í umfjöllun stærsta dag­blaðs Banda­ríkj­anna, Wall Street Journal, segir í umfjöllun um stöðu efna­hags­mála á Íslandi, að upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar í land­inu hafi bjargað efna­hag lands­ins eftir fjár­málakrepp­una en nú sé greinin orð­inn „höf­uð­verkur“ í efna­hags­legu til­liti.

Mikilli inn­spýt­ingu gjald­eyris með ferða­mönnum hafi fylgt ris krón­unnar og verð­lag í land­inu sé nú orðið veru­lega hátt, í alþjóð­legum sam­an­burði. Will Weiner, banda­rískur ferða­maður, seg­ist hafa fundið fyrir því að kaffi­boll­inn að upp­á­helltu kaffi væri dýr, eða um 5 Banda­ríkja­dalir, eða sem nemur 530 krónum.

Upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar hefur verið ævin­týri lík­astur á und­an­förnum árum og gerði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hann að umtals­efni í bloggskrifum á dög­unum. Reiknað er með því að ríf­lega 2,2 millj­ónir ferða­manna heim­sæki landið á þessu ári, eða jafn­vel meira, en þeir voru 1,8 millj­ónir í fyrra.

Tölur hafa þó sýnt að erlendir ferða­menn eyða ekki eins miklu og þeir gerðu áður, og hefur korta­veltan ekki auk­ist í hlut­falli við fjölgun ferða­manna.

Í grein WSJ segir að þessi mikli vöxtur ferða­þjón­ust­unnar hafi breytt miklu í íslenska efna­hags­línu, og að sterkt gengi krón­unnar hafi gert mörgum öðrum atvinnu­greinum erfitt fyrir. Allt önnur staða sé þó uppi núna en árið 2008, þar sem efna­hags­bólan á þeim tíma var blásin út með lánsfé og ofvexti banka­kerf­ins­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár