Nýr Finnur ráðinn forstjóri Haga

Finnur Oddsson sest í for­stjóra­stól Haga sem Finnur Árnason er nú að standa upp úr eftir 15 ára setu.

Bónus er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni og stærsta dagvöruverslunarkeðja landsins.
Bónus er krúnu­djá­snið í Haga­sam­stæð­unni og stærsta dag­vöru­versl­un­ar­keðja lands­ins. Mynd: Anton Brink

Finnur Oddsson, sem síð­ustu sjö ár hefur verið for­stjóri Origo, tekur við sem for­stjóri smá­söluris­ans Haga af Finni Árnasyni. Greint var frá þess­ari ákvörðun í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í kvöld. Finnur Oddsson er með dokt­ors­próf í atferl­is­fræði frá West Virginia Uni­versity og lauk AMP námið frá IESE í Barcelona. Hann var á árum áður fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands.

Finnur segir í til­kynn­ing­unni að tvennt móti sér­stak­lega umhverfi smá­sölu á okkar tímum, ann­ars vegar hraðar breyt­ingar á hegðun neyt­enda og hins­vegar tækni. „Hvoru tveggja eru sér­stök áhuga­svið hjá mér. Það eru því for­rétt­indi að fá, í sam­starfi við fram­úr­skar­andi hóp starfs­fólks hjá Högum, að móta starf­semi og fram­tíð þessa sögu­fræga for­ystu­fyr­ir­tækis i smá­sölu á Íslandi. Staða Haga er ein­stak­lega góð og það eru spenn­andi tæki­færi framundan.“

[adspot]Erna Gísla­dóttir, stjórn­ar­for­maður Haga, segir á sama stað að um allan heim séu að eiga sér stað nýir tímar í verslun þar sem sam­fé­lags­legir þættir og tækni­fram­farir krefj­ist frum­kvæðis og nýrrar nálg­unar í verslun og við­skiptum. „Við erum sér­lega ánægð að hafa fengið Finn Oddsson til liðs við öfl­ugt teymi hjá Högum og teljum að reynsla hans af stefnu­mótun og rekstri í tækni­geir­anum s.l. ár muni nýt­ast félag­inu vel á þeim áhuga­verðu tímum sem framundan eru.“

Greint var frá því 30. apríl síð­ast­lið­inn að Finnur Árna­son, sem hefur verið for­stjóri smá­söluris­ans Haga frá árinu 2005, hefði óskað eftir því að láta af störf­um. Á sama tíma var sagt frá því að Guð­mundur Mart­eins­son, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri Bónus sem er í eigu Haga um ára­bil, einnig óskað eftir því að hætta. Þeir tveir hafa verið lyk­il­menn í þeim mikla vexti sem Hagar hafa gengið í gegnum á þess­ari öld og hófu báðir störf þar fyrir ald­ar­mót.

Í fjöl­miðlum und­an­farna daga hefur verið greint frá því að starfs­lok þeirra muni kosta Haga um 300 millj­ónir króna.

Hagar reka 46 versl­anir innan fimm smá­sölu­fyr­ir­tækja og tveggja vöru­húsa. Þá rekur félagið 28 Olís­stöðvar um land allt auk 41 ÓB-­stöð. Meg­in­starf­semi Haga er á sviði mat­vöru en innan þess eru tvær af stærstu versl­un­ar­keðjum lands­ins, Bónus og Hag­kaup, svo og stoðstarf­semi á sviði inn­kaupa og dreif­ing­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár