Eitt af því sem feður þessa lands þurfa að sætta sig við er ofbeldi gagnvart barni sínu. Ofbeldið felst í að móðir tálmar umgengni til að koma í veg fyrir samvistir barns og föður. Barn á rétt á samvistum við báða foreldra sína. Barn á rétt á að njóta leiðsagnar föður jafnt og móður. Barn á rétt á að lesa fyrir föður sinn og móður. Barn á rétt á að njóta ástar og umhyggju föður. Barn á rétt á að gráta við öxl föður sem og móður. Barn á rétt á að njóta samvista við föður sinn sumar, vetur, vor og haust sem og um hátíðir.
Það að mæður telji sig rétthærri og geti stjórnað hvort og þá hvernig barn nýtur samvista við föður sinn er gegnumsýrt í samfélaginu. Sorglegra er að samfélagið og ekki síður lagabókstafurinn verðlaunar þessa ofbeldisseggi, á kostnað barns. Mæður velja að nota börn eins og hvert annað vopn vitandi að þær hitta viðkvæmasta punkt föður, barnið. Hnífsoddur beint í hjartastað.
Konur fóru mikinn með átakinu ,,#metoo“ og höfnuðu ofbeldi, órétti og kynferðislegri áreitni. Innan um allar þessar konur leynast þær sem beita barn ofbeldi í formi tálmunar. AF hverju spyr ég, sem móðir og amma, láta konur eins og ekkert sé að í málaflokknum þegar nánast hver fullorðin manneskja í landinu þekkir til tálmunarmáls. AF hverju hundsa konur ofbeldi kynsystra sinni á þennan hátt. AF hverju rísa alþingismenn ekki upp, allir sem einn, og hafna ofbeldinu sem börn þurfa að búa við. AF hverju hafa sýslumenn ekki tekið til í málaflokknum og þeim þáttum sem snúa að börnum sem lenda á milli í deilumála foreldra sinna. AF hverju líðst konu að kæra föður um alls kyns áreiti og kynferðilega misnotkun á barni til að ná sér niðri á honum. AF hverju taka dómstólarnir sig ekki á og flýta málum sem snerta börn. Af hverju þarf forsjárdeila að taka mörg ár...AF hverju, AF hverju!
Kæru þingmenn, mæður og ömmur stöðvum ofbeldið.
Tálmunarmenning er svo algeng hér á landi að móður og ömmuhjartað finnur til. Tálmunarmenning lifir nánast óáreitt í reglum og lögum af því of fáir þingmenn þora að taka á málinu. Tálmunarmenning lifir af því margir samþykkja slíkt ofbeldi. Tálmunarmenningu á að uppræta með góðu eða illu, mér þykir það einfalt. Tálmun er heimilisofbeldi sem móðir beitir í langflestum tilfellum. Tálmun er ofríki sem á ekki að launa.
Ég skora á þingmenn að taka á honum stóra sínum og hjálpa börnum að komast undan slíku ofbeldi. Ekki vantar viljann eftir #metoo skriðuna þegar konur eru annars vegar. Hver passar upp á börnin í ofbeldisaðstæðum? Eru það þið kæru þingmenn.
Höfundur er grunnskólakennari, móðir og amma.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir