Væri gott ef nágrannasveitafélögin settu meiri fjármuni í félagslegt húsnæði

Eyþór Arnalds vill frekar ein­beita sér að því að hjálpa fólki úr þeirri stöðu að þurfa að þiggja félags­lega aðstoð en að setja meira fé í mála­flokk­inn. Hann segir það ekki mark­mið að fólk fest­ist í félags­legu hús­næði.

Það væri mjög gott ef þau myndu veita meiri fjár­munum í þetta, en aðal­málið er hvað gerum við við pen­ing­anna,“ segir Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík, þegar hann er spurður hvort að honum finn­ist að nágranna­sveita­fé­lög höf­uð­borg­ar­innar axli meiri ábyrgð á félags­legri þjón­ustu við íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Eyþór var gestur síð­asta sjón­varps­þáttar Kjarnans. Hægt er að sjá stiklu úr þætti vik­unnar í spil­ar­anum hér að ofan.

Eyþór segir að hlut­verk félags­lega kerf­is­ins eigi að vera númer eitt að hjálpa fólki aftur út í þjóð­fé­lagið. „Það er ekki end­an­legt mark­mið að fólk sé fast inni í félags­lega kerf­inu. Mér finnst stjórn­völd í Reykja­vík hafa staðið sig ágæt­lega í því að setja fjár­muni í þennan mála­flokk en það hefur ekki tek­ist að sinna fólk­inu þannig að það kom­ist aftur út. Það er eitt af því sem ég vil leggja áherslu á. Að fólk fái aftur tæki­færi til að kom­ast út úr þessu. Ekki að það séu fátækra­gildur sem geti orðið og að fólk sé fast inni í félags­legu hús­næði eða öðru. Í sumum til­vikum viljum við hjálpa fólki að eign­ast hús­næðið sem það býr í. Ég hef talað við bæði öryrkja og þá sem búa í félags­legum íbúðum, og heyri að þeir búa við mikið óör­yggi frá Reykja­vík­ur­borg. Þó að mikið fjár­magn fari inn í þetta þá er óör­yggi til dæmis varð­andi leigu­samn­ing­anna. Þeir hækka fyr­ir­varð­ar­lítið og það er ekk­ert öryggi í þessum leigu­samn­ingum.

Reykjavík ber upp velferðarkerfi höfuðborgarsvæðisins

Um síð­ustu ára­mót átti Reykja­vík­ur­borg 2.445 félags­legar íbúð­ir. Þeim var fjölgað um á annað hund­rað í fyrra. Til sam­an­burðar áttu þau nágranna­sveita­fé­lög höf­uð­borg­ar­innar sem koma þar næst, Kópa­vogur (436 félags­legar íbúð­ir) og Hafn­ar­fjörður (245 félags­legar íbúð­ir) sam­tals 681 félags­lega íbúð í lok árs 2016. Í Garðabæ voru á þeim tíma 35 slík­ar, 30 í Mos­fellsbæ og 16 á Sel­tjarn­ar­nesi.

Í Reykja­vík voru 19,7 félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa í lok árs 2016 á meðan að þær voru 2,3 á hverja þús­und íbúa í Garðabæ, 3,6 á hverja þús­und íbúa Sel­tjarn­ar­ness og 4,5 á hverja þús­und íbúa í Mos­fellsbæ. Þessar tölur komu fram í könnun sem vara­sjóður hús­næð­is­mála lét gera á stöð­unni. Nið­ur­stöður hennar voru birtar í ágúst í fyrra. Þar sagði einnig að ef fram­boð ná­granna­sveit­ar­fé­lag­anna fimm ætti að vera sam­bæri­legt og það er í Reykja­vík, miðað við stöð­una í lok árs 2016, þyrfti að fjölga félags­legum leigu­í­búðum þeirra um 1.080.

Fjöldi þeirra sem þáði félags­lega aðstoð í Reykja­vík hefur dreg­ist umtals­vert saman á und­an­förnum árum. Árið 2013 þáðu 4.274 fjöl­skyldur slíka en árið 2016 var sá fjöldi 3.170. Þá voru þrjár af hverjum fjórum fjöl­skyldum sem þáðu fjár­hags­að­stoð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu búsettar í Reykja­vík. Íbúar Reykja­víkur eru 57 pró­sent af íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Í fylgi­gögnum með nýbirtum árs­reikn­ingi fyrir árið 2017 kemur fram að fjár­hags­að­stoðar og hús­næð­is­stuðn­ings Reykja­vík­ur­borgar hafi áfram lækkað á því ári.

Hægt er að horfa á nýjasta þátt Kjarnans í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár