Er kjöt ræktað á tilraunastofu framtíðin?

Gæti dregið gríð­ar­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá land­bún­aði. Þegar hefur tek­ist að búa til ham­borg­ara á til­rauna­stofu. Fyr­ir­tæki lofa kjúklinga­kjöti á markað fyrir árs­lok.

Rækta kjöt á tilraunastofum
Rækta kjöt á til­rauna­stofum Til­raunir með kjöt­ræktun hafa skilað umtals­verðum árangri. Mynd: Shutterstock

Í umræð­unni um það hvernig við getum tak­markað hlýnun jarðar kemur matar­æði oft við sögu. Fjöldi rann­sókna hafa sýnt fram á að fram­leiðsla dýra­af­urða hefur gríð­ar­stórt kolefn­is­fót­spor sem ekki er sjálf­bært til fram­búðar sam­hliða fjölgun mann­kyns­ins.

Draga þarf úr neyslu dýraafurða

Á síð­ustu árum hafa sífellt fleiri rann­sóknir birst sem hafa beint spjótum sínum að þessum vanda. Nú síð­ast var það lofts­lags­skýrsla Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem ein af meg­in­ráð­legg­ingum höf­unda var að draga þyrfti mark­visst úr neyslu dýra­af­urða til að sporna gegn lofts­lags­breyt­ingum.

Það eru þó ekki allir til­búnir að leggja kjöt­neysl­una á hill­una fyrir fullt og allt. Með þetta í huga vinna nokkur fyr­ir­tæki að lausn sem hugsuð er sem stað­geng­ill kjöts af slátr­uðum dýrum: kjöt ræktað á til­rauna­stofu.

Kjötneysla hefur aukist

Kjöt var áður fyrr mun­að­ar­vara á mörgum svæðum heims og er það í raun enn víðs vegar. Með vax­andi inn­komu heim­ila og lækk­uðu verði hefur þetta breyst nokkuð hratt. Mest hefur breyt­ingin orðið í Austur-Asíu þar sem kjöt­neysla var 8,7 kíló á mann á ári á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Þrjátíu árum seinna var hún orðin 37,7 kíló­grömm, sem er aukn­ing upp á 330 pró­sent. Það gefur auga leið að aukin neysla krefst auk­innar fram­leiðslu á kjöti og við höfum nú þegar varla undan að finna land­svæði fyrir ræktun dýra til mann­eldis.

Flókið ferli

Árið 2013 tókst fyrst að rækta ham­borg­ara á til­rauna­stofu í Þýska­landi. Sá ham­borg­ari kost­aði á sínum tíma um 30 millj­ónir í ræktun. Með fram­förum á þessu sviði hefur tek­ist að draga tals­vert úr fram­leiðslu­kostn­aði og kostar einn borg­ari í dag um 1.300 krónur.

Auk kostn­aðar við ræktun á slíku kjöti er ferlið við rækt­un­ina tölu­vert flókið. Stofn­frumur  eða hnoða­tróð­frumur (for­verar beina­grinda­vöðva­frumna) eru yfir­leitt not­aðar til að rækta kjötið. Frumunum er komið fyrir á nær­ing­ar­ríku æti þar sem það er ræktað í lagi af frumum sem hægt er að búa til eins konar hakk úr.

Það sem hefur reynst hvað erf­ið­ast í ferl­inu er að fá frum­urnar til að mynda þrí­víðan strúktúr líkt og vöðva í dýri. Vöðvar dýra hafa ákveðna sam­setn­ingu fitu, vöðva og sina sem ekki hefur verið hægt að end­ur­skapa með góðu móti á til­rauna­stofu. Fyr­ir­tæki í þessum geira vinna hörðum höndum að því að finna lausnir á þeim vanda svo loka­af­urðin sé sem lík­ust því sem fólk á að venj­ast.

Umhverfisvænni lausn

Talið er að kjöt ræktað á til­rauna­stofum geti dregið úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá land­bún­aði um 78–96 pró­sent. Það er einnig aug­ljóst að land­notkun við slíka fram­leiðslu væri nær engin miðað við dýra­eldi og á það sama við um vatns­notkun. Þeir sem hafa gagn­rýnt tækn­ina hafa aftur á móti bent á að til að gera kjöt­ræktun að veru­leika fyrir heims­byggð­ina muni þurfa til mikla orku. Ekki er enn vitað hver orku­notk­unin fyrir slíka fram­leiðslu yrði en þegar heild­ar­myndin er skoðuð eru flestir sam­mála um það að heild­ar­um­hverf­is­á­hrif slíkrar fram­leiðslu væri minni en með land­bún­aði eins og hann þekk­ist í dag.

Á matseðlum í lok árs

Þótt það hljómi kannski fjar­lægt er ekki svo langt í það að kjöt ræktað á þennan hátt verði raun­veru­legur mögu­leiki fyrir neyt­endur. Samkvæmt for­stjóra banda­ríska fyr­ir­tæk­is­ins Just verður kjúklingur frá fyr­ir­tæk­inu á mat­seðlum nokk­urra veit­inga­staða í lok árs­ins 2018. Mat­væla­reglu­gerðir flækja þó málið þar sem ekki hefur verið skapað reglu­verk utan um vörur sem þessar. Fyr­ir­tækið leitar því utan land­stein­anna, til Evrópu og Asíu, til að finna mark­aði til að prófa vör­una.

Þrátt fyrir kosti sína er spurn­ingin á end­anum alltaf sú hvort neyt­endur séu til­búnir að skipta út kjöti af slátr­uðum dýrum fyrir kjöt sem ræktað er á til­rauna­stofu.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár