Bjarni: Komið að vatnaskilum

Staða rík­is­sjóðs er sterk um þessar mundir, og segir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að það skipti sköpum í breyttu árferði.

„Komið er að vatna­skilum í efna­hags­líf­inu eftir ein­stak­lega þrótt­mik­inn og langan upp­gangs­tíma með miklum tekju­auka heim­ila, fyr­ir­tækja og rík­is­sjóðs. Jákvæð afkoma rík­is­sjóðs árið 2018 end­ur­speglar styrk hag­kerf­is­ins þrátt fyrir að tekið hafi að halla undan fæti á síð­ari hluta árs­ins.“

Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í til­kynn­ingu vegna upp­gjör rík­is­s­reikn­ings, en hann hefur nú verið birtur og sendur Alþingi.

Samkvæmt rík­is­reikn­ingi var rekstr­ar­af­koman jákvæð um 84 millj­arða króna til sam­an­burðar við 39 millj­arða afgang árið 2017. Tekjur námu sam­tals 828 millj­örðum og rekstr­ar­gjöld 780 millj­örðum. Hrein fjár­magns­gjöld voru nei­kvæð um 56 millj­arða en hlut­deild í afkomu félaga í eigu rík­is­ins jákvæð um 91 millj­arð.

„Und­an­farin ár hafa ein­kennst af nokk­urri aukn­ingu útgjalda í takt við auknar tekjur og ekki síst lækk­andi vaxta­byrði rík­is­sjóðs. Með skulda­lækkun og end­ur­fjár­mögnun lána á hag­stæð­ari kjörum hefur við­náms­þróttur rík­is­fjár­mál­anna verið auk­inn til muna sem kemur að góðum notum nú þegar hægir á hag­vexti,“ segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um nið­ur­stöður rík­is­reikn­ings.

Rík­is­reikn­ingur 2018 er nú birtur í annað sinn í sam­ræmi við ákvæði laga um opin­ber fjár­mál. Unnið er að inn­leið­ingu nýrra reikn­ings­skila eftir þriggja ára áætlun sem gert er ráð fyrir að verði að fullu komin til fram­kvæmda við fram­lagn­ingu rík­is­reikn­ings 2019, segir í til­kynn­ingu.

Heild­ar­eignir í árs­lok 2018 eru 2.224 millj­örðum króna., skuldir 1.611 millj­arði og eigið fé 613 millj­örðum króna sem er hækkun um 117 millj­arða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár