Birkir Hólm Guðnason nýr forstjóri Samskipa

Pálmar Óli Magn­ús­son lætur af störfum sem for­stjóri Samskipa og Birkir Hólm Guðnason tekur við.

Birkir Hólm Guðnason
Birkir Hólm Guðnason Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn Samskipa hefur ráðið Birki Hólm Guðnason sem for­stjóra Samskipa hf. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Áður starf­aði Birkir í 18 ár hjá Icelandair, þar af 6 ár á erlendum mörk­uðum, en hann var fram­kvæmda­stjóri félags­ins frá 2008.

Pálmar Óli Magn­ús­son lætur af störfum að eigin ósk og verður við­loð­andi félagið við inn­leið­ingu nýs sigl­inga­kerfis Samskipa auk þess að vera Birki innan handar á meðan hann kemur sér fyrir í nýju starfi, segir í til­kynn­ing­unni.

„Við höfum nýlega kynnt nýtt sigl­inga­kerfi til að sinna íslenska mark­aðnum enn betur. Með breyt­ing­unum stór­aukum við flutn­ings­getu félags­ins, bætum áreið­an­leika þjón­ust­unnar og eflum. Við ætlum okkur að spila öfl­ugan sókn­ar­bolta og auka mark­aðs­hlut­deild Samskipa. Pálmari erum við þakk­lát fyrir sam­starfið síð­ast­liðin ár og fyrir fram­lag hans til félags­ins. Birki býð ég jafn­framt vel­kom­inn. Ég þekki hann vel og veit að við erum heppin að fá hann með okkur í lið,“ segir Ásbjörn Gíslason nýr stjórn­ar­for­maður Samskipa hf.

Birkir segir að um spenn­andi tæki­færi sé að ræða fyrir sig. „Ég hef mikla reynslu af rekstr­ar­um­hverfi fyr­ir­tækis sem starfar á alþjóð­legum mark­aði og fyrir mér eru sömu lög­mál að verki í rekstri þess­ara fyr­ir­tækja. Annars vegar erum við að tala um sigl­inga­kerfi og hins vegar leiða­kerfi. Vinnan snýst að miklu leyti um að veita góða þjón­ustu, áreið­an­leika og aðgengi­leika á hag­kvæman máta og þar sé ég spenn­andi tæki­færi fyrir okkar við­skipta­vini. „Together we make things happen,“ er slag­orð Samskipa og ég finn mig vel í því og hlakka til sam­starfs­ins. Með bak­land í stóru alþjóð­legu fyr­ir­tæki höfum við allt sem þarf til að sækja fram af miklu afli og það verður spenn­andi að vera hluti af þeim vexti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár