Mynd: Birtíngur

Lögreglan logar

Umdeildir stjórn­un­ar­hættir nýs lög­reglu­stjóra og síend­ur­teknar stöðu­veit­ingar án aug­lýs­inga hafa valdið ólgu og van­líðan meðal starfs­fólks lög­reglu­emb­ætt­is­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Gríð­ar­legrar óánægju gætir innan lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna starfs­hátta Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra og Öldu Hrannar Jóhanns­dóttur aðal­lög­fræð­ings emb­ætt­is­ins. Á meðal þess sem veldur starfs­mönnum emb­ætt­is­ins van­líðan eru umdeildir stjórn­un­ar­hættir lög­reglu­stjór­ans, en í þessu sam­hengi nefna lög­reglu­menn bræðisköst, und­ir­róður, nið­ur­lægj­andi fram­komu og sam­ráðs­leysi. „Ég myndi ekki ganga svo langt að kalla það ein­elti, en þarna er samt ákveðið mynstur sem hlýtur að falla undir ein­elt­istil­burði,“ segir einn af heim­ild­ar­mönnum Stund­ar­innar en nokkrir starfs­menn hyggj­ast leita til Vinnu­eft­ir­lits­ins ef ástandið batnar ekki. 

Um tutt­ugu starfs­menn lög­regl­unnar hafa leitað til Lands­sam­bands lög­reglu­manna auk þess sem sjö starfs­menn, meðal ann­ars stjórn­endur, hafa kvartað til inn­an­rík­is­ráð­herra og fundað í ráðu­neyt­inu um stöðu mála. Jafn­framt hefur lands­sam­bandið sent umboðs­manni Alþingis bréf þar sem hann er beð­inn um að rann­saka hvort ítrek­aðar stöðu­veit­ingar án aug­lýs­inga stand­ist lög og sam­ræm­ist vönd­uðum stjórn­sýslu­háttum.

Innan ákæru­deildar lög­reglu bein­ist óánægjan ekki síst að Öldu Hrönn Jóhanns­dóttur, aðal­lög­fræð­ingi sem var aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri um tíma. Því er meðal ann­ars haldið fram að hún skipti sér meira af störfum ákæru­sviða og ein­stökum málum en eðli­legt geti talist í ljósi þess að hún fer ekki lengur með eig­in­legt ákæru­vald sam­kvæmt saka­mála­lögum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdatafl í lögreglunni

FréttirValdatafl í lögreglunni

Rann­sóknir fíkni­efna­mála í lama­sessi og mið­læga deildin sögð „gjör­sam­lega í molum“

Lítið er um frum­kvæð­is­rann­sóknir og lög­reglan ræður ekki lengur við umfangs­mikil fíkni­efna­mál. „Óstarf­hæft“ og „hand­ó­nýtt batt­erí“ eru dæmi um ein­kunnir sem lög­reglu­menn gefa vinnu­staðnum. Yfir­maður mið­lægu deild­ar­innar hættir og hverfur aftur til fyrri starfa hjá sér­sveit­inni.

21 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár