Ríkisstjórn Trump: Handhafar nýrra tíma

Hverjir eru þeir ráð­herrar í nýrri rík­is­stjórn Trump sem munu hafa mest áhrif utan Banda­ríkj­anna og þar af leið­andi á Ísland?

Eitt helsta vald for­seta Banda­ríkj­anna felst í skipun hans í ráð­herra­emb­ætti. Verðandi for­seti til­nefnir ráð­herra­efni sem öld­unga­deild Banda­ríkja­þings svo sam­þykkir eða hafnar í kosn­ingum. Áður en kosn­ing getur farið fram þurfa ráð­herra­efnin að sitja fyrir svörum hjá nefndum er fara með mál­efni við­kom­andi ráðu­neyta. Fjár­mála­nefnd yfir­heyrir fjár­mála­ráð­herra­efnið, utan­rík­is­ráð­herra svarar spurn­ingum utan­rík­is­nefndar og svo koll af kolli. Und­an­farnar vikur hafa ráð­herra­efni Trump gengið í gengum þetta ferli og brátt mun það end­an­lega koma í ljós hverjir munu skipa fyrstu rík­is­stjórn Trump.

Það hefur ekki gerst síðan í stjórn­ar­tíð George H. W. Bush að öld­unga­deildin hafi hafnað ráð­herra­efni. Hins vegar er ekki óal­gengt að verð­andi for­seta dragi til­nefn­ingu til baka, ef fyr­ir­séð er að þingið muni hafna við­kom­andi í kosn­ingu. Til að mynda dró Barack Obama þrjár til­nefn­ingar til baka sökum gagn­rýni og hneyksl­is­mála og George W. Bush hætti tvisvar við til­nefn­ingu af sömu ástæðum. Metið á þó Bill Clinton, sem fimm sinnum neydd­ist til að skipta út ráð­herra­efnum.

Þrátt fyrir að Trump taki við emb­ætti sem óvin­sæl­asti for­seti í seinni tíð, þykir ólík­legt að gerðar verði miklar manna­breyt­ingar á ráð­herra­efnum hans því að Repúblikana­flokk­ur­inn hefur meiri­hluta í öld­unga­deild þings­ins.

Ríkisstjórn hinna ríku

Viðhorf Trump gagn­vart konum hefur oft verið gagn­rýnt og má auð­veld­lega yfir­færa þessa gagn­rýni á ráð­herra­til­nefn­ingar hans. Í hópnum eru aðeins þrjár konur þær Elaine Chao sem til­nefnd er í emb­ætti sam­göngu­mála­ráð­herra, Linda McMahon sem á að sjá um mál­efni smærri fyr­ir­tækja og Betsy DeVos sem stendur til að verði mennta­mála­ráð­herra.

Minni­hluta­hópar fá einnig fáa full­trúa í valda­mestu rík­is­stjórn heims. Aðeins tveir svartir ráð­herrar munu sitja í rík­is­stjórn Trump og það hefur ekki gerst síðan í stjórn­ar­tíð Jimmy Carter að ekk­ert ráð­herra­efni sé af suð­ur­am­er­ískum upp­runa.

Hvað áhuga­verð­ast er þó lík­lega hversu auðug ráð­herra­efni Trump eru. Fyrirséð er um að aldrei í sögun Banda­ríkj­anna hafi fjár­sterk­ari ein­stak­lingar setið í rík­is­stjórn eins og í stjórn fer­tug­asta og fimmta for­seta lands­ins. Samkvæmt Washington Post er sam­eig­in­legur auður ráð­herra­efn­anna met­inn á um 5 millj­arðar doll­ara sem er um 80 pró­sent meira en frá­far­andi rík­is­stjórn Obama hafði yfir að ráða.

„Ég vil ein­stak­linga sem hafa skapað sér for­múu,“ sagði Trump um til­nefn­ing­arnar.

Það gefur að skilja að ráð­herra­emb­ættin þykja mis­mik­il­væg og stýra mála­flokkum sem snerta heims­byggð­ina mis­mikið. Kjarninn ákvað að skoða nánar þrjú ráðu­neyti sem munu að hafa hvað mest áhrif utan Banda­ríkj­anna og þ.a.l. á Ísland. Þetta eru utan­ríkis-, umhverfis- og varn­ar­mála­ráðu­neytið.

Rex Tillerson

utanríkisráðherra

Einungis 60 pró­sent ráð­herra­efna Trump hafa áður sinnt opin­beru emb­ætti. Verðandi utan­rík­is­ráð­herra, Rex Tiller­son, er einn þeirra sem hafa enga reynslu í þeim efnum. Tiller­son kemur úr einka­geir­anum og er verk­fræð­ingur að mennt. Árið 1975 hóf hann störf hjá stærsta olíu­fyr­ir­tæki heims Exxon Mobil og síðan 2006 hefur hann starfað sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Til­nefn­ingin hefur sætt gagn­rýni sökum reynslu­leysis hans af stjórn­sýslu en Trump hefur varist þeim gagn­rýn­is­röddum með því að kalla ráð­herra­efnið við­skipta­jöfur og „heimsklassa leik­mann“. Tiller­son situr í 25. sæti á lista Forbes yfir valda­mestu menn heims og lík­legt er að til­nefn­ingin valdi von­brigðum hjá þeim sem von­uð­ust til að Trump myndi „þurrka upp mýr­ina“ og draga úr áhrifum stór­fyr­ir­tækja á rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna.

Þeim sem finnst tónn Trump í garð Vladimir Putin helst til of mildur hafa ekki síst áhyggur af því að Tiller­son taki við utan­rík­is­málum Banda­ríkj­anna. Sem for­stjóri Exxon Mobil hefur hann myndað sterk per­sónu­leg tengsl við Putín og árið 2013 var Tiller­son veitt vin­áttu­orða Rúss­lands sem er mesti heiður sem útlendum rík­is­borg­ara getur hlotn­ast í Rúss­landi. Tiller­son hefur verið mót­fall­inn við­skipta­þving­unum í garð Rússa og árið 2011 und­ir­rit­aði hann einn stærsta samn­ing sem gerður hefur verið um olíu­vinnslu á Norð­ur­heim­skaut­inu.

Tiller­son er einnig náinn vinur hins dul­ar­fulla Igor Sechin, for­stjóra rúss­neska rík­is­ol­íu­fyr­ir­tæk­is­ins Rosneft. Um ára­bil hefur Sechin, sem er að mörgum tal­inn næst valda­mesti maður Rúss­lands, verið hægri hönd Pútíns. Sechin hefur náin tengsl við rúss­nesku leyni­þjón­ust­una FSB og í gegnum tíð­ina hefur hann nýtt sér þau tengsl til að losa sig við bæði keppi­nauta á við­skipta­svið­inu og póli­tíska and­stæð­inga. Má þar helst nefna Mikhail Khodor­kov­sky, fyrrum rík­asta mann Rúss­lands, sem situr nú í sjálf­skip­aðri útlegð í Sviss. Árið 2003 var Khodor­kov­sky dæmdur í níu ára fang­elsi vegna ásakanna um fjár- og skatt­svik. Sá dómur hefur verið harð­lega gagn­rýndur af mann­rétt­inda­sam­tökum og erlendum leið­togum, þar á meðal Barack Obama. Vegna aðkomu Sechin að borg­ara­stríð­inu í Úkraínu hafa Banda­ríkin beitt hann við­skipta­þving­unum en sökum vin­áttu hans við Tiller­son þykir ekki ólík­legt að þeim verði aflétt á næst­unni.

Eitt sem hefur ein­kennt ráð­herra­efni Trump er hversu oft skoð­anir þeirra eru á skjön við kosn­inga­lof­orð for­set­ans. Tiller­son hefur lengi talað fyrir frí­verslun, tolla­banda­lögum og við­skipta­samn­ingum og hefur lýst yfir stuðn­ingi við TPP-samn­ing­inn. Trump hefur hins vegar eins og kunn­ugt er kennt frí­versl­un­ar­samn­ingum á borð við NAFTA um fækkun starfa og í nóv­em­ber s.l. til­kynnti hann að sitt fyrsta verk í emb­ætti yrði að binda enda á við­ræður um TPP-samn­ing­inn.

Átjánda jan­úar síð­ast­lið­inn sat Tiller­son fyrir svörum hjá utan­rík­is­nefnd öld­unga­þings­ins í hátt í níu klukku­stundir. Eins og vænta mátti bar Rússland, Kína og Íslamska ríkið helst á góma í þeim fyr­ir­spurnum. Tiller­son var her­skárri í garð Rúss­lands en við hefði mátt búast miðað við tengsl hans við landið. Hann kvaðst ekki trúa því að Banda­ríkin og Rússland gætu nokkurn tíman orðið banda­menn slíkur væri mun­ur­inn á sið­ferð­is­gildum þjóð­anna. Hann neit­aði þó að ganga svo langt að kalla aðgerðir Rússa í Sýrlandi stríðs­glæpi og taldi sig ekki búa fyrir nægum upp­lýs­ingum til að geta tjáð sig um þann fjölda blaða­manna sem hafa verið myrtir í Rúss­landi á und­an­förnum árum.

Þrátt fyrir að hafa verið for­stjóri stærsta olíu­fyr­ir­tækis heims geta umhverf­is­vernd­ar­sinnar huggað sig við það að hann sem mun sitja í samn­inga­nefndum vegna umhverf­is­mála hefur opin­ber­lega við­ur­kennt til­vist lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum. Hann hefur hins vegar haldið því fram að ómögu­legt sé að spá fyrir um afleið­ingar lofts­lags­breyt­ing­anna og því sé það vand­kvæðum bundið að grípa til aðgerða til að stemma stigu við þeim.

Tiller­son er einnig ósam­mála verð­andi yfir­manni sínum þegar kemur að kjarn­orku­vopnum. Hann tjáði utan­rík­is­nefnd­inni að hann væri ósam­mála ummælum Trump um að Banda­ríkin ættu að aðstoða vin­veittar þjóðir eins og Japan að koma sér upp kjarn­orku­vopnum. Hann hélt því einnig fram að skyn­sam­leg­ast væri að fara ítar­lega yfir nýgerðan samn­ing um kjarn­orku­mál við Íran áður en tekin yrði ákvörðun um hvort skyldi rifta honum eður ei. Trump hefur hins vegar heitið því að binda enda á sam­komu­lagið sem fyrst.

Eins og með svo margt varð­andi stjórn­ar­stefnu Trump, þá er erfitt að segja til um hvernig Tiller­son mun sinna emb­ætti sínu. John Kerry, frá­far­andi utan­rík­is­ráð­herra, hafði sinnt for­mennsku utan­rík­is­nefndar öld­unga­þings­ins í fjögur ár áður en hann tók við af Hillary Clinton árið 2013 og var þá þegar þekkt stærð í Washington. Augljóst þykir þó að vænta má tölu­verðra áherslu­breyt­inga á utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna eftir valda­töku Trumps.

Scott Pruitt

umhverfismálaráðherra

„Jörð kallar Pruitt,“ var fyr­ir­sögn greinar sem birt­ist í The New Yorker þann 19 jan­úar. Og ekki að ástæðu­lausu. Pruitt er það ráð­herra­efni Trump sem hefur orkað hvað mest tví­mælis. Pruitt hefur haldið því fram að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum séu gabb og að hann muni binda enda á, „akti­visma” umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. Pruitt hefur líka dregið í efa skað­semi kvika­silf­urs- og svifryks­meng­unar.

Það kom mörgum spánskt fyrir sjónir þegar Trump til­nefndi Pruitt til umhverf­is­ráð­herra. Hann hefur, ólíkt frá­far­andi umhverf­is­ráð­herra Gina McCarthy, hvorki menntun né reynslu sem tengj­ast mála­flokkum ráðu­neyt­is­ins. Pruitt er lög­fræði­mennt­aður og starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri hafna­boltaliðs­ins Oklahoma RedHawks áður en hann tók við emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara Oklahoma árið 2011. Í því starfi hefur Pruitt þó haft tölu­verð afskipti af umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Hann hefur höfðað fjölda mál­sókna á hendur ráðu­neyt­inu og reynt að stöðva reglu­gerðir er varða allt frá umhverf­is­stöðlum orku­vera til laga um hreint drykkj­ar­vatn. Þess ber að geta að hæsti­réttur Banda­ríkj­anna hafn­aði öllum þessum mál­sóknum.

Í tíð sinni sem rík­is­sak­sókn­ari í Oklahoma þáði Pruitt styrki frá orku­iðn­að­inum sem námu allt að 300 þús­und doll­urum. Slíkar styrk­veit­ingar eru í sjálfu sér ekki ólög­legar, þar sem rík­is­sak­sókn­arar eru kjörnir full­túrar, en fjöl­miðlar vestra hafa gagn­rýnt þær. Sér í lagi vegna þess að hans fyrsta verk í emb­ætti var að leggja niður deild sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins sem sá um að lög­sækja vegna brota á umhverf­is­lögum.

Pruitt sat fyrir svörum hjá umhverf­is­nefnd öld­unga­þings­ins þann 18. jan­úar og er óhætt að segja að sú yfir­heyrsla hafi verið áhuga­verð. „Mínar per­sónu­legu skoð­anir á lofts­lags­breyt­ingum skipta ekki máli í þessu sam­hengi,” var svar Pruitt við spurn­ingu Bernie Sanders um hvort hæft væri að maður sem heldur því fram að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum séu ekk­ert nema gabb tæki við emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Viðbrög Sanders létu ekki á sér standa: „Þú munt ekki fá mitt atkvæði.”

Það liggur í augum uppi að ómögu­legt verður að stemma stigu við lofts­lags­breyt­ingum án aðkomu Banda­ríkj­anna. Ekkert land mengar meira miðað við höfða­tölu og því boðar ekki gott að mögu­lega verði næsti umhverf­is­ráð­herra lands­ins maður sem stendur í þeirri trú að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum séu gabb.

James Mattis

varnarmálaráðherra

Ólíkt þeim Tiller­son og Pruitt, þá býr varn­ar­mála­ráð­herra­efni Trump, James Mattis, yfir mik­illi reynslu sem ætti að nýt­ast honum í starfi. Hann er fyrrum hers­höfð­ingi Banda­ríkja­hers og á árunum 2010 til 2013 starf­aði hann sem yfir­maður hern­að­ar­mála í Mið­aust­ur­löndum. Sem hers­höfð­ingi var Mattis vin­sæll meðal und­ir­manna sinna og útnefn­ing hans hefur mætt lít­illi mót­stöðu.

Mattis hefur verið mik­ill tals­maður þess að við­halda Norð­ur­atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) en Trump hefur sagt banda­lagið úr sér gengið. Síðasta sumar sagði Trump í við­tali við The New York Times að ef útgjöld banda­lags­þjóð­anna til hern­að­ar­mála næðu ekki við­mið­inu um 2 pró­sent þjóð­hags­fram­leiðslu, þá gætu þær ekki vænst þess að Banda­ríkin myndu upp­fylla skyldu sína um að koma þeim til aðstoðar. Ummæli Trump fara þvert á skoð­anir Mattis sem hefur sagt að hann telji Rússland vinna gagn­gert að eyði­legg­ingu NATO. Auk þess sagði hann að Banda­ríkin eigi að halda úti her­stöðvum í banda­lags­löndum sem deila landa­mærum með Rúss­landi.

Það er þó ekki þannig að Mattis sé yfir gagn­rýni haf­inn. Árið 2005 vöktu ummæli hans um stríðið í Írak hörð við­brögð. En hann sagði á blaða­manna­fundi að það væri „gaman að berj­ast”, og að honum þætti „gaman að skjóta sumt fólk.” Hann hefur einnig orð á sér fyrir að vera her­skár og Obama lét hann taka pok­ann sinn árið 2013 sökum þess hversu ákafur hann var að beita her­valdi gegn Íran. Vegna því­líkra ummæla og skoð­ana hefur Matis hlotn­ast við­ur­nefnið „Mad dog”, eða „óður hundur”.

Óútreiknanlegir tímar

Eins og kom fram í upp­hafi grein­ar­innar þá er mjög sjald­gæft að öld­unga­deildin hafni ráð­herra­efni for­seta. Repúblikanar hafa meiri­hluta á þing­inu og því má búast við að Tiller­son, Pruitt og Mattis taki við emb­ætti. Hins vegar ríkir mikil óvissa um þær aðgerðir sem þeir munu grípa til. Eins og komið hefur fram hér að ofan fara skoð­anir helstu emb­ætt­is­manna Trump oft þvert á skoð­anir for­set­ans og því er erfitt að segja til um hvernig þeir munu haga sér sem ráð­herrar. Þetta eru áhuga­verðir tímar fyrir heims­byggð­ina og þung er ábyrgðin sem hvílir á herðum þeirra sem munu fara með völd í nafni Trump for­seta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár