Eliza Reid gagnrýnir forsíðu Morgunblaðsins og spyr hvort konur séu til

Morg­un­blaðið birti mynd af for­seta­frú Íslands taka í hönd krón­prins Dan­merkur á for­síðu sinni í dag, en nefndi ekki for­seta­frúnna, Elizu Reid, á nafn.

Friðrik krónprins Danmerkur heimsótti forsetahjónin Guðna Th. Jóhannesson og Elizu Reid í gær.
Friðrik krón­prins Dan­merkur heim­sótti for­seta­hjónin Guðna Th. Jóhann­es­son og Elizu Reid í gær. Mynd: BIG

Eliza Reid for­seta­frú gagn­rýnir mynda­texta við mynd af sér sem birt­ist á for­síðu Morg­un­blaðs­ins í dag. Myndin sem um ræðir sýnir Elizu taka á móti Friðriki, krón­prins Dan­merkur, sem kom til Íslands í gær og snæddi kvöld­verð á Bessa­stöðum.

Í mynda­text­anum er til­greint að prins­inn hafi snætt með Guðna Th. Jóhann­essyni, eig­in­manni Elizu og for­seta Íslands, og að með honum í för hafi verið utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, Jeppe Kofod, og sendi­nefnd danskra fyr­ir­tækja og hags­muna­sam­taka. Þar er einnig til­greint að ýmsir íslenskir og danskir áhrifa­menn og -konur hafi setið kvöld­verð­inn en þótt Eliza sé sú sem krón­prins­inn er að heilsa á mynd­inni er hún ekki nefnd á nafn.

Í stöðu­upp­færslu Elizu sem birt­ist í dag segir hún: „Í stuttu máli er mynda­text­inn á for­síðu blaðs­ins í dag svona: Einn karl­maður sem ber nafn kom í kvöld­verð hjá öðrum karl­manni sem ber nafn. Með gest­inum var þriðji karl­mað­ur­inn sem heitir líka nafni [sést ekki á mynd­inni]. Meira var það ekki. #eru­kon­urtil“.

[adspot]Í til­kynn­ingu á heima­síðu for­seta­emb­ætt­is­ins er til­tekið að for­seta­hjónin hafi tekið á móti Friðriki krón­prins og heim­sóknin hafi haf­ist með kvöld­verði honum til heið­urs á Bessa­stöðum.

Kvöld­verð­inn sóttu einnig Jeppe Kofod, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Kirsten Geelan sendi­herra Dan­merkur á Íslandi, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, auk full­trúa úr dönsku og íslensku við­skipta­lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár