Hugnast ekki að breyta um stefnu og reyna að „útrýma“ veirunni í stað þess að bæla hana

Á Írlandi er þessa dag­ana rætt um að skipta um kúrs í slagnum við kór­ónu­veiruna og reyna að „útrýma“ henni eins og gert hefur verið t.d. í Nýja-Sjálandi og Ástralíu. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að þessu verði ekki auð­veld­lega stýrt.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Töluverð umræða hefur verið um svo­kall­aða „útrým­ing­ar­leið“ (e. eliminiation stra­tegy) í bar­átt­unni gegn kór­ónu­veirunni á Írlandi und­an­farna daga. Kröfur hafa verið uppi um það, á vett­vangi stjórn­mál­anna að reynt verði að skipta um kúrs í bar­átt­unni við veiruna, enda hafi það sýnt sig að tíma­bundnar aðgerðir sem miði að því að bæla hana niður virki ekki.

Írar slök­uðu á sótt­varna­að­gerðum sínum eftir jól og úr varð að tíðni greindra smita á hverja milljón íbúa fór hærra þar en raunin hefur orðið í nokkru öðru landi frá því að kór­ónu­veiran lét fyrst á sér kræla í upp­hafi síð­asta árs. Tíðnin er nú á hraðri nið­ur­leið, enda gríð­ar­lega harðar aðgerðir í gildi og verða áfram til 5. mars. Írar hugsa nú með sér hvað sé rétt­ast að gera.

Sumir telja rétt­ast að stefna að útrým­ingu veirunnar, en aðrir telja það óraun­hæft, meðal ann­arra helsti sótt­varna­sér­fræð­ingur lands­ins, Philip Nolan.

Í stuttu máli sagt þá er „útrým­ing­ar­leiðin“, sem stundum er kölluð Zero-Covid eða núll­stefna, sú leið sem ríki á borð við Nýja-Sjáland, Ástralíu, Víetnam og Taívan hafa valið sér í bar­átt­unni við veiruna allt frá upp­hafi. 

Miklar tak­mark­anir hafa verið á landa­mærum þess­ara ríkja og fyr­ir­séð að þær verði lengi enn. Miklu púðri er síðan varið í að ná utan um smit þegar þau spretta upp í sam­fé­lag­inu eftir að hafa lekið inn fyrir þær sótt­kvíar- og skimun­ar­varnir sem til staðar eru.

[adspot]

Þetta hefur virkað vel, ef ein­ungis er horft til þró­unar far­ald­urs­ins, eins og sjá má á línu­rit­inu með sam­an­burði á fram­gangi far­ald­urs­ins í þessum ríkjum og hér á landi hér að neðan. Nú er svo komið að við­burðir þar sem þús­undir safn­ast saman þykja ekk­ert til­töku­mál.

Lítið hefur verið rætt um þetta sama hér á Íslandi. Sér­fræð­ingar frá Nýja-Sjálandi og Ástralíu, sem veittu stjórn­völdum þar ráð­gjöf, skrif­uðu grein í British Medical Journal (BMJ) skömmu fyrir jól þar sem þeir færðu rök fyrir því að útrým­ing­ar­stefnan gæti verið fýsi­leg­asta leið ríkja til að takast á við COVID-19 og fram­tíð­ar­far­sóttir.

Minnst er á Ísland í grein þeirra, í sam­hengi við efna­hags­leg áhrif sem ríki þurfi að taka til­lit til þegar þau velji sína leið. „Ísland end­ur­opn­aði sig fyrir ferða­mennsku en eft­ir­spurnin hélst áfram lítil, inn­fluttum til­fellum COVID-19 fjölg­aði og heild­ar­út­koman varð meiri sam­dráttur vergrar lands­fram­leiðslu en sást í Nýja-Sjálandi,“ skrifa grein­ar­höf­undar.

Verður ekki auðveldlega stýrt

Kjarninn spurði Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni að því hvort hann teldi að Ísland væri í stöðu til að útrýma veirunni úr sam­fé­lag­inu nú og hvort hann teldi það hyggi­legt. Blaða­maður spurði reyndar einnig að því hvort Ísland væri mögu­lega komið á þessa veg­ferð, án þess að það væri sagt upp­hátt af hálfu yfir­valda.

Þórólfur var skýr um það, í skrif­legu svari til Kjarnans, að stefna íslenskra yfir­valda hefði ekki á nokkrum tíma­punkti verið sú að reyna að útrýma veirunni úr sam­fé­lag­inu. „Okkar stefna hefur alltaf verið að bæla veiruna niður eins og hægt er,“ skrif­aði Þórólfur.

Hann bætti við að það væri ekki svo að þessu yrði „auð­veld­lega stýrt með ákvörðun að útrýma eða ekki“ og sagði enn­fremur að hann væri ekki sam­mála „til­lögum um mjög harðar aðgerðir á þess­ari stundu,“ sem þyrfti til að útrýma veirunni alveg. Það sem meira er seg­ist Þórólfur ekki búast við að stjórn­völd yrðu það heldur.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna á fimmtu­dag sagði Þórólfur að það kæmi vel til greina að slaka á gild­andi sótt­varna­ráð­stöf­unum að ein­hverju leyti fyrr en áætlað var, en núver­andi tak­mark­anir eru í gildi til 17. febr­úar sam­kvæmt reglu­gerð Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra.

Landamærin við Norður-Írland flæki málin

Æðstu ráða­menn á Írlandi, for­sæt­is­ráð­herr­ann Micheál Martin og vara­for­sæt­is­ráð­herr­ann Leo Varadkar, hafa báðir lýst yfir efa­semdum um að ganga skuli lengra og stefna að útrýma veirunni. Varadkar hefur sagt sér­fræð­inga stjórn­valda á þeirri skoðun þetta myndi ekki virka í írsku sam­hengi.

Rökin eru þau, sam­kvæmt frétt Irish Times, að landa­mærin við Norður-Írland þurfi að vera opin og að Írar séu í ýmsum nauð­syn­legum tengslum við bæði Bretland og Evrópu.

Einnig gæti tekið langan tíma að útrýma veirunni úr sam­fé­lag­inu og eitil­harðar aðgerðir þyrftu að vera til staðar á meðan. Útrýming „þýðir að inn­an­lands­smitin séu núll... 14 daga í röð,“ er haft eftir Varadkar. Hann bætti við að í Melbourne í Ástralíu hefði þetta tekið þrjá mán­uði og gæti tekið „mun lengri“ tíma í Írlandi.

Þetta segja „útrým­ing­ar­sinnar“ á Írlandi að sé ávísun á að önnur bylgja far­ald­urs­ins rísi þegar núver­andi hörðum aðgerðum verði aflétt, en til stendur að gera það afar var­lega frá og með 5. mars, miðað við orð ráða­manna.

Mary Regan, stjórn­mála­skýr­andi írska rík­is­fjöl­mið­ils­ins RTÉ, segir þó að ýmis teikn séu á lofti um að írska stjórnin sé að fær­ast í átt að þeim aðgerðum sem „útrým­ing­ar­stefnan“ bygg­ist á. Þau kalli það bara annað, eða „langvar­andi bæl­ingu veirunnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár