Varði mánuðum með sjálfsmorðssprengjumönnum

Í nýj­ustu mynd sinni fylgist Pål Refsdal, norskur kvik­mynda­gerð­ar­maður, með ungum mönnum sem bíða þess að fórna lífi sínu í sjálfs­morðs­sprengju­árásum Al-Kaída í Sýrlandi. Kjarninn spjall­aði við Refsdal um mynd­ina Dugma - The Button.

Pål Refsdal er norskur kvik­mynda­gerð­ar­maður sem á nokkuð magn­aða sögu, og hefur meðal ann­ars upp­lifað að vera rænt af tali­bönum í Afganistan þegar hann vann að heim­ild­ar­mynd um þá.

Þegar Osama bin-Laden var drep­inn fannst nafn Refsdal í fórum hans, þar sem ein­hver Al-Kaída maður hafði sent bin-Laden bréf þar sem mælt var með Refsdal, þessum norska blaða­manni sem hafði gert heim­ild­ar­mynd um tali­bana. Meðmælin not­aði hann til að kom­ast inn undir hjá Jabhat al-Nusra, sýr­lenska armi Al-Kaída á þeim tíma.

Hann varði mán­uðum með lágt settum bar­daga­mönnum þeirra í stríð­inu í Sýrlandi og afrakst­ur­inn er myndin Dugma - the Button, sem sýnd var á nor­rænu kvik­mynda­há­tíð­inni sem er nýlokið í Norræna hús­inu.

Í mynd­inni er fylgst með fjórum mönnum sem bíða þess að sprengja sig í loft upp. Hvers vegna ákvað hann að gera slíka mynd? „Síðustu sextán ár hafa upp­reisn­ar­hóp­arnir verið óvinir okkar og ég hef tekið eftir því á hverju ósann­gjarnan hátt þeir eru mál­aðir upp í fjöl­miðlum. Myndin er kannski um Al-Kaída menn í Sýrlandi, en fyrir mig er þetta meira spurn­ing um ímynd okkar af óvin­inum.“

„Ég reyndi að gera mynd­ina eins og ég hefði gert hana um okkar her­lið. Sýna hvers­dags­lífið, ekki rit­skoða eða neitt slíkt og leyfa þeim bara að tala fyrir sig,“ segir Refsdal, en hann starf­aði líka eitt sinn fyrir norska her­inn. Hann segir að hann hafi ekki haft áhuga á spreng­ing­unum og æsingnum, heldur bara hvers­deg­inum.

En hvernig komst hann í sam­band við hryðju­verka­sam­tökin?

„Þú getur ekki bara sent þeim tölvu­póst eða Whatsapp-skila­boð. Ég þurfti að fara til Sýrlands og byrj­aði á því að verja tíma með öðrum upp­reisn­ar­hópum til að reyna að ná til Jabhat al-Nusra.“ Jabhat al-Nusra var þá sýr­lenskur armur Al-Kaída. „Það tók mig um fjóran og hálfan mánuð í þeim hluta Sýrlands sem upp­reisn­ar­menn stjórn­uðu að fá leyfi til að vinna með þeim. Þeir sögðu við mig að ég ætti að skrifa umsókn, með fer­il­skrá og með­mælum, bara eins og starfs­um­sókn, og eftir nokkrar vikur sögðu þeir að ég gæti komið.“ Og það var þarna sem með­mæla­bréfið til Osama bin-Laden kom að góðum notum.

„Ég fór í tvær ferðir, 2014 og 2015. Ég var ekki með neitt plan um það hvernig mynd ég vildi gera. Ég vissi að ég vildi fylgj­ast með lágt settum bar­daga­mönnum, hafði ekki áhuga á hærra settum, og ég vissi að mig lang­aði að fylgj­ast með þeim eins lengi og mögu­legt var.“

Ein aðal­per­sónan í mynd­inni er sádi-arab­ískur maður að nafni Abu Qaswara, en hann átti alls ekki að vera í aðal­hlut­verki fyrst. „Þegar ég hitti hann fyrst átti hann að sprengja sig í loft upp nokkrum dögum seinna svo ég hugs­aði að hann yrði ekki í mynd­inni. En svo kom ég aftur seinna og hann var ennþá á lífi.“

Önnur aðal­per­sóna er breskur maður sem heitir nú Al Basir al Britani. Hann hét áður Lucas Kinney og hefur verið mikið fjallað um hann í fjöl­miðlum í Bret­landi eftir að upp komst að hann hefði gengið til liðs við Al-Kaída. Refsdal fannst hann ekki sér­stak­lega áhuga­verður heldur fyrst þegar þeir hitt­ust, en í mynd­inni kemur fram hvað það var sem breytti þeirri skoðun.

Al-Kaída sögðu við mig að ég ætti að skrifa umsókn, með fer­il­skrá og með­mælum.

Refsdal hefur heyrt gagn­rýn­ina um að með því að gera mynd sem sýnir hryðju­verka­menn í jákvæðu ljósi sé hann að ýta undir hegðun af þessu tagi. Því er hann ekki sam­mála og hefur sagt að myndin hans muni ekki ýta við neinum sem langi að fremja voða­verk af þessu tagi. En hann gerir mik­inn grein­ar­mun á mönn­unum sem hann dvaldi með í Sýrlandi og öðrum hópum, til að mynda Íslamska rík­inu svo­kall­aða. „Al-Kaída og Íslamska ríkið eru í stríði. Ég hefði ekki gert mynd með Íslamska rík­inu,“ segir hann.

Menn­irnir sem hann dvaldi með fremja bara sjálfs­morðs­sprengju­árásir gagn­vart öðrum stríð­andi fylk­ingum, og þá sýr­lenska stjórn­ar­hernum helst. Hann segir að vissu­lega hafi óbreyttir borg­arar lát­ist, en það sé ekki ætl­unin. Innan við 400 óbreyttir borg­arar hafi lát­ist í árásum þeirra, á meðan stjórn­ar­her­inn hafi drepið hund­ruði þús­unda. „Þeir eru að gera það sem upp­reisn­ar­hópar gera. Þeir eru að berj­ast við stjórn­ar­her­inn, í stríði.“

Refsdal segir þetta allt annað en það sem Íslamska ríkið geri, það er að herja sér­stak­lega á óbreytta borg­ara. Hann skilur Al-Kaída menn­ina, en sam­þykkir samt ekki það sem þeir eru að gera, og ekki heldur trú­ar­legu rétt­læt­ing­una á bak við hana. Sjálfur gerð­ist hann múslimi þegar honum var haldið af tali­bönum í Afganistan. „Sjálfs­morð eru bönnuð innan íslam, þótt þeir rétt­læti það með versi úr Kór­an­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár