Þeir sem njóta efnislegra gæða freistist til að sýna ósanngjarnt oflæti og skilningsleysi

Forseti Íslands fjall­aði meðal ann­ars um orð­ræðu á net­inu, áskor­anir lands og heims, bætt lífs­kjör og betri stöðu mann­kyns, í nýársávarpi sínu.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, segir að þeir sem njóti efn­is­legra gæða, eins og hann sjálfur, freist­ist stundum til þess að segja öðrum að þau skipti ekki sköpum í líf­inu. „Þannig oflæti og skiln­ings­leysi er ósann­gjarnt. Hinu vil ég þó bæta við að á mínum æsku­stöðvum sást ríki­dæmi víða. Barns­hug­ur­inn greindi samt stundum að ham­ingja er ekki endi­lega mæld í fer­metrum. Síðar hefur mér sýnst sem orð nóbels­skálds­ins séu sígild: „því hvað er auður og afl og hús / ef ein­gin jurt vex í þinni krús.““

Þetta er meðal þess sem fram kom í nýársávarpi for­set­ans sem flutt var í dag. Þar fór for­set­inn um víðan völl og fjall­aði um full­veld­is­af­mæli þjóð­ar­innar, kulnun og streitu, fíkni­vanda, loft­lags­breyt­ingar, örbirgð, ófrið, flótta­manna­vand­ann, vax­andi spennu í sam­skiptum ríkja, mis­skipt­ingar heims­ins gæða og aðrar skæðar ógnir nútím­ans, svo fátt eitt sé nefnt.

En hann rakti líka að lífs­kjör hér­lendis hafa verið stór­bætt og að stað­hæfa megi að mann­kyn­inu í heild farn­ist nú betur en nokkru sinni fyrr, þótt sann­ar­lega geti brugðið til beggja vona og ein­faldar lausnir dugi skammt í flóknum veru­leika. „En fram­tíðin er í okkar höndum ‒ far­sæl ef við hrekj­umst ekki af braut mann­gæsku og hyggju­vits, vís­inda og rök­hyggju.“

For­set­inn ræddi einnig um netið og miðla þess, sem farnir eru að skipa rík­ari sess í sam­fé­lagi manna, og hvernig þessi breyt­ing hefur aukið frelsi fólks til að tjá láta rödd sína heyr­ast. Guðni sagði það vel en að þessir kostir væru ekki alltaf nýttir til góðs. „Í nýársávarpi fyrir fimm árum benti for­veri minn í emb­ætti á að hin nýja tækni gæti opnað „flóð­gáttir nei­kvæðni, ill­mælgi og jafn­vel hat­urs“. Þau orð Ólafs Ragnars eiga enn við og einnig er við hæfi að rifja upp ummæli ann­ars manns sem bjó um skeið hér á Álfta­nesi, að vísu fyrir um þremur öldum. „En sá sem reiður er, hann er vit­laus,“ þrum­aði Jón biskup Vídalín, í frægri stól­ræðu sem orðið „reiði­lestur“ er dregið af: „Heiftin ... afmyndar alla manns­ins limi og liði, hún kveikir bál í aug­unum, hún hleypir blóði í nas­irnar, bólgu í kinn­arnar, æði og stjórn­leysi í tung­una … Hún skekur og hristir allan lík­amann, svo sem þegar hafið er upp blásið af stór­viðri. Og í einu orði að segja: Hún gjörir mann­inn að ófreskju.“ Þannig mess­aði meist­ari Jón þegar hann steig í stól­inn sunnu­dag milli nýárs­dags og þrett­ánd­ans. Vissu­lega er það svo að reiði getur verið rétt­mæt. Meira að segja má vera að hún efli fólk til dáða en hams­laus heift skilar engu, og fúk­yrði því síður. Og hér gilda sömu­leiðis þau ritn­ing­ar­orð að sá yðar, sem synd­laus er, kasti fyrsta stein­inum.“

Hægt er að lesa ávarp for­set­ans í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár