Mynd: BULENT KILIC / AFP

Frosið stríð í fjalllendi

Armenar og Aserar hafa undirbúið stríð við hvora aðra í aldar­fjórðung.

Það má segja að Kákasus­héraðið sé nokkurs konar Balkans­kagi Rússlands, óstýrilátt fjall­lendi sem er svo torsótt að nánast hver dalur hefur ræktað með sér eigin mállýsku. Og rétt eins og nokkur skot á Balkans­kaga boðuðu fall Austurríska heims­veldisins, þá voru það átök í Kákasus sem mörkuðu upphafið að endalokum Sovét­ríkjanna. 

Rússar komu fyrst til Kákasus undir lok 18. aldar. Konungs­ríkið Georgía greip tækifærið og myndaði við þá bandalag gegn fjendum sínum Persum. En rússnesku hermennirnir voru kallaðir heim og skildu vini sína eftir í súpunni, eins og þekkist meðal stórvelda í seinni tíma sögu. Eftir að Rússarnir fóru komu Persarnir og jöfnuðu Tíblisi við jörðu, íbúarnir voru drepnir nema þeir ungu og hraustustu sem voru leiddir í þrældóm. Framferði Persa gerði það svo aftur að verkum að Rússar töldu sig hafa ærið tilefni til að leggja undir sig allt svæðið. Framkvæmdin tók rúma hálfa öld og í hugum rússneskra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár