Þriggja milljarða stefnu Ingibjargar og Jóns Ásgeirs á hendur Sýn vísað frá

Ingi­björg Pálma­dóttir og Jón Ásgeir töldu að máls­höfðun Sýn á hendur þeim hefði valdið hjón­unum orð­spors­hnekki og sett ábata­söm við­skipti þeirra erlendis í upp­nám. Þau stefndu fyr­ir­tæk­inu og vildu þrjá millj­arða í bætur. Hér­aðs­dómur vís­aði máli­inu frá.

Ingibjörg Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jóhannesson.
Ingi­björg Pálma­dóttir og Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Mynd: RÚV

Stefnu hjón­anna Ingi­bjargar Pálma­dóttur og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, og félags þeirra 365 ehf., á hendur fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Sýn, þar sem þau kröfð­ust þriggja millj­arða króna í bætur fyrir m.a. orð­spors­hnekki, hefur verið vísað frá í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Það gerð­ist í síð­ustu viku, nánar til­tekið 28. októ­ber.

Samkvæmt því sem fram kemur í árs­hluta­reikn­ingi Sýnar töld­ust „dóm­kröfur stefn­enda óljósar og óskýrar og slíkir ann­markar á mála­til­bún­aði að mál­inu var vísað frá. Stefn­endur hafa kært úrskurð­inn til Lands­réttar.

Samkvæmt stefn­unni i mál­inu töldu Ingi­björg og Jón Ásgeir að stefna Sýnar á hendur þeim, þar sem þau eru krafin um háa greiðslu vegna brots á kaup­samn­ingi sem gerður var árið 2017, hafi skaðað þau „hug­hrif að stefn­endur séu aðilar sem standi ekki við gerða samn­inga og skuldi háar fjár­hæðir þegar fyrir liggur að orð­spor er þeim einkar mik­il­vægt í við­skiptum frá degi til dags.“

Þau sögðu að mála­til­bún­að­ur­inn hefði valdið þeim miklum óþæg­indum, meðal ann­ars í sam­skiptum við fjár­mála­stofn­anir, og við­búið væri að svo yrði áfram eftir því sem málið komst í kast­ljós fjöl­miðla. Ábatasöm við­skipti þeirra á erlendum vett­vangi væru líka þegar í upp­námi vegna mál­sókn­ar­innar.

Enn fremur töldu þau að að mark­mið Sýnar með því að stefna sér væri að „breiða yfir afleitan rekstur Sýnar frá því að félagið tók við eignum 365 á ljós­vaka- og fjar­skipta­mark­aði.“

Kveðið á um samkeppnisbann

Forsaga máls­ins er sú að Sýn keypti hluta af fjöl­miðla­veldi 365 á árinu 2017 fyrir alls 7,9 millj­arða króna. Um var að ræða alla ljós­vaka­miðlar félags­ins og frétta­vef­inn Vísi.is. Eftir í 365 stóð Frétta­blaðið og tengdir miðlar sem voru svo seldir til nýrra eig­enda í fyrra og eru nú reknir í félag­inu Torgi ehf.

[adspot]Í kaup­samn­ingi var kveðið á um að Ingi­björg og Jón Ásgeir mættu ekki fara í sam­keppni við þá miðla sem Sýn hefði keypt í til­tek­inn tíma.

Rekstur fjöl­miðla Sýnar hafa ekki gengið vel frá því að kaupin áttu sér stað. Í byrjun árs lækk­aði félagið til að mynda við­skipta­vild vegna fjöl­miðl­anna sem keyptir voru um 2,5 millj­arða króna.

Tekjur Sýnar af fjöl­miðla­rekstri dróg­ust saman um 446 millj­ónir króna milli áranna 2018 og 2019 og á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs dróg­ust tekjur félags­ins vegna fjöl­miðla­hluta rekst­urs­ins saman um 565 millj­ónir króna frá sama tíma­bili í fyrra.

Stefnt út af hlaðvarpi og Hringbraut

Sýn ákvað að stefna hjón­unum og 365 vegna þess að stjórn­endur Sýnar telja að teng­ing vef­mið­ils­ins fretta­bla­did.is við ljós­vaka­miðla, bæði útvarp og sjón­varp, sé með öllu óheimil sam­kvæmt kaup­samn­ingnum frá árinu 2017. Mið­ill­inn haldi úti hlað­varpi, vísi á vef sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar (líka í eigu Torgs) af for­síðu sinni og sýni ýmis konar mynd­bönd, sem telj­ist ljós­vaka­efn­i. Vegna þessa hefur Sýn farið fram á að hinir stefndu greiði sér fimm millj­ónir króna fyrir hvern dag sem lið­inn er frá samn­ings­broti. Í lok fyrsta árs­fjórð­ungs stóð sú tala í 1,7 millj­arði króna. Í dag hefur hún hækkað nokkuð, og er lík­lega komin yfir tvo millj­arða króna. Þessi mála­rekstur er enn í gangi fyrir dóm­stólum.

Í nú frá­vís­aðri gagn­stefnu Ingi­bjargar og Jóns Ásgeirs, sem Mark­að­ur­inn fjall­aði ítar­lega um í vor, var þessu með öllu hafnað. Fyrir því voru tvö meg­in­rök. Í fyrsta lagi seldi 365 eft­ir­stand­andi miðla sína, sem að uppi­stöðu var Frétta­blaðið og vefur þess, til Helga Magn­ús­sonar fjár­festis og sam­starfs­manna hans í fyrra í tveimur skrefum. Þegar það síð­ara var stigið, í októ­ber, var sjón­varps­stöð­inni Hring­braut og tengdri síðu rennt inn í Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins. Þá þegar hafði Frétta­blaðið hafið fram­leiðslu og birt­ingu á hlað­varpi á fretta­bla­did.is.

Hjónin höfn­uðu því að umrædd hlað­varps­gerð væri sam­keppni við þá ljós­vaka­miðla sem seldir höfðu verið til Sýnar. Auk þess sögð­ust þau ekki bera ábyrgð á sjón­varps­rekstri Hring­brautar, enda hefðu þau verið búin að selja fjöl­miðl­anna þegar honum var rent inn í útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins. Það hafi ekki verið staf krókur um það í kaup­samn­ingnum að þau hafi verið skuld­bundin til þess að sjá til þess að óskyldur þriðji aðili yrði bund­inn af sam­keppn­is­bann­inu.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur vís­aði mál­inu frá 28. októ­ber síð­ast­lið­inn þar sem dóm­kröfur Ingi­bjargar, Jóns Ásgeirs og 365 ehf., töld­ust óljósar og óskýrar og slíkir ann­markar á mála­til­bún­aði að vísa þyrfti mál­inu frá. Þeirri nið­ur­stöðu hefur, líkt og áður sagði, verið áfrýjað til Lands­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár