Það stendur upp á ríkið að leiðrétta það óréttlæti sem það innleiddi

Stefán Ólafsson, pró­fessor í félags­fræði, er bjart­sýnn á að skatta­til­lögur sem hann samdi með Indriða H. Þor­láks­syni geti kom­ist til fram­kvæmda. Rík­is­stjórnin hafi lofað að breyta skatt­kerf­inu til jöfn­unar.

„Þegar maður horfir líka á sam­hengi kjara­samn­ing­anna þá er það þannig að ríkið er meira aflögu­fært en atvinnu­lífið og að því leyti til, og svo líka ekki hvað síst í ljósi þess­ara skatta­til­færslu, þá stendur það upp á ríkið að leið­rétta þetta órétt­læti sem það inn­leiddi á löngum tíma í mörgum smáum skrefum.“

Þetta segir Stefán Ólafsson, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur verður klukkan 21:00 í kvöld.

Þar ræðir Stefán þær breyt­ing­ar­til­lögur á skatt­kerf­inu sem hann og Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, unnu fyrir Eflingu og kynntar voru í síð­ustu viku. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan.

Í til­lögum þeirra Stefáns og Indriða kemur fram að það þurfi að koma á stíg­andi skatt­kerfi með fjórum til fimm skatt­þrepum, hækka þurfi fjár­magnstekju­skatt til sam­ræmis við það sem almennt tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum og breyta skatt­lagn­ingu rekstr­ar­hagn­aðar til sam­ræmis við skatt á launa­tekjur.

Þá þurfi að bæta fram­kvæmd reikn­aðs end­ur­gjalds sjálf­stætt starf­andi aðila þannig að end­ur­gjaldið verði einnig látið taka til fjár­mála­starf­semi, leggja þurfi á stór­eigna­skatt með frí­tekju­marki fyrir eðli­legt verð­mæti íbúð­ar­hús­næðis, sum­ar­húsa og einka­bif­reiða og sann­gjörn auð­linda­gjöld „fyrir allar atvinnu­greinar sem nýta sam­eig­in­legar auð­lindir þjóð­ar­innar.”

Við þetta myndu skattar lækka á 90 pró­sent launa­manna, eða alla þá sem eru með 900 þús­und krónur á mán­uði eða minna.

[adspot]Ódýrasta skrefið sem þeir leggja til myndi kosta rík­is­sjóð um 30 millj­arða króna og leggja þeir til að það verði greitt með því að nota 14 millj­arða króna sem þegar hafa verið settir til hliðar vegna skatta­lækk­ana og með því að lækka væntan afgang af rekstri rík­is­sjóðs í ár um 16 millj­arða króna.

[links]Stefán segir að hann sé mjög bjart­sýnn að eðl­is­fari og því bjart­sýnn á að til­lög­urnar geti kom­ist til fram­kvæmda, þrátt fyrir aug­ljósan hug­mynda­fræði­legan ágrein­ing um skatta­mál milli þeirra flokka sem sitji í rík­is­stjórn, sér­stak­lega Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna. „Fyrir það fyrsta þá hefur þessi rík­is­stjórn lofað því að breyta tekju­skatts­kerf­inu þannig að það gagn­ist mest lægstu hóp­unum og lægri milli­tekju­hópum eins og þau skil­greindu það sjálf. Þannig að þau þurfa að efna þau lof­orð og þannig að eitt­hvað bragð sé af.“

Stefán segir að mál­efna­staðan með til­lög­unum sé mjög sterk. „Hún hefur rétt­lætið með sér, hún hefur sann­girn­ina með sér, hún hefur það að 90 pró­sent skatt­greið­enda myndu græða á þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár