Rússar og Kínverjar þrýsta á Norður-Kóreumenn

Stjórn­völd í Rússlandi og Kína kröfðust þess að Norður-Kóreubúar hættu við eldflauga­tilraunir sínar í kjölfar tilrauna­skots í gærnótt.

Fréttatilkynning frá ríkissjónvarpi Norður-Kóreu í kjölfar tilraunaskotsins.
Frétta­til­kynn­ing frá rík­is­sjón­varpi Norður-Kóreu í kjöl­far til­rauna­skots­ins. Mynd: EPA

Rússnesk og kínversk yfirvöld komu með sameiginlega yfir­lýsingu þess efnis að Norður-Kóreubúar ættu að stöðva eldflauga­tilraunum sínum í kjölfar tilrauna­skots þeirra inn í efnahags­lögsögu Japans í nótt. Þetta kemur fram á vef BBC.

Xi Jinping, forseti Kína, fundaði með Vladimir Putin, Rúss­lands­forseta í Moskvu í dag. Eftir fundinn kom fram sameiginleg yfir­lýsing beggja landanna þar sem nýlegu eldflauga­skoti Norður-Kóreu­manna var fordæmt og þess krafist að tilraunum þeirra með eldflaugar og kjarnorku­vopn yrði stöðvað.

Í yfir­lýsingunni kröfðust löndin einnig þess að hætt verði við allar stærri hernaðar­æfingar Bandaríkja­manna og Suður-Kóreu­manna samhliða því að Norður-Kóreumenn drægju sig í hlé.

Norður-Kóresk yfirvöld hafa haldið því fram að eldflaugar þeirra hafi næga drægni til að lenda hvar sem er í heiminum. Þessu hafa Bandaríkja­menn og Rússar hins vegar vísað á bug og segja eldflaugina ógna hvorugu landinu.

David Wright, eðlis­fræðingur á vegum samtak­anna Union of Concerned Scientists, sagði að ef tölulegar upplýsingar frá ríkis­sjónvarpi Norður-Kóreu séu réttar, þá væri drægni eldflaugarinnar um 6.700 kíló­metrar og gæti því náð til Alaska.

Forseti Banda­ríkjanna, Donald

Trump

brást við eldflauga­skotinu á

Twitter

, þar sem hann velti því fyrir sér hvort Kim Jong Un, forseti Norður-Kóreu, hefði ekki neitt betra við tímann sinn að gera. Enn fremur lagði til að kínversk yfirvöld beittu Norður-Kóreu­mönnum þrýstingi til að hætta við tilraunir sínar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár