Áslaug Arna nýr dómsmálaráðherra

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður næsti dóms­mála­ráð­herra. Frá þessu var greint á þing­flokks­fundi flokks­ins sídð­egis í dag.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður næsti dóms­mála­ráð­herra. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, greindi þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá þessu á fundi síð­degis í dag, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Tillaga for­manns­ins um að Áslaug Arna myndi taka við emb­ætt­inu var sam­þykkt ein­róma í þing­flokknum.

Miklar bolla­legg­ingar hafa verið und­an­farna daga um hver myndi setj­ast í ráð­herra­stól­inn. Auk Áslaugar Arna voru nefnd nöfn Brynjars Níels­sonar, Birgis Ármanns­sonar og Sigríðar Á. Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra.

Áslaug Arna hefur verið for­maður utan­rík­is­mála­nefndar og hefur setið á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn frá árinu 2016. Hún verður yngsti ráð­herr­ann í rík­is­stjórn­inni en hún verður 29 ára í nóv­em­ber næst­kom­andi. Áslaug Arna er með Stúd­ents­próf frá Verzlunarskóla Íslands, BA-próf í lög­fræði frá Háskóla Íslands og MA-próf í lög­fræði frá sama háskóla sem hún lauk árið 2017.

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur gegnt emb­ætt­inu sam­hliða öðrum ráð­herra­störfum frá því að Sig­ríður Á. And­er­sen sagði af sér í vor vegna Lands­rétt­ar­máls­ins svo­kall­aða. Greint var frá því í ágúst að hún myndi ekki verða dóms­mála­ráð­herra til fram­búðar heldur halda áfram sem ferða­­mála-, iðn­­að­­ar- og nýsköp­un­­ar­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár