Stóra skattkerfisbreyting ríkisstjórnarinnar samþykkt

Nýtt þriggja þrepa skatt­kerfi rík­is­stjórn­ar­innar var sam­þykkt á Alþingi í gær þrátt fyrir skiptar skoð­anir. Skatta­lækkun nýja kerf­is­ins á að gagn­ast þeim tekju­lágu mest en lækk­unin á þó að skila sér til allra tekju­tí­unda.

Bjarni Benediktsson,fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son,fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Alþingi sam­þykkti í gær breyt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar á tekju­skatts­kerf­inu. Með breyt­ing­unum verður inn­leitt þriðja skatt­þrepið sem tryggja á þeim tekju­lægstu 120 þús­und króna skatta­lækkun árið 2021. Ávinn­ing­ur­inn af lækk­un­inni á jafn­framt að skila sér til allra tekju­tí­unda en þó mest til þeirra sem lægstar hafa tekj­urnar.

Með sam­þykkt frum­varps­ins er ein af grund­vall­ar­for­sendum lífs­kjara­samn­ing­anna efnd og sam­kvæmt leið­togum rík­is­stjórn­ar­innar er þessi breyt­ing ein af stóru málum kjör­tíma­bils­ins.

Hluti lífs­kjara­samn­inganna efndur

[links]Þegar skrifað var undir hina svoköll­uðu lífs­kjara­samn­inga í apríl var ein meg­in­for­senda þess að verka­lýðs­fé­lög, sem fara með samn­ings­um­boð fyrir um helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar, skrif­uðu undir sú að rík­is­stjórnin lagði fram langan lof­orða­lista um aðgerðir sem hún ætl­aði að grípa til svo hægt yrði að ná saman um hóf­legar launa­hækk­an­ir. Kostn­aður vegna aðgerð­anna var met­inn á um 80 millj­arða króna á samn­ings­tíma­bil­inu.

Ein þeirra aðgerða eru kerf­is­breyt­ingar á tekju­skatt­kerfi ein­stak­linga með til­heyr­andi skatta­lækkun. Stjórn­völd boð­uðu að bæta við þriðja skatt­þrep­inu sem tryggja ætti lægstu launa­hóp­unum tölu­verða skatta­lækkun á mán­uði. Fjár­mála­ráð­herra lagði síðan fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um tekju­skatt í sept­em­ber og var frum­varpið líkt og áður segir sam­þykkt á Alþingi í gær. [adspot]

Efsta þrepið helst óbreytt

Breyt­ing­arnar fel­ast í því að tekju­skattur verður lækk­aður í tveimur áföngum. Annars vegar þann 1. jan­úar 2020 og hins vegar þann 1. jan­úar 2021. Innleitt verður nýtt lægra grunn­þrep, sem verður 20,6 pró­sent á næsti ári og lækkar í 17 pró­sent árið 2021 eða 5,5 pró­sentu­stigum lægra en núver­andi grunn­þrep.

Í kjöl­far breyt­ing­anna munu skatt­greiðslur fólks við fyrstu þrepa­mörkin lækka um 42 þús­und krónur á næsta ári, en þá hefur verið tekið til­lit til lækk­unar per­sónu­af­sláttar sem beitt er í sam­spili við upp­töku nýs lægsta þreps í skatt­kerf­inu. Þegar breyt­ingin verður hins vegar komin að fullu fram þá nemur lækk­unin á tekju­skatti þessa hóps rúm­lega 120 þús­und krónur á ári, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins.

Þá verður milli­þrep skatt­kerf­is­ins 22,75 pró­sent á næsta ári í kjöl­far breyt­ing­anna en hækkar í 23,5 pró­sent árið eftir. Efsta þrep verður óbreytt eða 31,8 pró­sent. Við stað­greiðslu skatta bæt­ist síðan útsvar sveit­ar­fé­laga sem er að með­al­tali 14,44% óháð tekjum.

Tekjur frá 0 til 330.225 krónur á mán­uði falla undir fyrsta þrepið, tekjur á bil­inu 330.226 til 927.087 undir annað þrepið og tekjur yfir 927.087 undir þriðja þrepið.

Stóð aldrei til að setja á hátekjuskatt

Þegar rík­is­stjórnin kynnti fyrst hug­myndir sínar um þriggja þrepa skatt­kerfi á fundi með for­svars­mönnum vinnu­mark­aðs­ins í febr­úar síð­ast­liðnum þá féllu þær í grýttan far­veg.

Í kjöl­farið benti Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á, í við­tali við Morg­un­út­varp Rásar 2, að rík­is­stjórnin hefði ekki aðeins kynnt skatt­kerf­is­breyt­ingar heldur einnig til­lögur um að lengja fæð­ing­ar­or­lofið í tólf mán­uð­i, ­tryggja félags­legar lausnir í hús­næð­is­málum og ráð­ast í alvöru aðgerðir gegn félags­legum und­ir­boð­u­m.

Hún sagði jafn­framt nýja skatt­þrepið vera tölu­verðar umbætur fyrir lægsta tekju­hóp­inn og að þriggja þrepa kerfi væri í raun „prógressí­vt“ skatt­kerfi. Aðspurð hvort að skoðað hefði verið að setja á hátekju­skatt svar­aði Katrín að það hefði vænt­an­lega legið fyrir frá því að þau mynd­uðu þessa rík­is­stjórn að þau væru ekki að fara setja á hátekju­skatt.

„Skattalækkun er skattalækkun“

Skiptar skoð­anir voru þó um þessar breyt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar og sköp­uð­ust heitar umræður við þriðju atkvæða­greiðslu frum­varps­ins í gær. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði umræð­una „algjör­lega kostu­lega um þessar mik­il­vægu skatta­breyt­ingar“.

„Sam­fylk­ingin vill ekki málið af því það hefði átt að hækka skatta, Mið­flokk­ur­inn vill ekki svona, Viðreisn þetta er eig­in­lega skatta­hækkun og Píratar tala um þá sem eru undir 300 þús­und krónum en þeir sem eru komnir í 280 þús­und krónum borga ekki skatt til rík­is­ins. Við tökum enga skatta af fólki sem er með 280 þús­und krónur í laun, allir þeir skattar fara til sveit­ar­fé­laga. Skatta­lækkun er skatta­lækkun gott fólk og maður á að styðja slíkt mál,“ sagði Bjarni en frum­varpið var að lokum sam­þykkt með 32 atkvæðum, 23 greiddu ekki atkvæði og 8 voru fjar­staddir.

Hægt að skoða breytingar á eigin skattbyrði

Á vef Stjórn­ar­ráðs­ins geta ein­stak­lingar reiknað út í þar til gerðri reikni­vél hvernig skatt­byrði þeirra mun breyt­ast á næsta ári og árið 2021. Tekin eru dæmi úr reikni­vél­inni um mann­eskja sem er með 280 þús­und krónur í tekjur á mán­uði en í kjöl­far breyt­ing­anna mun hún greiða 69.792 krónum minna í tekju­skatt á ári þar sem eftir breyt­ing­una mun sú mann­eskja ekki þurfa greiða neinn tekju­skatt til rík­is­ins því per­sónu­af­sláttur verður hærri en álagður tekju­skattur. Öll hennar stað­greiðsla fer til sveit­ar­fé­lags­ins.

Tekju­skattur ein­stak­lings með 370 þús­und í tekjur á mán­uði lækkar um 124.620 krónur á ári í kjöl­far breyt­ing­anna og tekju­skattur þess sem er með 835 þús­und í tekjur á mán­uði lækkar um 72 þús­und á ári.

Í heild­ina mun tekju­skattur ein­stak­linga lækka um 5,5 millj­arða króna á kom­andi ári og árið 2020 mun lækk­unin nema alls 21 millj­arði. Auk lækk­unar tekju­skatts kemur til fram­kvæmdar seinni hluti 0,5 pró­sentu­stiga lækk­unar trygg­ing­ar­gjalds, en gjaldið var lækkað um 0,25 pró­sentu­stig í upp­hafi árs 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár