Vonast til að hægt verði að kynna tillögur að útfærslu flýti- og umferðargjalda fljótlega

Sextíu millj­arðar af þeim 120 millj­örðum sem eiga að fara í sam­göngu­fram­kvæmdir innan sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á næsta rúma ára­tug eiga að koma til vegna sér­stakra gjalda á umferð. Samtal um útfærslu þess­ara gjalda er farið af stað.

Davíð Þorláksson er framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf.
Davíð Þor­láks­son er fram­kvæmda­stjóri Betri sam­gangna ohf. Mynd: Aðsend

Á næsta rúma ára­tug stendur til að ráð­ast í sam­göngu­fram­kvæmdir fyrir 120 millj­arða króna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt sam­göngusátt­mála ríkis og sveit­ar­fé­laga frá árinu 2019.

Fjár­mögnun þess­ara miklu fram­kvæmda, sem fela m.a. í sér 52,2 millj­arða fjár­fest­ingu í stofn­vega­fram­kvæmdum og 49,6 millj­arða fjár­fest­ingu í innviðum Borg­ar­línu, nýs hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfis, er þannig að ríkið ætlar að koma með 30 millj­arða að borð­inu, sveit­ar­fé­lögin saman með 15 millj­arða, auk þess sem áætl­anir gera ráð fyrir að 15 millj­arðar króna fáist fyrir ráð­stöfun Keldna­lands­ins.

Þá standa heilir 60 millj­arðar króna eftir, eða 50 pró­sent alls þess fjár­magns sem áætlað er að renni til sam­göngu­bót­anna í Stór-Reykja­vík á næsta rúma ára­tug. Þessi hluti fjár­mögn­un­ar­innar á að nást í kass­ann með svoköll­uðum flýti- og umferð­ar­gjöldum, sem enn hafa ekki verið útfærð.

Samtalið hafið

Davíð Þor­láks­son, fram­kvæmda­stjóri Betri sam­gangna ohf., sér­staks félags í eigu ríkis og sveit­ar­fé­laga sem stofnað var til þess að halda utan um fram­kvæmd­irnar í sam­göngusátt­mál­anum og fjár­mögnun þeirra ræddi þessi mál aðeins á morg­un­fundi sem Vega­gerðin stóð fyrir í gær.

Hann kom því þar á fram­færi að hlut­verk Betri sam­gangna væri ein­göngu það að inn­heimta gjöldin fyr­ir­hug­uðu, en fyrst þyrftu stjórn­mála­menn að útfæra hvernig gjöldin yrðu og setja fram laga­frum­varp sem heim­ilar þessa gjald­töku á Alþingi.

Í erindi sínu sagði hann að sam­tal væri hafið milli sveit­ar­fé­laga, rík­is­ins og Betri sam­gangna um útfærslu til­lagna að þessum gjöldum og bætti svo við að von­andi yrði hægt að kynna það „fljót­lega“.

Stóru spurningunum þurfi að beina til pólitíkusana

Undir lok fund­ar­ins fékk Davíð svo spurn­ingu sem varð­aði leiðir til þess að hafa áhrif á umferð á anna­tímum, eins og til dæmis bíla­stæða­gjöld, skatt­kerf­is­breyt­ingar eða íviln­anir.

[adspot]

„Þetta kannski teng­ist þess­ari umræðu um flýti- og umferð­ar­gjöld, sem er bara að fara af stað. Þetta líka teng­ist því að það eru að eiga sér stað orku­skipti í sam­göngum og eins og ríkið orðar það er það að verða af miklum tekjum út af því, bensín- og olíu­gjöldin eru að renna sitt skeið á enda og ég held að flestum þyki sann­gjarnt að þeir sem nota þessa inn­viði borgi að ein­hverju leyti fyrir þá.

Að þessu leyti teng­ist þetta okkur, því okkur hjá Betri sam­göngum er ætlað að inn­heimta flýti- og umferð­ar­gjöld á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þegar komin er lög­gjöf um það, en stærri spurn­ing­unum í þessu er kannski betra að beina til póli­tíku­sana frekar en okkar, emb­ætt­is­mann­anna,“ sagði Davíð, í svari sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár