Krefjandi aðstæður á íbúðamarkaði - Sár vöntun á litlum og meðalstórum íbúðum

Alþýðu­sam­band Íslands hefur tekið saman ítar­lega skýrslu um stöðu mála á hús­næð­is­mark­aði, og segir þar að ungt fólk eigi margt erfitt upp­dráttar vegna þess hve erfitt er að kaupa fast­eign.

Ungt fólk á í erf­ið­leikum með að stíga skrefið inn á hús­næð­is­markað og dvelur lengur í for­eldra­húsum fyrir vikið. Eft­ir­spurn eftir litlum og með­al­stórum íbúðum eykst stöðugt, en fram­boðið hefur ekki fylgt þeirri þróun, og má meðal ann­ars rekja þær aðstæður til áfalls­ins sem bygg­inga­mark­að­ur­inn hér á landi varð fyrir við hrunið, þegar fast­eigna­mark­að­ur­inn nær alveg botn­fraus, bygg­inga­kostn­aður rauk upp og aðgengi að lánsfé varð erf­ið­ara.

„Unga fólkið sem hyggst stíga sín fyrstu spor á hús­næð­is­mark­aðnum verður einna verst úti. Fjöldi fólks kemst ekki úr for­eldra­húsum og einnig má ætla að full­orðið fólk sem vill minnka við sig hafi ekki tök á því vegna skorts á litlu hús­næði og lít­illi eft­ir­spurn eftir stærri eignum þeirra,“ segir í nýrri skýrslu ASÍ, um stöðu mála á hús­næð­is­mark­aði, sem kom út í dag.

Af hverju er lítið byggt?

Í henni kemur fram að til­tölu­lega hröð breyt­ing hafi verið á íbúða­mark­aði á Íslandi, þarsem 20,8 pró­sent þeirra sem á honum eru búi í leigu­hús­næði en hlut­fallið var 12,9 pró­sent árið 2008. Mikil og sár vöntun sé á upp­bygg­ingu íbúða til að mæta auk­inni eft­ir­spurn, enda fjölgar fólki til­tölu­lega stöðugt og stórar árangar að koma út á íbúða­markað á næstu árum. „Á árunum 2009-2013, var ein­ungis lokið við bygg­ingu 2.000 nýrra íbúða, en almennt er talið að byggja þurfi 1.500-1.800 nýjar íbúðir á ári hverju til þess að svara eðli­legri eft­ir­spurn miðað við þróun sam­fé­lags­ins. Þrátt fyrir mikið offram­boð íbúða sem byggðar voru á árunum fyrir hrun er mik­ill skortur á litlum íbúðum sem henta til fyrstu kaupa. Þau rök heyr­ast oft að bygg­inga­reglu­gerð og hátt lóða­verð valdi háum bygg­inga­kostn­aði og kann það að vera hluti af ástæðu þess að ekki sé farið að byggja meira,“ segir í skýrslu ASÍ.

Fleiri leigja

Þá sýni tölur þar sem þróun á íbúða­mark­aði er greind á árunum 2005 til og með 2013 að miklar og hraðar breyt­ingar séu leið­ast fram á íbúða­mark­aði, sem þurfi að huga vel að hvernig sé best að móta reglu­verk fyrir. Eitt af því sem setji svip sinn á stöðu leigu­mark­að­ar­ins þessa stund­ina, og rýrir fram­boð almennra leigu­í­búða, er fjöldi íbúða sem ein­stak­lingar leigja til ferða­manna. „Eins og staðan er í dag eru yfir 3.500 íslenskir gisti­kostir á skrá hjá Airbnb sem er fyr­ir­tæki sem gerir fólki kleift að leigja ferða­mönnum hús­næði sitt. Þetta hefur þær afleið­ingar í för með sér að fram­boð leigu­í­búða til almenn­ings dregst saman og verð hækkar. Hvað varðar fjölda fólks sem býr í leigu­hús­næði sam­an­borið við eigið hús­næði, þá fjölg­aði leigj­endum hlut­falls­lega mun meira en þeim sem búa í eigin hús­næði fækk­aði í kringum efna­hags­hrunið. Á árunum 2005-2013 fjölg­aði leigj­endum um 85% á meðan þeim sem búa í eigin hús­næði fækk­aði ekki nema um 4 pró­sent,“ segir í skýrsl­unni.

Veruleikinn annar en sýnist

Sam­an­burður á vísi­tölu leigu­verðs, íbúða­verðs og vísi­tölu launa síð­ast liðið ár sýnir að leigu­verðs­vísi­talan hefur hækkað hlut­falls­lega minnst, að því er segir í skýrsl­unni. Samkvæmt þessum upp­lýs­ingum virð­ist staðan á leigu­mark­aði því alls ekki vera slæm ef ein­ungis er tekið til­lit til verðs. Hins vegar ber að athuga að gæði og magn þeirra upp­lýs­inga sem við höfum um leigu­mark­að­inn gefa ekki endi­lega raun­hæfa mynd. Vísitala leigu­verðs bygg­ist á leigu­verði sam­kvæmt þing­lýstum leigu­samn­ingum. Það er þó ekki skylda að þing­lýsa leigu­samn­ingi og hvat­inn til að þing­lýsa fer oft­ast eftir því hvort við­kom­andi eigi rétt á húsa­leigu­bótum eða ekki. Þing­lýstir samn­ingar eru því ekki nema hluti af heild­inni.

Húsa­leigu­bætur skerð­ast eftir því sem tekjur aukast og eru leigj­endur í mörgum til­fellum með of háar tekjur til þess að eiga rétt á bótum og láta þess vegna ekki þing­lýsa samn­ingum. „Það kemur því ekki á óvart að þegar hag­deild ASÍ fór í gegnum allar leigu­aug­lýs­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kom í ljós mun hærra verð en þing­lýstir leigu­samn­ingar gáfu til kynna,“ segir í skýrsl­unni.

Í sept­em­ber var með­alleigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tæp­lega 95 þús­und krónur fyrir stúdíó íbúð sam­kvæmt þing­lýstum leigu­samn­ingum, rúm­lega 127 þús­und krónur fyrir tveggja her­bergja íbúð, tæp­lega 160 þús­und fyrir þriggja her­bergja íbúð og 189 þús­und krónur fyrir fjög­urra til fimm her­bergja íbúð sam­kvæmt gögnum frá Þjóðskrá.

Farið var í gegnum allar aug­lýs­ingar um leigu­í­búðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á leiga.is, hjá Leigu­list­anum , á husa­leiga.is, mbl.is og visir.is þann 17. sept­em­ber s.l. Verðin voru skráð og flokkuð eftir teg­und íbúða. Einungis voru teknar til skoð­unar aug­lýs­ingar um íbúðir þar sem gefið var upp leigu­verð, þ.e. ekki þegar óskað var eftir til­boði.

Þær tölur voru bornar saman við verð sam­kvæmt þing­lýstum leigu­samn­ingum og í ljós kom mik­ill verð­munur. Í sumum til­fellum var yfir 30 pró­sent hærra verð að finna í leigu­aug­lýs­ingum, að því er segir í skýrsl­unni.

Nýtt húsnæðisleigukerfi styrkir stöðu fjölskyldna

Það stendur til að breyta húsa­leigu­bóta­kerf­inu og hækka grunn­fjár­hæðir ásamt frí­tekju­mörku. Önnur breyt­ing er sú að bæt­urnar munu fara eftir fjölda heim­il­is­manna en ekki ein­ungis fjölda barna. Þannig vænkast hagur hjóna og sam­búð­ar­fólks hlut­falls­lega mest, segir í skýrsl­unni.

Eftirfylgni og úrræði þarf að auka

ASÍ segir í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar, að mik­il­vægt sé að efla inn­viði leigu­mark­að­ars­ins, með skýru reglu­verki og fjölgun búsetu­úr­ræða. Þó boð­aðar hafi verið mögu­legar úrbætur af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar, þá þurfi það ekki endi­lega að leiða til betri stöðu fyrir mark­að­inn í heild. „Hækka á húsa­leigu­bætur eins og minnst hefur verið á. Það gæti þó haft þær afleið­ingar í för með sér að mark­aðs­öflin líti á það sem svo að greiðslu­geta leigj­enda hafi auk­ist sem leiðir til þess að svig­rúm mynd­ast til þess að hækka leigu, að öðru óbreyttu. Eft­ir­fylgni af leigu­mark­að­inum og þróun leigu­verðs þarf því að vera mikil og mun áreið­an­legri en hún er nú ásamt því sem fjölga þarf búsetu­úr­ræðum,“ segir í skýrslu ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár