Tveir af æskuvinum sænska rithöfundarins heitna Stiegs Larsson, höfundar Millenium-þríleiksins sem vinsælar bíómyndir voru gerðar eftir, eru allt annað en sáttir við þá ákvörðun að gefa út fjórðu bókina sem skrifuð er af öðrum höfundi, David Lagercrantz. Kalla þeir meðferðina á verkum hans „grafarrán“ og „sirkus“. Þetta skrifa vinir Larssons, Svante Brandén og Anders Lindblom í grein í Dagens Nyheter í dag. Greinin er skrifuð vegna þess að fjórða bókin í seríunni kemur út í lok mánaðarins og er mikil eftirvænting eftir henni í Svíþjóð og víðar en hún verður gefin út samtímis í nokkrum löndum. „Enginn annar en Stieg getur skrifað framhaldið á skáldskaparheimi hans. Látið höfundarverk Steigs hvíla í friði sem og höfuðpersónurnar í bókum hans,“ segir í greininni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir