Ekkert þokast í launadeilu flugvirkja

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins segir að ef það komi til verk­falls flug­virkja þá muni það hafa áhrif á tíu þús­und far­þega á hverjum degi sem það varir.

Ekkert hefur þok­ast í launa­deilu flug­virkja hjá Icelandair en kjara­samn­ingar hafa verið lausir frá því í haust og stefnir allt í að verk­fall hefj­ist á sunnu­dag, eins og boðað hefur verið ef ekki tekst að ná samn­ingum.

Í Frétta­blað­inu í dag kemur fram að krafa flug­virkja sé sú að hækka um 20 pró­sent í launum, en Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að kröf­urnar séu óraun­hæfar með öllu.

Í grein sem hann skrifar í Morg­un­blaðið í dag segir hann að ekki sé hægt að verða við kröf­unum, því þá myndi allur vinnu­mark­að­ur­inn kom­ast í upp­nám. „Boðaðar verk­falls­að­gerðir Flug­virkja­fé­lags­ins, vegna flug­virkja hjá Icelandair, munu hafa áhrif á um 10.000 far­þega hvern dag sem verk­fall varir. Flug­virkjum hjá Icelandair stendur til boða launa­hækkun í sam­ræmi við það sem aðrir í sam­fé­lag­inu fá. Með verk­falls­hótun á við­kvæm­asta tíma er stétt­ar­fé­lag þeirra að reyna að þvinga fram kaup­hækk­anir langt umfram það. Aðilar vinnu­mark­aðar hafa dregið línu í sand­inn og frá henni verður ekki hvikað. Ástæðan er ein­föld: Ef á kröf­urnar yrði fall­ist myndu nið­ur­stöður slíks samn­ings hell­ast yfir allan vinnu­mark­að­inn og kippa stoð­unum undan efna­hags­legum stöð­ug­leika,“ segir Halldór Benjamín.

Óskar Ein­ars­son, for­maður Flug­virkja­fé­lags Íslands, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að samn­inga­nefnd Icelandair sé frekar róleg yfir stöðu mála en hann sé far­inn að setja sig í stell­ingar fyrir verk­fall á sunnu­dag.

Halldór Benjamín segir að kjara­samn­ing­arnir sem séu framundan séu afar mik­il­vægir. Þeir geti haft áhrif á umgjörð atvinnu­lífs­ins horft til langrar fram­tíðar. „Nið­ur­stöður þeirra munu ákvarða hvort hér á landi verður stöð- ugleiki eða ekki. Það er ábyrgð­ar­hluti sem atvinnu­rek­endur, hið opin­bera og við­semj­endur þeirra standa frammi fyrir. Sú ábyrgð nær einnig til Flug­virkja­fé­lags­ins. Launa­hækk­anir umfram getu efna­hags­lífs­ins valda verð­bólgu. Frekari skerð­ing en þegar er orðin á sam­keppn­is­stöðu atvinnu­lífs­ins, vegna mik­illar hækk­unar launa­kostn­aðar und­an­farin ár og styrk­ingar krón­unnar, er ekki sjálf­bær, stuðlar að við­skipta­halla og erlendri skulda­söfnun. Það gerð­ist síð­ast á upp­gangs­ár­unum 2004-2007 og hefur ítrekað gerst á árum áður. Ójafn­vægið leið­rétt­ist ávallt með geng­is­falli krón­unnar, verð­bólgu og rýrnun lífs­kjara. Þessi leið er full­reynd og finna má mýmörg dæmi um hana í hag­sögu Íslands,“ segir Halldór Benjamín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár