Tíu staðreyndir um íbúa Íslands

Hag­stofan tekur saman frum­gögn um mann­fjölda á Íslandi og upp­runa­legt þjóð­erni fólks. Í gær birti Hag­stofan upp­lýs­ingar um stöðu mála í byrjun apríl á þessu ári, eða í lok fyrsta árs­fjórð­ungs.

1. Í lok 1. árs­fjórð­ungs 2016 bjuggu 334.300 manns á Íslandi, 168.360 karlar og 165.930 konur og hafði lands­mönnum fjölgað um 1.540 á árs­fjórð­ungnum. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu bjuggu 214.740 manns en 119.560 utan höf­uð­borg­ar­svæðis.

2. Um 65 pró­sent lands­manna búa núna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eins og það er skil­greint hjá Hag­stof­unni, og 35 pró­sent á lands­byggð­inni.

3. Á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins fædd­ust 980 börn, en 590 ein­stak­lingar lét­ust. Á sama tíma flutt­ust þús­und ein­stak­lingar til lands­ins umfram brott­flutta. Brott­fluttir ein­stak­lingar með íslenskt rík­is­fang voru 110 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar voru 1.110 fleiri en þeir sem flutt­ust frá land­inu.

4. Fjöldi fólks með íslenskt rík­is­fang, sem flytur frá land­inu, hefur verið tölu­vert meiri en sá fjöldi sem flytur til lands­ins, allt frá hruni. Sé horft til áranna 2009 til og með 2014 þá fluttu 7.212 ein­stak­lingar með íslenskt rík­is­fang frá land­inu umfram aðflutta. Á sama tíma hefur straumur fólks með erlent rík­is­fang verið stöð­ugur.

5. Hag­stofan greinir ekki hvernig speki­leki (braindrain) er úr hag­kerf­inu, það er hvaða starfs­reynsla eða menntun er hjá þeim ein­stak­lingum sem flytja til og frá land­inu. Ástæðan er sú að Þjóðskrá gerir ekki kröfu um að fólk upp­lýsi um menntun sína eða starfs­reynslu þegar það gefur upp upp­lýs­ingar vegna flutn­inga. Því er ekki vitað nákvæm­lega hvað það er sem býr að baki flutn­ingi í hvert og eitt skipti.

6. Danmörk var helsti áfanga­staður brott­fluttra íslenskra rík­is­borg­ara en þangað flutt­ust 190 manns á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Til Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar flutt­ust 460 íslenskir rík­is­borg­arar af 710 alls. Af þeim 540 erlendu rík­is­borg­urum sem flutt­ust frá land­inu fóru flestir til Póllands, 130 manns.

7. Flestir aðfluttir íslenskir rík­is­borg­arar komu frá Danmörku (170), Noregi (150) og Svíþjóð (110), sam­tals 440 manns af 600. Pólland var upp­runa­land flestra erlendra rík­is­borg­ara en þaðan flutt­ust 610 til lands­ins af alls 1.650 erlendum inn­flytj­endum. Litháen kom næst, en þaðan flutt­ust 100 erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins.

8. Af heild­ar­fjölda lands­manna í byrjun apríl, 334.300 manns, þá voru inn­flytj­endur um 8,3 pró­sent af heild­ar­fjöld­anum, eða 27.660. Ef þróun mála verður með svip­uðum hætti á næstu miss­erum, verða inn­flytj­endur hér á landi um tíu pró­sent af heild­ar­fjöld­anum, í byrjun árs 2018.

9. Árið 2009, eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins og krón­unnar, fluttu tæp­lega 5.000 manns frá Íslandi umfram aðflutta. Þar af voru 2.466 með íslenskt rík­is­fang, umfram aðflutta, og 2.369 með erlent rík­is­fang, umfram aðflutta. Þetta er stærsta brott­flutn­ingsár fólks frá Íslandi, sé horft yfir und­an­farin 30 ár.

10. Samkvæmt svo­nefndri mið­spá Hagstofu Íslands, þegar kemur að mann­fjölda, er gert ráð fyrir að Íslend­ingar verði í heild­ina 377.699 árið 2030. Háspáin gerir ráð fyrir 402.489 en lág­spáin 356.941. Sé miðað við lág­spána, þá mun Íslend­ingum fjölga um 21.700 á næstu fjórtán árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár