Eyþór: Búinn að ganga úr meirihluta þeirra stjórna sem ég sat í

Oddviti Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík fer yfir kosn­inga­lof­orð flokks­ins í sjón­varps­þætti Kjarnans í kvöld. Þar upp­lýsir hann einnig um stöðu sína í við­skiptum og þá breyt­ingu sem orðið hefur á þeirri stöðu. Hlutur hans í Morg­un­blað­inu er til sölu.

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, segir að hann sé búinn að ganga úr meiri­hluta þeirra stjórna í fyr­ir­tækjum og eign­ar­halds­fé­lögum sem hann sat áður í. „Ég fór bara í þann feril strax, annað hvort að fá aðra inn í þær stjórnir eða að hafa engan. Þá eru bara aðrir sem taka við stjórn­un­inni. Ég geri það sem ég lofa. Og stend við þetta.“

[links]Samkvæmt umfjöllun Stund­ar­innar í jan­úar síð­ast­liðnum var Eyþór stjórn­ar­maður í 26 fyr­ir­tækjum eða félögum þegar hann ákvað að bjóða sig fram í leið­toga­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­manna, sem hann svo sigr­aði með nokkrum yfir­burðum. Í yfir­liti hjá Creditinfo sést að hann er nú skráður í stjórn eða sem fram­kvæmda­stjóri sjö félaga.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali við Eyþór í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut í kvöld. Þátt­ur­inn verður frum­sýndur klukkan 21 í kvöld.

[adspot]Um er að ræða síð­asta þátt vetr­ar­ins og í honum fer Eyþór meðal ann­ars ítar­lega yfir þau kosn­inga­lof­orð sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kynnti nýverið og bregst við þeirri gagn­rýni sem fram hefur komið á þau. Hægt er að horfa á stiklu úr þætti kvölds­ins hér að ofan.

Síminn opinn ef einhver vill kaupa í Morgunblaðinu

Sú eign Eyþórs sem mest hefur verið rætt um í þessu sam­bandi er eign­ar­hlutur hans í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, en félag Eyþórs er stærsti ein­staki eig­andi Árvakurs með 22,87 pró­senta eign­ar­hlut.

Eyþór segir í þætti kvölds­ins að hann sé far­inn úr stjórn Árvakurs og hafi ekki sett neinn mann í stað­inn fyrir sig þangað inn. „ Ég hef engin afskipti af Morg­un­blað­inu í dag. Ef þú veist um kaup­anda þá er sím­inn opinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár