Kröfuhafavarðhundur varar Íslendinga við í auglýsingu í Fréttablaðinu

Hluti af auglýsingunni sem birtist í Fréttablaðinu í dag.
Hluti af aug­lýs­ing­unni sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag.

„Við höfum séð þetta áður. Þegar kæru­laus stjórn­völd fyr­ir­gera rétt­ar­rík­inu hverfur erlend fjár­fest­ing og lands­menn gjalda fyrir það. Á Íslandi mis­muna ný lög alþjóð­legum fjár­festum og neyða þá til að selja skulda­bréf sem tryggð eru í krónum með miklum afslætti, eða til að láta eignir sínar á reikn­inga sem bera enga vexti. Tölum skýrt: Sví­virði­leg ný lög lands­ins mis­muna fjár­festum eftir þjóð­erni þeirra. Frekar en að halda áfram við­ræðum við alþjóð­lega fjár­festa sem reynt hafa að ná samn­ingum í góðri trú hefur Ísland stillt þeim upp við vegg.“

Svona hljómar byrjun texta aug­lýs­ingar sem birt­ist á síðu 9 í Frétta­blað­inu í dag. Þar er enn fremur settur fram hræðslu­á­róður um að meint mis­munun íslenskra stjórn­valda setji í hættu„efna­hags­legt öryggi íslenskra borg­ara.“ Aug­lýs­ingin hefur einnig verið birt á dönsku í dönskum fjöl­miðlum, m.a. við­skipta­blað­inu Börsen, og á ensku í banda­rískum fjöl­miðlum.

Sá sem ber ábyrgð á aug­lýs­ing­unni er verk­efnið „IcelandWatch.org“ sem rekið er af hug­veit­unni Institute for Liberty. Í aug­lýs­ing­unni kemur sér­stak­lega fram að verk­efnið sé enn fremur fjár­magnað af hug­veit­unni. The New York Times fjall­aði um Institute for Liberty árið 2011 eftir að hug­veitan hafði beitt sér í Indónesíu. Þá snérist verk­efni hennar um að koma í veg fyrir að ákveðin papp­írs­fyr­ir­tæki þyrftu að greiða toll af vörum sínum í Banda­ríkj­unum. Hug­veitan var stofnuð 2005 af manni sem heitir Jason Wright sem hefur m.a. barist gegn sjúkra­trygg­inga­lögum Barack Obama gegn hárri greiðslu.

IcelandWatch.org verk­efnið vakti fyrst athygli hér­lendis þegar það keypti birt­ingar á Twitter til að koma boð­skap sínum á fram­færi. Augljóst er að til­gang­ur­inn er að gæta hags­muna erlendra kröfu­hafa sem neit­uðu að taka þátt í aflandskrónu­upp­boði Seðla­banka Íslands í sumar sökum þess að þeim fannst gengið sem þar var í boði fyrir skulda­bréf þeirra ekki nógu hátt. Þess í stað voru eignir þeirra settar inn á vaxta­lausa reikn­inga. Það var hægt vegna sér­stakra laga sem Alþingi setti í aðdrag­anda útboð­anna. Laga­setn­ingin var rök­studd með því að aðgerð­irnar þættu nauð­syn­legar til að stuðla að greiðslu­jafn­vægi í íslenska efna­hags­kerf­inu og verja stöð­ug­leika lands­ins.

Tveir banda­rískir sjóð­ir, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capi­tal LP, sættu sig ekki við að eignir þeirra hafi verið settar inn á nær vaxta­­­lausa reikn­inga í refs­ing­­­ar­­­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­unum. Þess í stað fólu sjóð­irnir lög­­­­­manni sínum að kanna grund­­­völl fyrir mög­u­­­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­­­inu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eft­ir­lits­­­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­­­setn­ingar sem sam­­­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí síð­­­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­­­ar­­­upp­­­­­töku og brot á jafn­­­ræð­is­­­reglu. Fyrsta skrefið í þeirri við­leitni var að fara fram á það við hér­aðs­dóm Reykja­víkur að sér­fræð­ingar verði skip­aðir til að fara yfir lög­mæti þeirra aðgerða sem fram­kvæmdar voru gegn aflandskrónu­eig­endum með lögum sem sam­þykkt voru fyrr á þessu ári. 

Íslenska ríkið hefur reynt að koma í veg fyrir að hér­aðs­dómur Reykja­víkur skipi sér­fræð­inga til að meta hvort ríkið hefði efna­hags­legar for­sendur fyrir því að neita að skipta aflandskrónum sjóð­anna tveggja á lægra verði en mark­aðs­verði, líkt og Kjarninn hefur greint frá. 

Mál­flutn­ingur IcelandWatch.org er keim­líkur mál­flutn­ingi vog­un­ar­sjóð­anna tveggja. Í aug­lýs­ing­unni sem birt var í Frétta­blað­inu í dag er enn fremur lögð áhersla á að sýna fram á að í raun sé verið að hafa fé af almenn­ingi í Banda­ríkj­unum með aðgerðum Íslend­inga, ekki bara and­lits­lausum vog­un­ar­sjóðum í gróða­hug­leið­ingum. Í síð­ari hluta hennar segir: „Gjörðir Íslands munu skaða millj­ónir banda­rískra fjár­festa sem og stofn­anir og almenn­ing sem hafa sparifé í ein­stak­lings­bundnum sér­eigna­sparn­aði, líf­eyr­is­sjóðum og trygg­inga­sjóðum. Þetta eru sömu fjár­festar og Seðla­banki Íslands leit­aði til árið 2008 og létu honum í té það fjár­magn sem þörf var á til að koma stöð­ug­leika á íslenskan efna­hag. Hag­vöxtur á Íslandi er nú 4,5%. Ferða­manna­iðn­að­ur­inn blómstrar. Atvinnu­leysi er bara 2,5% Mismunun íslenskra stjórn­valda með þess­ari laga­setn­ingu setur í hættu allan þennan ávinn­ing, sem og efna­hags­legt öryggi íslenskra borg­ara. Það er tími til kom­inn að Ísland hætti þess­ari mis­munun og komi jafnt fram við alla fjár­festa, sama hvar þeir kunna að búa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kröfuhafar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár