Fröken Klukka

Fyrir örfáum ára­tugum hringdi fólk í Fröken Klukku til að vita nákvæm­lega hvað klukkan væri. Þótt nútíma­tækni hafi tekið við hlut­verki Fröken­ar­innar svarar hún enn hér á Íslandi. Í Danmörku hefur Frøken Klokken lagt á og svarar ekki lengur.

Í ágúst árið 1937 greindu íslenskir fjöl­miðlar (dag­blöð og útvarp) frá því að Land­sím­inn hefði fest kaup á tal­vél frá sænska fyr­ir­tæk­inu L.M. Ericsson. Þegar hringt yrði í til­tekið síma­númer (03) myndi rödd umsvifa­laust til­kynna hvað klukkan væri. Þetta þóttu mikil tíð­indi. Í nóv­em­ber þetta sama ár mátti lesa í dag­blöð­unum að Fröken Klukka, sem líka var kölluð Ungfrú Klukka, væri tekin til starfa. Halldóra Briem, sem þá stund­aði nám í Svíþjóð, léði klukk­unni rödd sína. Í umfjöllun Nýja Dag­blaðs­ins mátti lesa að rödd ung­frú Halldóru væri bæði fögur og hrein og hún, ung­frúin, myndi vafa­laust verða vin­sæl meðal Reyk­vík­inga. Halldóra, sem var fyrst íslenskra kvenna til að læra arki­tektúr bjó og starf­aði í Svíþjóð að námi loknu en hún lést árið 1993, átt­ræð að aldri.

Frönsk uppfinning

Fyrsta tal­vélin var fundin upp í Frakk­landi árið 1933. Tækið vakti mikla athygli og sér­fræð­ingar síma­fyr­ir­tækja í mörgum löndum lágu yfir þessu nýja tækni­undri. Svíar voru fljótir að not­færa sér þessa nýju tækni og þar tók Fröken Ur til starfa árið 1934. Curt Ahlberg verk­fræð­ingur hjá L.M.Ericsson í Stokk­hólmi end­ur­bætti árið 1936 frönsku upp­finn­ing­una. Það var í höf­uð­stöðvum L.M.Ericsson sem áður­nefnd Halldóra Briem las inn á tal­vél­ina. Lesa þurfti inn 90 mis­mun­andi upp­tökur, 24 klukku­stunda­tölur, 60 mín­útu­tölur og sex sek­úndu­tölur, eina fyrir hverjar tíu sek­úndur. Samtals 90 upp­tökur sem tal­vélin, með sinni tækni, gat spilað í 8640 mis­mun­andi útgáfum. Það er athygl­is­vert að aðeins voru fjögur ár frá því að tal­vélstæknin var fundin upp þangað til Halldóra Briem gat upp­lýst Reyk­vík­inga um hvað tím­anum liði.

[adspot]

Vinsæl og mikið notuð

Spá Nýja Dag­blaðs­ins um vin­sældir klukk­unnar og ung­frú Halldóru reynd­ust réttar. Reyk­vík­ingar kunnu sann­ar­lega að not­færa sér að geta með einu sím­tali fengið að vita hvað klukkan væri. Sem dæmi um vin­sældir Fröken Klukku má nefna að árið 1953 hafði hún svarað 22 millj­ónum upp­hring­inga, það sam­svarar um það bil hálfri annarri milljón á ári. Eitt dag­blað­anna nefndi að meðal þeirra sem hvað ánægð­astir voru með þjón­ustu Fröken Klukku á fyrstu „starfs­árum“ hennar væru lög­reglu­þjónar, úrsmiðir og slökkvi­liðs­menn, sem alltaf, eins og blaðið komst að orði, var verið að spyrja hvað klukkan væri.

Ekki gátu allir lands­menn tekið upp tólið og hringt í fröken­ina. Sá lúxus var í fyrstu bund­inn við Reykja­vík, sem einn staða hafði sjálf­virkan síma (kom 1932). Næst í sjálf­virku síma­röð­inni var Akureyri, árið 1950.

Þrjár konur, einn karl, fjögur símanúmer

Eins og áður var getið var það Halldóra Briem sem var fyrsta rödd Frökenar Klukku. Árið 1963 var upp­haf­legu gler­plöt­unum sem geymdu hljóðið skipt út og sam­tímis skipti Fröken Klukka um rödd. Nú var það rödd Sigríðar Hagalín leikkonu sem upp­lýsti þann sem hringdi um réttan tíma. 1993 var enn skipt um búnað og rödd, sú nýja var rödd Ingi­bjargar Björns­dóttur leikkonu. Árið 2013 heyrð­ist í fyrsta skipti karl­manns­rödd svara þegar hringt var í klukk­una, sú rödd til­heyrir Ólafi Darra Ólafs­syni. Hann situr enn við sím­ann, ef svo mætti að orði kom­ast. Fröken Klukka er því orðin karl­maður.

Í upp­hafi var núm­erið hjá Fröken Klukku 03, síðar breytt­ist það í 04, enn síðar í 155 en í dag er núm­erið 511 0155. Þrátt fyrir tækninýj­ungar er íslenska klukku­þjón­ustan sem sé enn til staðar þótt þörfin fyrir hana sé ekki sú sama og áður fyrr.

Frøken Klokken

Árið 1939 hafði danska síma­fé­lagið Kjøben­havns Telefon Aktie-Selskab, KTAS, keypt tal­vél hjá L.M.Ericsson. Ung kona, Anna Sommer -Jensen las þá inn á vél­ina í höf­uð­stöðvum L.M.Ericsson í Stokk­hólmi. Danska útvarpið, Stats­radi­of­on­ien (eins og það hét þá) hóf starf­semi árið 1925 og hafði frá upp­hafi sent út mors­merki á heilu tímunum, þegar fréttir voru sagðar. Fimm stutt „dut“ og eitt langt. Þegar Frøken Klokken kom til sög­unnar hætti danska útvarpið að senda út mors­merkið en rödd Anna Sommer-Jensen til­kynnti Dönum oft á dag hvað tím­anum liði, í upp­hafi frétta.

Árið 1970 var tal­vél­inni frá 1939 skipt út og á sama tíma skipti Frøken Klokken um rödd og heyrð­ist nú aðeins einu sinni á dag í útvarp­inu: í upp­hafi útvarps­frétta klukkan átta að morgni. Nýja röddin til­heyrði Marianne Germer, sem um nokk­urra ára skeið hafði verið þulur í danska útvarp­inu. Í des­em­ber 1991 hætti rödd Frøken Klokken að heyr­ast í útvarp­inu en áfram en áfram var vita­skuld hægt að hringja í 0055 og fá að vita, nákvæm­lega, hvað klukkan væri.

Nú hefur Frøken Klokken lagt á, í síðasta sinn

Frøken Klokken, Fröken Klukka, Fröken Ur og hvað þær nú hétu allar komu í góðar þarfir á sínum tíma. En nú eru breyttir tímar, lang­flestir með far­síma í vas­anum, eða á hand­leggnum og úr sem ganga rétt kosta lítið og fást víða.

Danska Frøken Klokken hætti að svara á mið­nætti 30. nóv­em­ber sl. Í Noregi var hætt að bjóða upp á þjón­ust­una árið 2007, Fröken Ur í Svíþjóð svarar enn, Finnar hafa getað hringt í klukk­una frá árinu 1936 og fá enn svar og hér á Íslandi svarar klukkan þegar hringt er í núm­erið sem nefnt var framar í þessum pistli, 511 0155.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknimál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár