Misbrestur í skattaskilum kvikmyndafyrirtækja

Rík­is­end­ur­skoðun segir að mis­brestur hafi verið á skatt­skilum erlendra aðila vegna fram­leiðslu kvik­mynda eða sjón­varps­efnis hér á landi og brýnir það fyrir stjórn­völdum að hafa öfl­ugt eft­ir­lit með lög­mæti kostn­að­ar­upp­gjöra.

Auka þarf eft­ir­lit og end­ur­skoðun kostn­að­ar­upp­gjöra kvik­mynda­fyr­ir­tækja að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar og þá sér­stak­lega kostn­að­ar­minni verk­efna. Íslenskir og erlendir kvik­mynda­fram­leið­endur fengu end­ur­greidda rúma 9 millj­arða króna úr rík­is­sjóði á síð­ustu 18 árum. Rík­is­end­ur­skoðun telur að aðkoma skatta­yf­ir­valda að end­ur­greiðslum vegna kvik­mynda­fram­leiðslu hér á landi hafi hins­vegar ekki verið virk né kerf­is­bundin.

Meiri en helmingur verkefna þurfa ekki að skila endurskoðuðu kostnaðaruppgjöri

Þetta kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um end­ur­greiðslu­kerfi kvik­mynda en í des­em­ber 2018 ákvað rík­is­end­ur­skoð­andi að hefja stjórn­sýslu­út­tekt á end­ur­greiðslu­kerfi kvik­mynda eftir að ábend­ing barst um að hugs­an­lega væri verið að mis­nota kerfið.

Í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar kemur fram að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á tíu fram­leiðslu­verk­efna leiddi ekk­ert í ljós sem bendir til mis­notk­unar á end­ur­greiðslu­kerfi kvik­mynda. Rík­is­end­ur­skoðun telur þó að ýmissa breyt­inga sé þörf og auka þurfi eft­ir­lit með lög­mæti kostn­að­ar­upp­gjöra kvik­mynda­verk­efna og þá ekki síst kostn­að­ar­minni verk­efna.

Verkefni sem hljóta minna en 20 millj­óna króna end­ur­greiðslu þurfa sam­kvæmt núgild­andi lögum ekki að skila end­ur­skoð­uðu kostn­að­ar­upp­gjöra. Þau verk­efni þurfa ein­göngu áritun stjórn­enda á árs­reikn­ingi eða kostn­að­ar­upp­gjöri.

Á tíma­bil­inu 2012 til 2018 hlutu alls 159 verk­efni af 257 minna en 20 millj­óna end­ur­greiðslur eða alls 62 pró­sent þeirra verk­efna sem hlutu end­ur­greiðslur. End­ur­greiðslur vegna þeirra verk­efna námu alls 1,2 millj­örðum. Í skýrsl­unni segir því að ljós sé að um tölu­verðar fjár­hæðir sé að ræða og því mik­il­vægt að efla eft­ir­lit með slíkum verk­efnum.

Skattayfirvöld ekki verið virk

Enn fremur kemur fram í úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar að mis­brestur hafi verið á skatt­skilum af verk­taka­greiðslum erlendra aðila sem komið hafa að fram­leiðslu kvik­mynda eða sjón­varps­efnis hér á landi. Á árunum 2001 til 2018 voru 9,1 millj­arðar greiddur úr rík­is­sjóði til fram­leið­enda á grund­velli end­ur­greiðslu­kerf­is­ins. Þar af 4,7 millj­arðar til inn­lendra fram­leiðslu­verk­efna og um 4,5 millj­arðar. til erlendra fram­leiðslu­verk­efna.

Rík­is­end­ur­skoðun telur að til þess að tryggja hag­kvæma nýt­ingu þess fjár sem veitt er til end­ur­greiðslu­kerf­is­ins þurfi stjórn­völd að hafa öfl­ugt eft­ir­lit með lög­mæti kostn­að­ar­upp­gjöra þeirra verk­efna sem sótt er um end­ur­greiðslu vegna. Í því sam­bandi sé brýnt að ganga úr skugga um að ein­ungis sá kostn­aður sem staðið hefur verið skil á stað­greiðslu opin­berra gjalda vegna telj­ist til end­ur­greiðslu­stofns

Jafn­framt segir í skýrsl­unni að það veki athygli að aðkoma skatta­yf­ir­valda í þessum mála­flokki hafi til þessa ekki verið virk og kerf­is­bundin.

Efla þarf samstarf við ríkisskattstjóra

Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar er sú að end­ur­skoða þurfi lög og reglu­gerðir um end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar. Skil­greina þurfi betur hvers kyns kvik­mynda- og sjón­varps­verk­efni falla undir end­ur­greiðslu­kerfið en á und­an­förnum árum hafi vægi sjón­varps­efnis auk­ist innan end­ur­greiðslu­kerf­is­ins og til­vikum fjölgað þar sem álita­mál er hvort efnið falli að mark­miðum lag­anna. 

Jafn­framt þurfi skýra betur hvaða kostn­að­ar­liðir falla undir end­ur­greiðslu­stofn fram­leiðslu­verk­efna en til að mynda hefur tíðkast að end­ur­greiða hlut­fall matar- og flutn­ings­kostn­aðar starfs­manna sem er í and­stöðu við rekstr­ar­kostn­að­ar­hug­tak tekju­skatts­laga.

Auk þess telur Rík­is­end­ur­skoð­un­ríka ástæðu til þess að að skil­yrða end­ur­greiðslur við rétt skatt­skil og efla sam­starf við emb­ætti rík­is­skatt­stjóra um end­ur­skoðun kostn­að­ar­upp­gjörs þeirra verk­efna sem falla undir end­ur­greiðslu­kerfið, meðal ann­ars til að sann­reyna að greiðsla skatta af ýmsum útgjalda­liðum upp­gjöra hafi átt sér stað.

Endurskoðun á lögunum stendur nú yfir

Jafn­framt telur Rík­is­end­ur­skoðun að kanna mætti kanna hvort umsýsla og þjón­usta við nefnd um tíma­bundnar end­ur­greiðslur sé betur komið fyrir hjá annarri opin­berri stofnun en Kvik­mynda­mið­stöð Íslands, með Kvik­mynda­mið­stöð­ina sem fag­legan umsagn­ar­að­ila.

End­ur­skoðun á end­ur­greiðslu­kerf­inu stendur nú yfir hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti en mark­miðið er meðal ann­ars að meta hvort kerfið starfi í sam­ræmi við mark­mið laga nr. 43/1999. Þá er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti að hefja vinnu við mótun heild­ar­stefnu um kvik­mynda­gerð sem á að gilda fyrir tíma­bilið 2020 til 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár