Stígamót sendu átta kynferðisbrotamál til Mannréttindadómstólsins

Átta kyn­ferð­is­brota­mál sem voru látin niður falla af yfir­völdum hér á landi hafa verið send til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Aðeins brot af slíkum málum rata til dóm­stóla á Íslandi.

Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta til margra ára.
Guðrún Jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta til margra ára. Mynd: Bára Huld Beck

Þó að ýmis­legt hafi áunn­ist í kyn­ferð­is­brota­málum hér á landi, ekki síst hvað vit­und almenn­ings um alvar­leika þeirra varðar, hefur lítið þok­ast í rétta átt í rétt­ar­kerf­inu að mati Guðrúnar Jóns­dóttur, tals­konu Stíga­móta til margra ára sem lét af störfum nýverið.

[adspot]

Í ítar­legu við­tali við Kjarnann um síð­ustu helgi benti Guðrún á að enn rati aðeins brot af kærðum kyn­ferð­is­brota­málum til dóm­stóla og sak­fell­ing­ar­hlut­fall í nauðg­un­ar­málum er aðeins um 11 pró­sent. Mörg þeirra eru látin niður falla. „Að með­al­tali und­an­farin ár er ennþá hægt að telja dóma sem falla í nauðg­un­ar­málum á hverju ári á fingrum handar einnar konu. Á meðan stór­aukn­ing hefur orðið í fjölda þeirra sem leita til Stíga­móta vegna nauð­gana. Þetta eru tveir heimar.“

[links]Og nú er komið að því að sjá hvort að Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn tekur undir með Guðrúnu og Stíga­mótum um að kerf­is­villa valdi því að ekki er ákært í fleiri málum en raun ber vitni. Lög­fræð­ingi var falið það verk­efni að fara í gegnum slík mál og sendi hann í kjöl­farið átta þeirra áfram til dóm­stóls­ins. Allt eru þetta nýleg mál, „og allt eru þetta mál sem við teljum ekki hafa verið unnin nógu vel af yfir­völdum hérna heima,“ segir Guðrún.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn tekur aðeins fyrir um tíu pró­sent þeirra mála sem honum ber­ast. Ákvörðun hans varð­andi málin átta liggur ekki enn fyrir. „Við getum ekki sætt okkur við – og eigum ekki að sætta okkur við – að rann­sóknir á kyn­ferð­is­brota­málum séu ekki full­nægj­andi á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár