Bið eftir sálfræðitíma allt að sjö mánuðir

Langur bið­tími er eftir sál­fræði­þjón­ustu á heilsu­gæslu­stöðvum um land allt. Á lands­byggð­inni er bið­tími allt að sjö mán­uðir en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu allt að átta vikur. Heil­brigð­is­ráð­herra segir ljóst að end­ur­meta þurfi fram­boð á sál­fræði­þjón­ustu.

Biðtími eftir sál­fræði­þjón­ustu á heilsu­gæslu­stöðvum getur verið allt að sjö mán­uðir hér á landi. Mikill munur er eftir lands­hlutum, lengsti bið­tím­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er átta vikur en á Suð­ur­nesj­unum getur biðin verið allt að sjö mán­uðir.

Þetta kemur fram í svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, þing­manns Við­reisnar, um sál­fræði- og geð­lækna­þjón­ustu hér á landi.

Biðtími eftir sálfræðitíma margir mánuðir úti á landi

Á Suð­ur­nesjum er bið eftir sál­fræði­þjón­ustu fimm til sjö mán­uður. Á biðlista bíða 79 manns en það sem af er ári hafa 597 ein­stak­lingar nýtt sér sál­fræði­þjón­ustu á Suð­ur­nesjum. Svipaða sögu má segja um bið­tím­ann á heil­brigð­is­stofn­unum á Aust­ur­landi og Vest­ur­landi en bið­tími getur þar verið tveir til sex mán­uðir. Á Aust­ur­landi sóttu 267 manns sál­fræði­þjón­ustu árið 2017 en bið­tími eftir sál­fræði­tíma á heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands er tveir til sex mán­uðir. Á Vest­ur­landi er bið­tím­inn fyrir börn og ung­menni þrír til fjórir mán­uðir og 37 börn eru á biðlista.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa 2479 ein­stak­lingar nýtt sér sál­fræði­þjón­usta á heilsu­gæslu­stöðvum það sem af er ári. Á árinu 2017 nýttu alls 2.351 ein­stak­lingur sér sál­fræði­þjón­ustu. Biðtími hjá ald­urs­hópum sem eru yngri en 18 ára er oft­ast á bil­inu núll til fjórar vikur en biðin getur verið allt að 8 vikur í ein­staka heilsu­gæslu­stöðvum. Biðtími hjá þeim sem eldri eru er þrjár til átta vikur.

Ljóst að endurmeta þurfi sálfræðiþjónustu

Svandís Svav­ars­dóttir segir í svari sínu að sál­fræði­þjón­usta á heilsu­gæslu­stöðvum hafi verið að byggj­ast upp í sam­ræmi við þings­á­lyktun um stefnu og aðgerða­á­ætlun í geð­heil­brigð­is­málum á und­an­förnum árum. Hún segir að miðað við ofan­greindar upp­lýs­ingar um bið­tíma sé ljóst þörf sé á að efla sál­fræði­þjón­ustu í heilsu­gæslu­stöðvum enn frekar á næstu árum.

Svandís segir jafn­framt að við end­ur­skoðun geð­heil­brigð­is­á­ætl­unar þá verði þjón­usta sál­fræð­inga end­ur­metin. „Núgild­andi geð­heil­brigð­is­á­ætlun gildir út árið 2020 og er ljóst að við end­ur­skoðun þeirrar áætl­unar verður fram­boð á þjón­ustu sál­fræð­inga end­ur­metið í ljósi reynsl­unnar.“

Rúmlega 6000 einstaklingar undir 30 ára leitað til geðlækna síðustu tvö ár

Á árunum 2015 til 2017 leit­uðu sam­tals 6.299 ein­stak­lingar undir 30 ára til geð­lækna og barna­geð­lækna. Þannig leit­uðu 3.377 ein­stak­lingar eftir þjón­ustu á árinu 2015, 3.453 á árinu 2016 og 3.447 á árinu 2017. Ekki er hægt að leggja saman fjölda ein­stak­linga milli ára því sami ein­stak­lingur getur hafa leitað eftir þjón­ustu í meira en eitt ár.

Í upp­hafi árs 2018 voru 7392 ein­stak­lingar á örorku­bótum vegna and­legrar örorku. Það er aðeins hærri tala en var í upp­hafi árs 2017 og 2016. Í upp­hafi árs 2017 voru það 7.313 ein­stak­lingar með örorku­mat sem fyrsti sjúk­dóms­grein­ing­ar­flokkur var geð­rask­anir og í upp­hafi árs 2018 voru það 7.392 ein­stak­lingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár