I think not, Mr. Icehot
Frumvarp um áfengissölu í verslunum er eitt af fáum málum sem þingmenn sjálfstæðismenn geta notast við til að gefa flokknum ímynd frjálslyndis. Það er sauðargæran sem úlfurinn klæðist til að styrkja stöðu sína hjá þeim þriðjungi kjósenda sem styður málið. Þannig notaði fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins tækifærið nýverið í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra til að hnykkja á þessari stefnu flokksins: „Það eru röng skilaboð frá þinginu að treysta ekki fólki til þess að kaupa áfengi í venjulegum verslunum, að það þurfi opinbera starfsmenn til að afhenda slíka vöru yfir búðarborðið. Það eru röng skilaboð.“
Sami fjármálaráðherra og segist talsmaður frjálslyndis í áfengismálum hefur nýverið lagt fram frumvarp sem mun hækka verð á áfengi í landinu. Eins og Félag atvinnurekenda bendir á þá ætlar formaður Sjálfstæðisflokksins að hækka áfengisgjaldið sem er nú þegar með þeim hæstu í heiminum. Þannig hækkar vodkaflaskan úr 5.098 kr. í 5.422 kr. og ginið fer úr 5.498 kr. í 5.839 kr. Sami formaður Sjálfstæðisflokksins hefur líka hækkað matarreikning heimilanna um átta milljarða króna með hækkun matarskatts, heldur verndarhendi yfir einokunarframleiðslu á mjólkurvörum sem hefur leitt til allt að 25% verðhækkana á einu ári og lætur fákeppni á bankamarkaði óáreitta sem hefur leitt til 8% hækkunar á okurvöxtum yfirdráttarlána það sem af er ári.
Sami formaður Sjálfstæðisflokksins kvartar síðan sáran yfir því að almenningur krefjist launahækkana sem eru í einhverju samræmi við þær útgjaldahækkanir sem hann hefur kallað yfir samfélagið með aðgerðum sínum og aðgerðarleysi. „Þið hafið hækkað laun of mikið,“ segir hann við vinnuveitendur á sama tíma og hann hækkar skatta á áfengi og mat.
Nú er ég í hópi þeirra 30% kjósenda sem eru fylgjandi frumvarpi um að verslanir fái að selja áfengi, en að ég láti glepjast af sauðargæru Sjálfstæðisflokksins – I think not, Mr. Icehot.
Nýtt efni

Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna

Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu

Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi

Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar

Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði

Andersson fær annað tækifæri til stjórnarmyndunar

Viðræður að hefjast um nýjan Tækniskóla í Reykjavík

Valdimar varar við að leita sökudólgs í Tækniskólamálinu

Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind

Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“








Athugasemdir