Lækkandi skuldir og kröftugur hagvöxtur hækka lánshæfiseinkunn í A

Láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tækið Fitch hefur hækkað láns­hæf­is­mats­ein­kunn í A, og segir horfur stöðugar. Skuldir rík­is­ins eru nú komnar niður fyrir 50 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu.

Láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tækið Fitch Ratings til­kynnti í dag að það hefði hækkað láns­hæf­is­ein­kunn rík­is­sjóðs á lang­tíma­skuld­bind­ingum í inn­lendum og erlendum gjald­miðli í „A“ úr „A-“.

Þá eru horfur fyrir ein­kunn­ina sagðar stöðugar (e. outlook stable). Helstu drif­kraftar hækk­un­ar­innar eru efna­hags­stöð­ug­leiki, batn­andi ytri staða þjóð­ar­bús­ins og skulda­lækkun hins opin­bera ásamt öfl­ugum hag­vexti.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands.

Í umfjöllun Fitch er sér­stak­lega vikið að því að opin­berar skuldir hafi lækkað mikið á und­an­förnum árum, en spá Fitch gerir ráð fyrir að opin­berar skuldir rík­is­sjóðs verði komnar í 45 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu en þær voru tæp­lega 95 pró­sent árið 2011.

Meðal við­mið­unin fyrir A ein­kunn­ina er undir 48,2 pró­sent.

Þá kemur fram í umfjöllun Fitch að styrk­ing krón­unnar hafi haldið aftur af verð­bólgu, en hún hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands í vel á fjórða ár, og mælist hún nú 1,7 pró­sent.

Fitch er bjart­sýnt á næstu ári, og gerir ráð fyrir 3,3 pró­sent hag­vexti á næsta ári og 2,9 pró­sent árið 2019.

Ferða­þjón­usta hefur verið drif­kraft­ur­inn að baki miklu hag­vaxt­ar­skeiði á árunum 2013 til 2017, en að með­ali var hag­vöxt­ur­inn 4,4 pró­sent á ári á þessum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár