101 sagt upp hjá Isavia

Isavia hefur sagt upp 101 starfs­manni og lækkað starfs­hlut­fall 37 starfs­manna til við­bótar. Fyr­ir­tækið hyggst ekki að svo stöddu nýta sér úrræði stjórn­valda sem snúa að greiðslu atvinnu­bóta sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins sam­dráttar.

Keflavíkurflugvöllur
Kefla­vík­ur­flug­völlur Flestir þeirra starfs­manna Isavia sem var sagt upp starfa á flug­vell­inum. Mynd: Shutterstock

Isavia hefur sagt upp 101 starfs­manni og lækkað starfs­hlut­fall 37 starfs­manna til við­bótar. Flestar upp­sagn­anna eru á Kefla­vík­ur­flug­velli. Isavia hyggst ekki að svo stöddu nýta sér úrræði stjórn­valda sem snúa að greiðslu atvinnu­bóta sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins sam­dráttar.

Þessu til við­bótar verður sum­ar­ráðn­ingum fækkað veru­lega.

Þetta kemur fram  í til­kynn­ingu frá Isavia. Þar segir að gripið hafi verið til aðgerð­anna í kjöl­far þeirra áhrifa sem útbreiðsla Covid 19 hefur á ferða­manna­straum til Íslands. Áhersla verði lögð á að félagið verði reiðu­búið að blása til sóknar á ný þegar dregur úr áhrif­unum af Covid-19.

Óhjákvæmilegar aðgerðir, segir forstjóri

 „Við komumst því miður ekki hjá því að grípa til upp­sagna, en þær ná ein­göngu til starfa á sviðum þar sem verk­efnum fækkar í óákveð­inn tíma,“ er haft eftir Svein­birni Ind­riða­syni, for­stjóri Isavia í til­kynn­ing­unni. „Við teljum hins vegar á þess­ari stundu mik­il­vægt að svara ákalli stjórn­valda um að þau fyr­ir­tæki, sem það geti, standi vörð um störfin í land­inu. Við erum í þeirri stöðu að lausa­fjár­staðan okkar er betri en hún hefur nokkru sinni verið þannig að okkar fyrstu við­brögð taka mið af því.“

„Áhrifin af sam­drætt­inum hafa mest áhrif á fram­línu­störf okkar á Kefla­vík­ur­flug­velli, m.a. í flug­vernd, far­þega­þjón­ustu og bíla­stæða­þjón­ustu. Að öðru leiti þá bíða okkar fjöldi verk­efna sem snúa m.a. að því að byggja upp inn­viði félags­ins,“ segir Svein­björn. „Við þurfum þó að vera með­vituð um það að óvissan næstu mán­uði er veru­leg og við munum end­ur­skoða stöð­una með reglu­bundnum hætti. Við þurfum með öllum ráðum að tryggja að aðgangur félags­ins að lausu fé dugi þar til hjólin fara að snú­ast á ný. Við þökkum öllu því góða fólki sem nú er að hverfa frá fyr­ir­tæk­inu fyrir þeirra störf og óskum þeim jafn­framt vel­farn­aðar.“

Munu ekki nýta sér úrræði um hlutabætur

Í til­kynn­ing­unni segir að móð­ur­fé­lag Isavia ásamt dótt­ur­fé­lög­unum Isavia Inn­an­lands og Isavia ANS muni að svo stöddu ekki nýta sér úrræði stjórn­valda sem snúa að greiðslu atvinnu­bóta sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins sam­dráttar. „Þær upp­sagnir sem ráð­ist er í núna eru til að bregð­ast við minnk­andi umsvifum til langs tíma en úrræði stjórn­valda eru fyrst og fremst til að bregð­ast við skamm­tíma­á­hrifum far­ald­urs­ins. Frí­höfnin mun nýta úrræði stjórn­valda sem gerir félag­inu kleift að ráð­ast ekki í upp­sagnir á fast­ráðnum starfs­mönnum sínum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár