Beikonát útlendinga skýrir aukna svínakjötsneyslu

Svína­kjöts­neysla jókst um tíu pró­sent milli ára þrátt fyrir nei­kvæða fjöl­miðlaum­fjöllun og verk­fall. Neysla útlend­inga á „enskum morg­un­verði“ hefur mikil áhrif, segir for­maður Félags svína­bænda. Hlutfall Breta og Banda­ríkja­manna á land­inu hækkar.

Neysla á svína­kjöti á Íslandi jókst um tíu pró­sent á milli áranna 2014 og 2015. Svína­kjötsát á hvern íbúa jókst um tæp tvö kíló á mann að með­al­tali á ári, úr 19 kílóum í 21 kíló. Að sama skapi jókst inn­flutn­ingur þar sem íslenskir fram­leið­endur náðu ekki að anna eft­isp­urn, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar.

Hörður Harð­ar­son, for­maður Félags svína­bænda, segir vissu­lega áhuga­vert að neyslan hafi auk­ist, sér­stak­lega í ljósi verk­falls dýra­lækna hjá Mat­væla­stofnun síð­asta vor og mik­illar fjöl­miðlaum­fjöll­unar um slæman aðbúnað svína.

Neikvæð umfjöllun og verkfall breytti engu

Verkfall dýra­lækna hjá MAST stóð í tæpar tíu vikur og um tíma máttu bændur hvorki slátra né setja kjöt á markað. Síðasta haust var fjallað mikið um skýrslu MAST þar sem greint var frá slæmum aðbún­aði svína á vissum búum lands­ins. Miklar umræður sköp­uð­ust í kjöl­farið.

Þetta hafði þó ekki þau áhrif að neysla á svína­kjöti dróst saman, nema síður sé. Neysla á svína­kjöti jókst úr 19,1 kílói á mann að með­al­tali í 21 kíló á ári. Þetta þýðir að hver og einn borði rúm 1,7 kíló af svína­kjöti á mán­uði. Fram­leiðsla jókst einnig, sem og inn­flutn­ingur. Útflutn­ingur dróst saman.

Hörður bendir á að ein aðal­breytan sem beri að hafa í huga sé gíf­ur­leg aukn­ing í komu erlendra ferða­manna til lands­ins. Hinn hefð­bundni enski morg­un­verður, beikon og egg, vegi mjög þungt.

„Þeir borða lang­flestir mikið beikon og við höfum ekki náð að anna eft­ir­spurn eftir því. Við þurfum að flytja inn svína­síður erlendis frá til að anna eft­ir­spurn­inni,” segir hann. „Ferða­menn eru auð­vitað mót­aðir af sínu umhverfi. Þó að þeir vilji mjög gjarnan prófa góðan fisk, lamba­kjöt og græn­meti þá fara þeir svo aftur í það sem þeir eru vanir í sínum heima­högum eins og nauta­kjöt, svína­kjöt og kjúkling.” 

Eggjabændur spýta í lófana

Eggin eru líka nauð­syn­leg til að ferða­menn­irnir fái sinn enska dög­urð. Það er ekki hægt að flytja fersk egg til lands­ins svo þeir um 20 eggja­fram­leið­endur sem á land­inu eru hafa þurft að auka fram­leiðslu veru­lega á und­an­förnum árum til að anna eft­ir­spurn.

Þor­steinn Sig­munds­son, for­maður Félags eggja­bænda, segir að mark­aðnum sé sinnt vel. Und­an­farin fimm ár hafa eggja­bændur bætt við sig bæði fuglum og húsum.

„Auk ferða­mann­anna hefur nýr neyslu­hópur komið sterkt inn, sem er ungt fólk í heilsu­átaki,” segir hann. „Egg eru orðin hluti af heilsu­fæði land­ans. Í dag eru egg í öllum hót­el­eld­húsum og öllum ísskápum. Við höfum undan, en þurftum að spýta í lóf­ana og það gengur vel.” 

Fleiri Bretar og Bandaríkjamenn

Ferða­mála­stofa sendi frá sér tölur í morgun þar sem fram kemur meðal ann­ars að um 77.500 erlendir ferða­menn hafi farið frá land­inu í jan­úar síð­ast­liðnum, sem er tæp­lega 25 pró­sent fleiri en á sama tíma í fyrra.

Þá hefur sam­setn­ing ferða­manna breyst mikið frá árinu 2010. Hlutfall Breta og Banda­ríkja­manna er mun hærra en áður og hlut­fall íbúa frá Norð­ur­lönd­unum hefur lækkað. Bretar og Banda­ríkja­menn eru miklar beikon­þjóðir og má gera ráð fyrir að hin hefð­bundi enski dög­urður eigi vel upp á pall­borðið hjá þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár