Skoða hvernig smásala lyfja hefur þróast

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur samið við Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands um gerð ítar­legrar úttektar á smá­sölu lyfja hér á landi. Áætlað er að stofn­unin ljúki verk­inu um næstu ára­mót.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur samið við Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands um gerð ítar­legrar úttektar á smá­sölu lyfja hér á landi. Skoðað verður hvernig mark­að­ur­inn hefur þró­ast frá því að verslun með lyf var gefin frjáls árið 1996 og hvort helstu mark­miðum lyfja­laga sé fram­fylgt. Áætlað er að stofn­unin ljúki verk­inu um næstu ára­mót og skili þá ráðu­neyt­inu skýrslu með nið­ur­stöðum sínum.

Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Þar segir að í úttekt Hag­fræði­stofn­unar verði sam­keppn­is­staða mark­að­ar­ins greind, meðal ann­ars á grund­velli mark­aðs­hlut­deildar, sam­þjöppun eign­ar­halds og álagn­ingar smá­sala. Jafn­framt verði skoðuð hag­kvæmni í lyf­sölu og gæði þjón­ust­unnar, þar á meðal dreif­ing apó­teka um landið. Kannað verði hvort þær breyt­ingar sem inn­leiddar voru í lyfja­verslun árið 1996 hafi skilað sér í lægra verði og betri þjón­ustu apó­teka. Í breyt­ing­unni hafi meðal ann­ars falist að hætt var að tak­marka fjölda apó­teka og felld niður krafa um að eig­endur þeirra væru lyfja­fræð­ingar. Nið­ur­stöður grein­ing­ar­innar verða bornar saman við stöð­una hjá nágranna­þjóðum, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu. 

„Meg­in­mark­mið lyfja­laga er að tryggja nægt fram­boð lyfja með sem hag­kvæm­astri dreif­ingu á grund­velli eðli­legrar sam­keppni. Samkvæmt lög­unum á lyfja­dreif­ing að vera hluti heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og þeir sem starfa við verslun með lyf skulu vinna með öðrum aðilum heil­brigð­is­þjón­ust­unnar að opin­berum heil­brigð­is­mark­miðum.

Jafn­framt er mark­mið lag­anna að tryggja gæði og öryggi lyfja og lyfja­þjón­ustu, auka fræðslu um lyfja­notkun, sporna við óhóf­legri notkun og halda lyfja­kostn­aði í lág­marki,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lyfjamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár