Íslensk heimili rétta úr kútnum

Fjár­hags­staða fjöl­skyldna hefur batnað nokkuð hratt að und­an­förnu, sam­hliða hækkun á virði líf­eyris- og fast­eigna. Það eru lang­sam­lega stærstu eignir heim­ila í land­inu.

Eftir erf­ið­leika sem blöstu við mörgum eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins og krón­unnar, haustið 2008, þá er heim­ils­bók­hald fjöl­skyldna í land­inu, sé litið yfir með­al­tals­tölur, farið að líta mun betur út. Eigna­staða heim­ila hefur batnað veru­lega, og skuldir hafa dreg­ist saman, sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu.

Fjáreignir aukast mikið

Hreinar fjár­eignir heim­ila juk­ust um sautján pró­sent milli ára og námu ríf­lega 2.600 millj­örðum króna í árs­lok 2014 sam­kvæmt nýupp­færðum tölum Hagstofu Íslands. Það jafn­gildir 131,7 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Aukning upp á sautján pró­sent milli ára telst vera mikið í sögu­legu sam­hengi.

Skuldir um 1.900 milljarðar

Fjár­eignir heim­ila námu tæp­lega 4.600 millj­örðum í árs­lok 2014, en stærstur hluti þeirra, eða 76 pró­sent, eru líf­eyr­is­rétt­indi. Virði hluta­bréfa í eigu heim­ila jókst um tæp­lega fjórð­ung á milli áranna 2013 og 2014 og nam tæpum 64 millj­örðum króna í árs­lok 2014. Skuldir heim­ila voru Rúmlega 1.900 millj­arðar. Jákvæður mis­munur fjár­eigna og skuld­bind­inga nemur því um 700 millj­örðum, sé mið tekið af stöðu mála í lok árs 2014.

Fasteignir stór hluti eigna

Áþreif­an­leg­ustu og sýni­leg­ustu eignir hvers heim­ilis eru fast­eign og öku­tæki. Þær eignir eru ekki taldar til fjár­eigna, sam­kvæmt grein­ingu Hagstofu Íslands. „Séu fast­eignir og öku­tæki heim­il­anna skoð­aðar í sam­an­burði við fjár­eignir kemur í ljós að fast­eignin er álíka stór og líf­eyr­is­rétt­indin og öku­tækja­eignin að jafn­aði minni en eign í verð­bréfum og hluta­bréfum,“ segir í Hagsjá Lands­bank­ans, þar sem kafað er ofan í fjár­hags­stöðu heim­il­anna.

Góð ávöxtun lífeyrissjóða

Bæði fast­eignir og líf­eyr­is­eign heim­ila minnk­uðu tölu­vert í hrun­inu, fast­eign­irnar mun meira, enda lækk­aði raun­verð fast­eigna, sé horft sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæðið, mikið í verð­bólgu­skot­inu sem fylgdi geng­is­falli krón­unnar. Báðir eigna­flokkar hafa stækkað veru­lega frá árinu 2010 og á það sér­stak­lega við um líf­eyr­is­rétt­indi heim­il­anna. Fast­eignin var stærsta eign heim­il­anna allt fram til árs­ins 2010 en síðan þá hefur líf­eyr­is­eignin verið stærsta eign íslenskra heim­ila. Fast­eigna­verð hefur farið hækk­andi að und­an­förnu, og nemur hækk­unin um 30 pró­sentum frá hruni. Spár gera ráð fyrir að fast­eigna­verð muni hækka um 25 pró­sent fram til árs­ins 2018, en eins og alltaf þegar slíkar spár eru settar fram, þá eru marg­vís­legar óvissu­for­sendur. Til dæmis hvernig verð­lag mun þró­ast, en um þessar mundir er verð­bólga um 1,5 pró­sent, einu pró­sentu­stigi lægra en verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands.

Það má meðal ann­ars rekja til góðrar ávöxt­unar líf­eyr­is­sjóða lands­manna á und­an­förnum árum, en í fyrra er áætluð raun­á­vöxtun um 8,1 pró­sent. Sé horft yfir ára­bilið frá 2011 til og með 2015, þá hefur með­al­tals­raun­á­vöxtun verið á bil­inu 6,5 til 7 pró­sent á ári. Í sögu­legu til­liti er það há ávöxtun, en höggið sem kom á líf­eyr­is­sjóð­ina í hrun­inu 2008 nam um 22 pró­sentum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár