Mynd: WALLPOETRY

Listamenn skreyta veggi í Reykjavík fyrir Iceland Airwaves

Mið­borgin er lista­gall­erí í tenglsum við Iceland Airwaves. Víða um miðbæ Reykja­víkur má sjá lista­verk örvuð með tón­list þeirra sem koma fram á hátíð­inni.

Veg­far­endur í mið­borg Reykja­víkur hafa tekið eftir því að búið er að skreyta heilu bygg­ing­arnar með risa­stórum vegg­lista­verkum. Nokkrir lista­menn fengu frelsi til að sköp­unar í verk­efni sem er á vegum Iceland Airwaves-tón­list­ar­há­tíð­ar­innar sem fer fram í Reykja­vík um helg­ina og Urban National Berlin.

Yfir­skrift verk­efn­is­ins er Veggja­skáld­skapur 2015 (e. Wall Poetry) þar sem lista­menn reyna að fram­kalla sjón­ræn áhrif tón­list­ar­innar sem þeir hlusta á á meðan þeir mála, spreyja eða teikna. Mynd­irnar hafa meðal ann­ars verið birtar á Facebook-síðu Reykja­vík­ur­borgar og verið deilt þaðan meira en þús­und sinnum. Reykja­vík er fyrsti vett­vangur þessa verk­efnis.

Markmiði verk­efn­is­ins er lýst þannig að málar­inn á „að taka hið ósýni­lega skap­andi ferli þegar hann hlustar á tón­list meðan hann málar mál­verk“. Einnig er hægt að snúa ferl­inu við og ímynda sér tón­list­ar­mann sem sér fyrir sér ákveðið mál­verk sem teng­ist til­finn­ing­unni sem fylgir lag­inu og text­anum.

Í Reykja­vík hefur lista­mönnum verið úthlutað veggjum í mið­borg­inni sem þeir fengu frelsi til að skreyta að vild. Útkomuna má sjá á mynd­unum hér að neðan sem ljós­mynd­ar­inn Nika Kramer tók.

Lista­menn­irnir sem tóku þátt í verk­efn­inu eru:

DEIH XLF + VÖK
EVOCA 1 + SAUN & STARR
ERNEST ZACHAREVIC + DIKTA
LI HILL + JOHN GRANT
ELLE + ÚLFUR ÚLFUR
CARATOES S + YLJA
TANKPETROL + GUSGUS
TELMOMIEL + MERCURY REV
UGLY BROTHERS + GÍSLI PÁLMI
DFACE + AGENT FRESCO AND LAXDÆLA

Hægt er að skoða allar mynd­irnar á vef Iceland Airwaves.

Mynd­irnar eru birtar með góð­fús­legu leyfi Iceland Airwaves.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár