Neita að upplýsa um hverjir fengu 885,4 milljónir

Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ) hefur á árunum 2013, 2014 og 2015 greitt 885,4 millj­ónir króna í sér­fræði­þjón­ustu, en sam­kvæmt svari Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Kjarnans þá neitar bank­inn að upp­lýsa um hvaða sér­fræð­ingar þetta hafa verið sem bank­inn keypti þjón­ustu af á fyrr­greindu tíma­bili.

Kjarninn hefur óskað eftir því að bank­inn rök­styðji neit­un­ina með vísun í lög, svo það liggi skýrt fyrir á hvaða grunni bank­inn neitar að upp­lýsa um hvaða sér­fræð­ingar það voru sem fengu fyrr­nefndar 885,4 millj­ónir. Er lög­fræð­ingur Seðla­bank­ans nú að því að búa það svar til, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá bank­anum.

Á árinu 2013 greiddi ESÍ sér­fræð­ingum 257,9 millj­ónir króna, á árinu 2014 358,7 millj­ónir og árinu 2015 268,8 millj­ónir.

Laun og launa­tengd gjöld félags­ins á fyrr­nefndu tíma­bili voru umtals­vert minni en upp­hæð­irnar sem fóru til sér­fræð­inga eða sem nemur 525,2 millj­ónum króna. Á árinu 2013 voru launin 72,4 millj­ónir, á árinu 2014 201,8 millj­ónir og á árinu 2015 251 milljón.

Á árinu 2014 jókst rekstr­ar­kostn­aður sam­stæðu ESÍ þegar dótt­ur­fé­lag ESÍ, Hilda ehf., tók yfir fyr­ir­tækja­lán og fulln­ustu­eignir Dróma.

Eins og fram í grein Kjarnans 29. jan­úar á þessu ári þá átti ESÍ eignir upp á 200,8 millj­arða króna um mitt ár í fyrra, en síðan þá hafa orðið miklar breyt­ingar, einkum vegna upp­gjörs­ins á slita­búum föllnu bank­anna, en stór hluti eigna ESÍ voru kröfur á búin og eigna­söfn sem rekja má til hruns­ins.

Félagið Lind­ar­hvoll ehf. heldur nú utan um eignir sem komu í skaut rík­is­ins með stöð­ug­leika­fram­lögum slita­bú­anna, og er unnið að sölu þeirra eins og áður hefur verið greint frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár