Hlutdeild ferðaskrifstofa í heildarneyslu ferðamanna rúmlega tvöfaldast

Hver ferða­maður sem kom til lands­ins árið 2017 varði 19 pró­sent af heild­ar­neyslu sinni í ferða­skrif­stofur. Þá hefur hlut­deild ferða­skrif­stofa í heild­ar­neyslu erlendra ferða­manna rúm­lega tvö­fald­ast á níu árum.

Eftir að lággjalda­flug­fé­lög höfðu rutt til rúms í heim­inum og sífellt auð­veld­ara varð fyrir fólk að sníða ferða­lög eftir eigin höfði þá spáðu margir að tími ferða­skrif­stofa væri að líða undir lok. Hér á landi hefur það hins vegar ekki verið raunin en á síð­ustu árum hefur ferða­skrif­stofum fjölgað gríð­ar­lega. Þá hefur hlut­deild ferða­skrif­stofa í heild­ar­neyslu erlendra ferða­manna rúm­lega tvö­fald­ast frá árinu 2009 en hver ferða­maður sem kom til lands­ins árið 2017 varði 19 pró­sent af heild­ar­neyslu sinni í ferða­skrif­stofur.

Ferðamenn verja nú um fjórðungi fleiri krónum í ferðaskrifstofur

Í nýrri skýrslu Íslands­banka um stöðu íslenskrar ferða­þjón­ustu er greint frá því krónan var að jafn­aði um 30 pró­sent sterk­ari árið 2018 en hún var fyrir upp­gang ferða­þjónust­unnar árið 2009. Þar sem neysla ferða­manna í erlendri mynt hefur ekki dreg­ist saman yfir tímabilið 2009 til 2017 má sam­kvæmt skýrsl­unni gróflega áætla að sterk­ari króna hafi leitt til þess að hver ferða­maður skili um þessar mundir rúmlega fjórðungi færri krónum til þjóðarbúsins árið 2017 en á árinu 2009 á föstu verð­lagi.

Í skýrsl­unni segir jafn­framt að sú þróun leyni sér ekki þegar neysla ferða­manna eftir útgjalda­liðum er skoðuð, að tveimur útgjalda­liðum und­an­skildum: Ferða­skrif­stofum og menn­ing­ar­starf­semi. Ferða­skrif­stofur fengu um fjórðungi fleiri krónur á hvern ferða­mann sem hingað kom á árinu 2017 miðað við árið 2009.

Þá hefur hlut­deild ferða­skrif­stofa í heild­ar­neyslu erlendra ferða­manna rúmlega tvöfald­ast á áður­greindu tímabili. Árið 2017 varði hver ferða­maður stærstum hluta heild­ar­neyslu sinnar í gisti­þjónustu eða um 23 pró­sent, 19 pró­sent neysl­unnar fór í ferða­skrif­stofur og 17 pró­sent í flug­far­gjöld.

Í skýrsl­unni segir að þetta bendi til þess að fleiri ferða­þjónustu­að­ilar komi vörum eða þjónustu sinni á fram­færi í gegnum ferða­skrif­stofur og/eða að ferða­menn kjósi í auknum mæli að versla vörur og þjónustu í gegnum ferða­skrif­stofur.

Fimm­falt fleiri ferðaskrif­stof­ur

Samhliða einu mesta vaxtarskeiði íslenskrar ferðaþjónustu fjölgaði fyrirtækjum í ferðaþjónustu gífurlega. Þeim fjölgaði um rúmlega 160 prósent á einum áratug, árið 2007 voru þau 1,336 talsins en árið 2017 3.477 talsins.

Þá voru ferðaskrifstofur alls 68 talsins árið 2007 hér á landi en árið 2017 voru þær orðnar 308 talsins eða nærri fimm­falt fleiri. Þetta kemur fram í svari ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn um þróun ferðmálaþjónustu á Alþingi í fyrra. Þá vinna 13 prósent starfsmanna í ferðaþjónustu á ferðaskrifstofum, sem ferðaskipuleggjendur og bókunarþjónustu.

Virðisaukaskyld velta ferðaskrifstofa eykst

Í fyrr­greindri skýrslu Íslands­banka má sjá að tekjur flugfélaga í íslenskri ferða­þjónustu námu 179 millj­örðum króna árið og verður því um 42 pró­sent af heild­ar­tekjum ferða­þjónust­unnar til hjá flugfélögum. Næst á eftir koma svo gisti­þjónustu­að­ilar, með 81 millj­arða króna eða alls 19 pró­sent af tekjum grein­ar­innar og ferða­skrif­stofur með 72 millj­arða króna eða 16 pró­sent af tekjum grein­ar­innar. Þó bera að nefna að starf­semi ferða­skrif­stofa felst í því að selja vörur og þjónustu ann­arra ferða­þjónustu­fyr­ir­tækja og renna tekjur ferða­skrif­stofa því að mestu leyti til ann­arra fyr­ir­tækja í

Í nýj­ustu útgáfu Hag­stof­unnar á skamm­tíma­hag­vísum í ferða­þjón­ustu kemur fram að á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins jókst virð­is­auka­skyld velta hjá ferða­skrif­stofum og ferða­skipu­leggj­endum um 12 pró­sent á milli ára. Auk þess má sjá að ef borin eru saman tíma­bilið mars til febr­úar 2017 við sama tíma­bilið árið eftir þá var alls 11 pró­sent aukn­ing á milli ára í virð­is­auka­skyldri veltu hjá ferða­skrif­stofum og ferða­skipu­leggj­endum. Það er tals­vert meiri aukn­ing en í öðrum ferða­þjón­ustu­rekstri, í far­þega­flutn­ingum með flugi var 2 pró­sent aukn­ing milli ára, í rekstrri gisti­staða var 3 pró­sent aukn­ing en veltan hjá bíla­leigum jókst um 1 pró­sent. [adspot]

Mesta fækkun farþega milli mánaða í 20 ár

Allt útlit er fyrir að á þessu ári muni í fyrsta sinn frá árinu 2011 draga úr fjölda ferða­manna til Íslands. Í apríl fækk­aði erlendum ferða­mönnum um 19 pró­sent en þá komu rúm­lega 106 þús­und ferða­menn til lands­ins sam­an­borið við 131 þús­und í apríl 2018. Samkvæmt gögnum Hag­stof­unnar er þetta mesta fækkun erlendra far­þega milli sömu mán­aða í tvo ára­tugi, eða svo langt sem gögn Hagstofu ná.

Umferð í gegnum Kefla­víkuflug­völl í apríl 2019 dróst einnig veru­lega saman. Heild­ar­far­þega­hreyf­ingar dróg­ust saman um 27 pró­sent á milli ára, voru tæp­lega 475 þús­und í síða­sliðnum apríl en 650 þús­und í apríl 2018. Heild­ar­flug­hreyf­ingar, flug­tök og lend­ingar, voru tæp­lega 7 þús­und í síð­asta mán­uði á meðan þær voru um 9.300 í apríl 2018. Þær dróg­ust því saman um 25 pró­sent á milli ára og eru sam­bæri­legar því sem þær voru í apríl 2017 þegar þær voru um 6.800.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár