Lyfjamisnotkun rússneskra íþróttamanna var undir handleiðslu stjórnvalda

Rannsókn lyfja­eft­ir­lits­ins sýnir að rúss­nesk stjórn­völd höf­uðu umsjón með lyfja­svindli rúss­neskra íþrótta­manna á Ólymp­íu­leik­unum í Sotsjí 2014.

Víðtækt lyfja­notk­unar- og lyfja­pró­fasvindl rúss­neskra íþrótta­manna á Vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum í Sotsjí var undir leið­sögn íþrótta­mála­ráðu­neyt­is­ins í Rúss­landi. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar alþjóða­lyfja­eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar sem kynnt var í dag.

Lagt hefur verið til að banna Rússum að taka þátt á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó í ágúst vegna ítrek­aðrar lyfja­mis­notk­unar rúss­neskra íþrótta­manna. Rann­sóknin leiddi í ljós að til­rauna­stofa í Moskvu vernd­aði íþrótta­menn­ina í Sotsjí og hjálp­aði þeim að hylma yfir skandal­inn.

Um er að ræða sjálf­stæða rann­sókn á vegum lyfja­eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar alþjóð­legu undir hand­leiðslu kanadíska laga­pró­fess­ors­ins Richard McLaren. Hann leiddi einnig aðra rann­sókn sem kom upp um lyfja­mis­notkun rúss­nesks frjáls­í­þrótta­fólks sem leiddi til þess að alþjóða­ólymp­íu­nefndin bann­aði frjáls­í­þróttaliði Rússa að keppa í Ríó.

McLaren sagði að íþrótta­mála­ráu­neyti Rúss­lands hefði haft umsjón með því að hag­ræða nið­ur­stöðum sýna­töku úr rúss­neskum íþrótta­mönnum og skipta út sýnum. Starfs­fólk til­rauna­stof­unnar hefði ekki átt tæki­færi á að segja sig frá verk­efn­inu sem var mið­stýrt úr ráðu­neyt­inu.

Í sam­tali við kvik­mynda­gerð­ar­menn sem vinna að heim­ild­ar­mynd ljóstr­aði Grigorí Rod­tj­en­kov, stjórn­andi til­rauna­stof­unnar, upp um leynd­ar­málið og sagði lyfja­mis­notkun og svindl hafa gert rúss­nesku íþrótta­mönn­unum kleift að ná gull­verð­launum á vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum 2014. „Fólk er að fagna ólymp­íu­meist­urum en við sitjum sveitt við að skipta út þvag­sýnum,“ sagði Rod­tj­en­kov. „Getur þú ímyndað þér hvernig ólymp­íu­í­þróttir eru skipu­lagðar?“

„Við vorum full mönnuð, með öll tól og tæki, vorum vel að okkur, reynd og alveg til­búin fyrir Sotsjí. Þetta gekk eins og sviss­neskt úr,“ er haft eftir honum í heim­ild­ar­mynd­inni. Rod­tj­en­kov er að mati lyfja­eft­ir­lits­ins alþjóð­lega lyk­il­maður í svindli Rússa. Hann gengst við öllum ásök­unum á hendur honum, nema þeim að hafa kúgað fé af íþrótta­fólk­inu. Hann seg­ist hafa verið þving­aður til að segja af sér af rúss­neskum yfir­völdum eftir að fyrst komst upp um svind­lið.

Viðbrögð rúss­neskra stjórn­valda við fyr­ir­spurnum The New York Times um málið voru að kalla þær „áfram­hald­andi upp­lýs­inga­áráður um rúss­neskar íþróttir,“ í yfir­lýs­ingu til rúss­neskra fjöl­miðla. Vitn­is­burður Rod­tj­en­kov og ann­arra vitna var tal­inn trú­verð­ugur í nýju rann­sókn alþjóða­lyfja­eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar sem kynnt var í dag.

Óvíst er hvort fleiri rúss­neskum íþrótta­mönnum verði bannað að keppa í Ríó í næsta mán­uði. Thomas Bach, for­seti alþjóða­ólymp­íu­nefnd­ar­innar, gaf í skyn í síð­ustu viku að honum þætti órétt­látt að refsa íþrótta­mönnum í einni íþrótt fyrir brot ann­arra.

Í Sotsjí vann Rússland til flestra veð­launa. Rúss­neskir íþrótta­menn og lið unnu til 13 gull­verð­launa og hlutu alls 33 verð­laun. Ólymp­íu­leik­arnir í heima­landi þeirra voru þeir lang dýr­ustu í sögu Ólymp­íu­leik­anna; kost­uðu um 51 millj­arð banda­ríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ríó2016

Pistillríó2016

Ásdís Ólafsdóttir

Hung­ur­leikar alþjóða­sam­fé­lags­ins

Ólymp­íu­leik­arnir eru fyrir alla: Íþrótta­menn sem upp­skera loks ávöxt erf­iðis síns, áhorf­end­urna sem flykkj­ast til fram­andi landa til að hvetja kepp­endur áfram, og okkur sem heima sitjum, með nammi­skál­ina á bumbunni, og fylgj­umst með helstu íþrótta­mönnum heims merja út sigur út á örfá sek­úndu­brot eða ful­kom­lega teygða rist. Á sama tíma eru Ólymp­íu­leik­arnir meira en íþrótta­við­burður. Þeir leiða saman þjóðir...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár