Bandaríkin yfirgáfu Afganistan og talíbanar tóku yfir: Hvað nú?

„Algjör óvissa ríkir í Afganistan, fólk er hrætt um líf sitt og það þarf aðstoð,“ segir ungur maður frá Afganistan sem þorir ekki að ræða við frétta­menn undir nafni af ótta við afleið­ing­arnar. Hann segir að því hafi fylgt mik­ill léttir og von um betri tíð þegar Banda­ríkja­menn komu fyrst, en sú von hafi dvínað með mis­kunn­ar­lausum aðgerðum CIA. Og nú er staðan þessi.

Í Kabúl
Í Kabúl Leigu­bíl­stjóri við bíl sinn í höf­uð­borg Afganistan um miðjan októ­ber. Mynd: AFP / BULENT KILIC

Sú ógn­vekj­andi staða sem nú ríkir í Afganistan hefur verið mikið í umræð­unni síð­ustu vikur. Fyrir um það bil tveimur mán­uðum tóku talí­banar völdin eftir að Banda­ríkja­her yfir­gaf Afganistan. Þann 30. ágúst síð­ast­lið­inn yfir­gáfu síð­ustu banda­rísku her­menn­irnir svæðið, dag­inn eftir gaf Joe Biden, for­seti Banda­ríkj­anna, út yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði að Banda­ríkin ættu að læra af mis­tökum sínum og að aft­ur­köllun hers­ins marki nýtt tíma­bil í sög­unni. Tímabil þar sem hern­að­ar­að­gerðir verði ekki not­aðar í þeim til­gangi að end­ur­byggja önnur lönd. Banda­ríkin hafa þó sætt mik­illi gagn­rýni frá alþjóða­sam­fé­lag­inu fyrir að skilja Afgani eftir í skelfi­legum aðstæðum. Ungur Afgani, sem var að klára masters­nám í Bret­landi, segir að „mik­il­vægt [sé] að rýna í sögu lands­ins, þegar Banda­ríkja­menn komu fyrst hafi það verið mik­ill léttir fyrir Afgani enda voru talí­banar algjör­lega óhæfir. Fyrir tíð talí­bana voru það Sov­ét­ríkin sem voru við völd, og Afganir ekki sáttir með þá heldur. Banda­ríkja­menn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár