Mikilvægt að sem flestir taki skýra afstöðu með Mannréttindadómstólnum

Þing­flokks­for­maður Pírata segir það vera mik­il­vægt að sem allra flestir taki skýra afstöðu með Mann­rétt­inda­dóm­stólnum nú þegar ráð­ist sé á trú­verð­ug­leika hans svo finna megi blóra­böggul fyrir emb­ætt­is­af­glöpum Sigríðar Andersen.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, segir það vera mik­il­vægt að sem allra flestir taki skýra afstöðu með Mann­rétt­inda­dóm­stólnum nú þegar ráð­ist sé á trú­verð­ug­leika hans svo finna megi blóra­böggul fyrir emb­ætt­is­af­glöpum Sigríðar Andersen. Frá þessu greinir hún í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagð­ist í gær líta svo á að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu hefði komið honum í „opna skjöldu“ og það væri umhugs­un­ar­sefni hvort dóm­stól­inn væri far­inn að „stíga yfir línu“ með þeirri gagn­rýni á íslenska stjórn­sýslu sem birt­ist í dómn­um. Hæsti­réttur væri æðsti dóm­stóll Íslands, ekki Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu.

[adspot]

Ætlar að standa vörð um aðild Íslendinga að MDE

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, sagð­ist í við­tali í Bítinu á Bylgj­unni í morgun vera algjör­lega ósam­mála þeirri afstöðu sem Bjarni hefur tekið gagn­vart Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu.

Í frétt Vísis um málið kemur fram að Kolbeinn hafi tekið af allan vafa um það hvort rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur væri með orðum dóms­mála­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra að und­ir­búa jarð­veg­inn til að segja Ísland úr MDE.

„Nei, rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur ætlar ekki að gera það. Það er þá bara hægt að afgreiða það. Ég er algjör­lega sam­mála því að Mann­rétt­inda­sátt­mál­inn og Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn er einn af horn­steinum rétt­ar­gæslu­vörslu fyrir mann­rétt­indi í okkar heims­hluta og við eigum að vera stoltir aðilar að honum,“ sagði Kolbeinn.

Hann hefði um langt skeið dáðst að störfum MDE og ekki síst í gegnum störf sín sem blaða­maður og bætti því við að blaða­menn hefðu í auknum mæli sótt rétt­indi sín þangað. Kolbeinn sagð­ist ætla að standa vörð um aðild Íslend­inga að MDE og hygð­ist gera það áfram. Hann sagði að fjár­mála­ráð­herra þyrfti sjálfur að svara fyrir sín orð.

Slæmt þegar ráðherra kastar rýrð á dómstólinn

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, sagði á Facebook í gær­kvöldi að henni fynd­ist mjög slæmt þegar for­maður stærsta stjórn­mála­flokks Íslands og ráð­herra í rík­is­stjórn leyfði sér að fara inn á mjög vara­samar brautir í við­brögðum sínum við dómi MDE til að planta inn efa­semdum um dóm­stól­inn og kasta rýrð á hann.

„Þegar hann spyr áleitna spurn­inga um túlk­un­ar­vald Mann­rétt­inda­dóms­stóls Evrópu og hvort hann hafi „stigið yfir lín­una“ og fleira, er hann á góðri leið með að stilla sér upp með hægri sinn­uðum þjóð­ern­ispópu­lista­flokkum Evrópu sem hafa verið að grafa undan lýð­ræði og mann­rétt­inda­bar­áttu í álf­unni. Yfir hvaða línu spyr ég á móti? Við höfum ekki „fram­selt túlk­un­ar­vald yfir íslenskum lögum til Evrópu“ eins og Bjarni spyr og ýjar sterk­lega að,“ segir hún á Facebook.

Rósa Björk segir jafn­framt MDE ekki vera ESB, heldur hafi Ísland orðið aðili að Evr­ópu­ráð­inu 1950 og séu Íslend­ingar í gegnum það aðilar að Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu sem sé ein mesta rétt­ar­bót þegar kemur að mann­rétt­indum sem Ísland hefur und­ir­geng­ist og Íslend­ingar þar með við­ur­kennt að hafi laga­gildi á Íslandi.

Mikilvæg að borgarar í aðildarríkjum Evrópuráðsins geti leitað til MDE

„Sátt­mál­inn hefur til að mynda rík túlk­un­ar­á­hrif á mann­rétt­inda­á­kvæði stjórn­ar­skrár Íslands og dómar Hæsta­réttar hafa leit­ast við að túlka mann­rétt­inda­á­kvæði stjórn­ar­skrár­innar í sam­ræmi við ákvæði Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu var stofn­aður árið 1959 á grund­velli Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans og tryggir að aðild­ar­ríki Evr­ópu­ráðs­ins virði þau rétt­indi borg­ar­anna sem kveðið er á um í sátt­mál­anum.

Það sem er mik­il­væg­ast er að borg­arar í aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­ráðs­ins geta leitað til dóm­stóls­ins telji þeir að stjórn­völd hafi beitt þá órétti. Um það snýst þetta mál sem dæmt var í gær og öll önnur mál fyrir dómnum. Ef dóm­stóll­inn telur að ríki hafi brotið gegn ákvæðum sátt­mál­ans þá dæmir hann í mál­inu. Það gerð­ist í gær. Og okkur, sem aðild­ar­ríki Evr­ópu­ráðs­ins og lýð­ræð­is­ríki sem ber virð­ingu fyrir mann­rétt­indum, ber skylda til að fara eftir úrskurðum hans. Berum áfram virð­ingu fyrir mann­rétt­indum og þeim skuld­bind­ingum sem við höfum und­ir­geng­ist. Gagnvart öllum borg­urum, líka fólki á flótta sem hingað koma til að leita verndar okkar. Og þó að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfi að fórna einum ráð­herra, þá gröfum við ekki undan þeim mik­il­vægu skyldum okkar sem eru miklu stærri og mik­il­væg­ari en eitt stykki ráð­herra­dómur,“ segir Rósa Björk.

Þór­hildur Sunna segir í stöðu­upp­færslu sinni að það hafi glatt hana mjög að sjá kollega sinn Kolbein Ótt­ars­son Proppé koma dóm­stólnum til varnar í morgun, og Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur í gær. „Takk fyrir það kæru félagar,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár